Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skyndikynni sem breyttust í martröð – Morðið á Vivan Hrefnu

Vivan Hrefna Óttars­dóttir hafði nýlega skilið við seinni eiginmann sinn er hún skrapp út að skemmta sér í miðborg Genfar. Kom hún heim með mann upp á arminn snemma morguninn eftir en áður en hún fór inn í svefn­herbergi með honum kíkti hún inn til 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Klukkan 11 blasti hræðileg sjón við lögreglunni. Vivan hafði verið myrt á hrotta­fenginn hátt og hafði morðinginn einnig reynt að nauðga dóttur hennar. Skyndi­kynnin höfðu breyst í martröð.

DV fjallaði um málið á sínum tíma en morðið var framið árið 1995.

Íslensk kona, Vivan Hrefna Óttars­dóttir, 39 ára líffræðingur, sem búsett hafði verið í Genf um árabil, fannst látin í íbúð sinni í miðborg Genfar á ellefta tímanum á laugardags­morgun. Greinilegt var á ummerkjum að hrotta­legur atburður hafði átt sér stað í íbúð konunnar því hún fannst kefluð í rúmi sínu og með plastpoka hertan að höfðinu. Konunni hafði að sögn

lögreglu verið nauðgað. Vivan hafði komið heim af skemmtistað með banamanni sínum klukkan sjö um morguninn. Hún leit sem snöggvast inn í svefn­herbergi 15 ára dóttur sinnar og bauð henni góðan dag. Eftir það sofnaði stúlkan aftur.

Þegar dóttir Vivan vaknaði aftur um tíuleytið varð hún vör við ókunnan mann sem reyndist vera á flótta út úr íbúðinni eftir morðið. Hann réðst á stúlkuna með gaffli og hafði í hótunum við hana eftir að hafa þrýst peysu yfir andlit hennar svo hún bæri ekki kennsl á sig. Maðurinn gerði því næst tilraun til að nauðga stúlkunni. Þegar maðurinn hvarf loks á brott tókst stúlkunni að gera nágrönnum sínum viðvart. Lögreglan var strax kvödd á staðinn og hófst þegar leit að ódæðis­manninum því ljóst var að um hrottalegt morðmál var að ræða. í svissneska sjón­varpinu var lýst eftir vitnum sem gætu gefið vísbendingar um ferðir hinnar látnu aðfara­nótt sunnu­dagsins. Vitni sem gáfu sig fram þegar eftir frétta­tíma sjón­varpsins gátu gefið lögreglunni greinar­góða lýsingu á manninum sem Vivan hafði sést í fylgd með um nóttina. Sú lýsing virtist koma heim og saman við lýsingu dótturinnar á árásar­manninum. Eitt vitnanna gat nafn­greint manninn og bent á hvar hann væri líklegast að finna. Um kvöldið tókst svissnesku lögreglunni i framhaldi af því að rekja slóð mainnsins á veitinga­stað í Genf þar sem hann var hand­tekinn og síðar um kvöldið játaði hann að hafa orðið íslensku konunni að bana.

Maðurinn, sem er 38 ára gamall Frakki, var ólöglega búsettur í Genf, starfaði sem múrari og hafði ekki áður komist í kast við lögin, hvorki i Sviss né Frakk­landi. Maðurinn og sú látna þekktust ekkert fyrir atburðinn. Dóttur konunnar var strax komið undir læknis hendur. Hún nýtur nú umönnunar vinafólkssins. Stúlkan er dóttir Vivan Hrefnu Óttars­dóttur og fyrri eigin­manns hennar sem er íslenskur. Seinni eigin­maður Vivan er Sviss­lendingur en þau
slitu nýlega samvistum. Hin látna starfaði af og til við rann­sóknir á vegum Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Lögreglan í Genf þakkar bæði almenningi og fjöl­miðlum hversu fljótt tókst að upplýsa þetta óhugnanlega morðmál sem slegið hefur óhug á fólk i Sviss og orðið forsíðu­efni dagblaða þar.

Maðurinn var sakfelldur fyrir dómi en hlaut sorglega vægan dóm, ekki nema 15 ára óskilorðsbundna refsingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá