Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Jón Ársæll dæmdur vegna viðtals í Paradísarheimt – Konan lagðist gegn birtingu

Jón Ársæll. / Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
Jón Ársæll. / Mynd / Heiðdís Guðbjörg Gunn­ars­dóttir

Sjónvarps­maðurinn góðkunni, Jón Ársæll Þórðarson, var á föstu­daginn í Lands­rétti dæmdur til að greiða konu 800 þúsund í miska­bætur vegna viðtals sem hann tók við hana. Um er að ræða viðtal sem birtist í þáttunum Paradísar­heimt. RÚV greinir frá málinu.

Öll nöfn voru fjarlægð úr birtum dómi Lands­réttar. Lögmaður konunnar staðfesti þó málið við frétta­stofu RÚV.

Þrjár þáttaraðir voru gerðar af Paradísar­heimt. Konan var viðmælandi í annarri þátta­röðinni. Þetta er í annað sinn sem viðmælanda úr þátta­röðinni eru dæmdar bætur.

Í þátta­röðinni þar sem konan kom fram voru viðmælendurnir fangar eða fyrr­verandi fangar. Í þáttunum var þeim gefið tækifæri til þess að segja sögu sína sjálfir. Samkvæmt úrskurði dómsins var það sem fram kom í þættinum að miklu leyti eitthvað sem flokkaðist undir viðkvæmar persónu­upplýsingar.

Konan samþykkti upphaf­lega að veita viðtal og að það yrði birt í sjónvarpi. Áður en þátturinn sem konan kom fram í var sýndur hafði hún hins vegar sent Jóni Ársæli tölvupóst. Í honum aftur­kallaði hún samþykki sitt og spurði: „Er hægt að taka mig út úr þessu? Hvenær átti þetta annars að koma?“

Fyrir dómnum staðfesti Jón Ársæll að hafa móttekið tölvu­póstinn en sagði jafnframt að hann hefði ekki skilið fyrir­spurnina þannig að í henni fælist ósk um að vera tekin út úr þættinum.

Í dómnum kemur fram að Lands­réttur meti málið sem svo að ekki hafi legið fyrir skýrt og ótvírætt samþykki konunnar fyrir vinnslu persónu­upplýsinga hennar með birtingu efnisins.

Jón Ársæll sagðist fyrir dómnum ekki muna hvort hann hafi hringt í konuna eftir að hafa móttekið tölvupóst hennar.

Kæran náði einnig til RÚV og Steingríms Jóns Þórðar­sonar, en rétturinn taldi að sýkna ætti báða aðila. Var það gert á þeim grund­velli að aðeins Jón Ársæll hafi haft vitneskju um tölvu­póstinn frá konunni.

Þetta er í annað sinn sem viðmælandi úr Paradísar­heimt fær bætur. Gyða Dröfn Grétars­dóttir stefndi RÚV og Jóni Ársæli vegna viðtals sem birtist við hana í þáttunum, sem hún hafði óskað eftir að yrði ekki sýnt. Henni var dæmd ein milljón í bætur vegna málsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá