Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Joe Biden ætlar ekki að senda Úkraínumönnum orrustuþotur – Frakkar og Pólverjar íhuga málið

F-16 Thunderbird
F-16 Thund­er­bird

Joe Biden Bandaríkja­forseti hefur útilokað að senda F-16 orrustu­þotur til Úkraínu, þrátt fyrir ítrekaða beiðni Úkraínu­manna um hjálp úr lofti. 

BBC segir að Biden hafi verið spurður í gær af frétta­mönnum hvort Banda­ríkin myndu útvega Úkraínu þotur. Svaraði Biden stutt og laggott, „nei“.

Svar hans kom degi eftir að kanslari Þýska­lands útilokaði einnig að senda orrustu­þotur til Úkraínu. Um langt skeið hafa yfirvöld í Úkraínu þrýst á að banda­þjóðir sendi vel búnar orrustu­þotur til hjálpar Kænugarðs við að taka völdin á loftrými landsins í stríði sínu við Rússland.

Volodymyr Zelensky Úkraínu­forseti og yfirmenn hersins hans hafa sagt að slík hernarðar­hjálp ætti ekki að vera tabú en Banda­ríkin og bandamenn þeirra hafa lýst yfir áhyggjum af því að slík sending myndi valda frekari stig­mögnun stríðsins við hið kjarnorku­vopnaða Rússland.

Ekki öll von úti enn

Ekki er þó öll von úti um slíka loft­hernaðar­aðstoð því Frakk­lands­forseti, Emmanuel Macron sagði á mánudaginn að tæknilega séð sé „ekkert útilokað“ en þá átti hann við hernaðar­aðstoð við Úkraínu. Tók hann þó fram að slík hjálp mætti ekki hella olíu á eldinn né takmarka varnir Frakk­lands. Varnarmála­ráðherra Úkraínu, Oleksii Reznikov er nú staddur í París þar sem hann mun að öllum líkindum ræða þetta mál við yfirvöld í Frakk­landi.

Þá hefur Pólland ekki enn útilokað að senda F-16 orrustu­þotur til Kænugarðs en forsætis­ráðherra landsins, Mateusz Morawiecki hefur sagt að slíkur flutningur gæti aðeins átt sér stað í „algjörri samhæfingu“ með öðrum Nato-þjóðum. Lét Andriy Yermak, skrif­stofustjóri Zelensky forseta, hafa eftir sér að Úkraína hafi fengið „jákvæð tákn“ frá Varsjá.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs