Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Inga brast í grát á Alþingi

Hefur lengi barist fyrir réttindum fatlaðra

Inga Sæland er félags- og húsnæðismálaráðherra
Inga Sæland er félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra Gleðitár hjá ráð­herr­anum voru mjög sýni­leg í dag. Mynd: Víkingur

Inga Sæland, félags- og húsnæðis­mála­ráðherra, brast í grát fyrr í dag á Alþingi þegar hún ræddi um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ísland undir­ritaði samninginn 30. mars 2007 og var hann full­giltur 23. september 2016.

Eitt af helstu baráttu­málum Flokks fólksins hefur verið að fá samninginn lögfestan á Íslandi og var greitt atkvæði um hann á Alþingi í dag. 45 þingmenn samþykktu málið en fimm þingmenn greiddu ekki atkvæði.

„Frú forseti. Ég gæti næstum því farið að gráta, ég er svo glöð að vera komin hingað. Öllum skal með lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna öldrunar, örorku, atvinnu­leysis og hvers annars sambærilegs. Þetta boðar Stjórnar­skrá lýðveldisins Íslands. Þrátt fyrir það hef ég ítrekað staðið hér til að verja tilveru­rétt fatlaðs fólks, sem á í rauninni þegar þennan stjórnar­skrár­varða rétt, vegna þess að þau eru talin kosta hugsanlega of mikið. En í dag munum við greiða atkvæði um þessi réttindi fatlaðs fólk, um samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hjartans þakkir fyrir að vera komin hingað. “ sagði Inga í ræðu sinni.

Markmið samningsins er að efla, verja og tryggja full og jöfn mann­réttindi og grundvallar­frelsi fyrir allt fatlað fólk til jafns við aðra, ásamt því að efla og vinna að virðingu fyrir eðlis­lægri mannlegri reisn þess. Samningurinn felur í sér bann við hvers kyns mismunun á grund­velli fötlunar og að fötluðu fólki sé tryggð jöfn og árangursrík réttar­vernd gegn mismunun á öllum sviðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Guðrún Hafsteinsdóttir gagnrýndi bið ríkisstjórnarinnar með hagræðingu. Kristrún Frostadóttir segir tillögur væntanlegar á næstu dögum.
  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“

  • Aðeins þrír róðrar áður en hjónin riftu kaupunum

  • „Af tvennu illu er skárra að böðullinn sé ekki í felulitum frjáls­lyndis“

  • Segir Ísland útiloka einmitt þá innflytj­endur sem landið þarf á að halda

  • Segir trygginga­félögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum