Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Tomasz segist hafa orðið fyrir einelti kvennahóps – Viðurkenndi að hafa beitt Vilborgu Örnu ofbeldi

Tomasz Þór Veruson
Tomasz Þór Veruson

Tomasz Þór Veruson leið­sögumaður hefur kvartað formlega yfir því að hann hann hafi orðið fyrir einelti innan Ferða­félags Íslands. Vísir.is fjallaði um málið. Í frétt Vísis eru nefndir til sögu tveir leið­sögumenn Ferða­félagsins sem hafi hætt í félaginu af umræddri ástæðu. Tómasz ekki nafn­greindur en heimildir Mannlífs staðfesta að um sé að ræða hann. Hann hefur, samkvæmt Vísi, sagt sig úr félaginu vegna þessa ásamt farar­stjóra sem tengist honum.

Tomasz komst í fréttir eftir að afreks­konan Vilborg Arna Gissurar­dóttir, fyrr­verandi sambýlis­kona hans, upplýsti hann hefði beitt hana ofbeldi. Hann gekkst við ásökununum og baðst opinber­lega fyrirgefningar á framkomu sinni gagnvart Vilborgu. Hann hefur ekki starfað fyrir Ferða­félag Íslands síðan verkefni hans lauk og var ekki fastur farar­stjóri.

Um það leyti sem ofbeldismál hans kom upp í janúar sl. kvartaði hann formlega undan því að hafa orðið fyrir einelti innan félagsins. Hann telur að hópur kvenna á samfélags­miðlum hafi dreift um sig sögum sem ekki eigi sér stoð í raun­veru­leikanum. Í frétt Vísis segir að „lyga­sögurnar tengist einkalífi og fagmennsku leið­sögumanna“. Tekjur leið­sögu­mannanna minnki enda fækki í kúnna­hópnum. Þá hafi myndir úr ferðum með ákveðnum leið­sögumönnum verið útilokaðar af samfélags­miðlum félagsins. Það hafi fyrst uppgötvast þegar viðskipta­vinir fóru að spyrjast fyrir hvers vegna myndir af þeim væru aldrei inni á miðlunum.

Í frétt Vísis er haft eftir Páli Gumundssyni framkvæmda­stjóra Ferða­félags Íslands að málið sé til skoðunar hjá óháðri sálfræði­stofu. Málið hafi áður verið sent til lögfræði­stofu sem hafi metið það sem svo að félagið þyrfti ekki að aðhafafst í málinu þar sem ásakanir vísi ekki til atburða sem hafi orðið á vettvangi félagsins.

Ekki náðist í Tomasz við vinnslu fréttarinnar.

Uppfært: Lögmaður Tómaszar, Eva Hauks­dóttir, vildi koma því á framfæri vegna skjólstæðings síns að hann væri ekki heimildar­maður Vísis eða viðmælandi í umræddri frétt. Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá