Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Einar hjá Neytendasamtökunum gagnrýnir framgöngu Motus í máli Lilju: „Erfið staða fyrir neytanda“

Einar Bjarni Einarsson
Einar Bjarni Ein­ars­son

Lögfræðingur hjá Neytenda­samtökunum telur mikla annmarka á vinnu­brögðum Motus í tengslum við mál sem fjallað er um í nýjasta tölublaði Mannlífs. Hann veltir því jafnframt upp hvort framganga Motus í málinu geti samræmst góðum innheimtu­háttum.

Lilja Margrét Hreiðars­dóttir lenti í hrakförum í samskiptum sínum við Motus og Lögheimtuna. Hún átti í deilum vegna reiknings sem hún taldi sig ekki eiga að greiða. Málið var farið fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa en þrátt fyrir að hafa látið Motus vita af deilunum og kærunni var krafan ekki fryst. Auk þess bárust svör frá Motus bæði seint og illa. Þrátt fyrir upplýsingar frá Lilju var krafan send í löginnheimtu og meðan á öllu þessu stóð hrapaði hún niður í ruslflokk í lánshæfis­mati Creditinfo, vegna vöktunar og uppflettinga Motus.

Blaða­maður Mannlífs ræddi við Einar Bjarna Einarsson, lögfræðing hjá Neytenda­samtökunum. Hann segir neytendur í þröngri stöðu í glímu sinni við innheimtu­fyrirtæki, þegar um væri að ræða deilumál.

„Þetta er auðvitað erfið staða fyrir neytanda, að vera svona á milli steins og sleggju. Að þurfa í rauninni að eiga við tvo aðila. Við höfum mælt með því að fólk hafi strax beint samband við innheimtu­aðila og reyni að fá þá til að setja innheimtu á bið, á meðan úr málinu er leyst. Flestir verða nú við því en í hennar tilfelli [Lilju] var ekki einu sinni búið að svara.“

Samræmist hugsanlega ekki góðum innheimtuháttum

Einar segir Neytenda­samtökin hafa lagt fram þá tillögu að skorður yrðu settar á innheimtu­aðgerðir, meðan mál væru til úrlausnar í kæru­nefndum. Það yrði að útfæra það með þeim hætti að ekki væri unnt að misnota ákvæðið.

„Þegar fólk er að lenda í þessu, er sannarlega með umdeilda kröfu og það er ágrein­ingur um það hvort hún sé réttmæt eða ekki, og fólk er að stíga þessi skref sem boðið er upp á og láta reyna á réttmæti – að reikningurinn sé þá bara í fullri innheimtu á meðan; það er erfið staða.“

Einar segir Lilju hafa varpað fram áhuga­verðri spurningu varðandi þessi mál. „Hvort þetta gæti verið í samræmi við góða innheimtu­hætti eða ekki, að halda innheimtu áfram. Þetta er í sjálfu sér svona vísiregla og matskennt hvað eru góðir innheimtu­hættir og hvað ekki.“

Hann segir svör innheimtu­fyrirtækja yfirleitt vera á þá leið að innheimtu­aðilum beri að fara eftir fyrir­mælum kröfuhafa. „Það eru oft svörin sem við fáum, þegar við erum að annast milli­göngu fyrir neytanda og setjum okkur í samband við innheimtu­aðila, og biðjum um að innheimta sé sett á bið meðan verið er að leysa úr ágreiningi. Þá vilja þau fyrst athuga með kröfuhafa, hvort hann samþykki það.“

Svaraleysi veldur hliðaráhrifum

Einar segir mál af þessu tagi koma upp við og við. Hann segir að um sé að ræða erfiða stöðu, en að blessunar­lega sé það oftast þannig að innheimtu­aðili sé viljugur til að setja innheimtu í bið meðan beðið er eftir úrlausn. „Í þessu máli hins vegar tafðist það, frekar lengi. Það hefur þessi hliðar­áhrif.“

Einar veltir fyrir sér úrræðunum sem neytendum standa til boða í þessari stöðu. Ef viðkomandi þori ekki annað en að greiða kröfuna, geti ef til vill verið erfitt að sækja hana til baka ef niður­staðan verður greiðanda í vil.

Hann segir erfitt að ráðleggja neytendum að greiða með fyrirvara. Að endingu þurfi þeir að ákveða sjálfir hvaða skref þeir vilji taka. Báðir kostir séu í raun slæmir; að greiða ekki og lenda í innheimtu og glímu við innheimtu­fyrirtækin, eða að greiða með fyrirvara og þurfa svo jafnvel að reyna að sækja endur­greiðslu.

„Manni myndi finnast eðlilegast að aðilar gætu í þessu tilfelli látið reyna á réttmæti kröfunnar í friði,“ segir Einar. Hann segist telja vert að skoðuð yrði lögfesting á einhvers konar ákvæði, varnagla sem verndi neytendur í þessari stöðu, líkt og Neytenda­samtökin hafa lagt til. „Vegna þess að þetta setur neytandann í rosalega óþægilega stöðu. Að vera bæði í viðræðum við kröfu­hafann sjálfan, standa í ágreiningi um réttmæti kröfunnar, og þurfa síðan líka að vera að andmæla innheimtu­aðgerðum við innheimtu­aðila. Tvo, í þessu tilfelli.“

Einar bendir á að í tilfelli Lilju sé svara­leysi Motus yfir langt tímabil afar gagnrýnis­vert. Ef Motus hefði strax meðhöndlað tölvupóst hennar, tekið athuga­semdir hennar til greina og fryst innheimtuna, hefði málið ekki farið á það stig að hliðar­áhrifin, lækkun lánshæfis­mats hjá Creditinfo, kæmu fram.

Lesið nánar um mál Lilju hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá