Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

ÍBV keypti 37% miða í Herjólf um Verslunarmannahelgina – Uppselt frá Eyjum mánudaginn 1. ágúst

Mynd/vegagerdin.is
Mynd/vega­gerdin.is

Allt frá árinu 2011 hefur ÍBV keypt stóran part af miðum í Herjólf um Verslunar­manna­helgina og selt með áföstum miða á Þjóðhátíð. Í ár er hlut­fallið minna en oft áður.

Þetta fyrir­komulag hefur ekki farið vel ofan í alla Eyjamenn en árið 2014 sagði Sædís Inga Eymunds­dóttir frá því í DV að systir hennar hafi neyðst til að borga 18.000 krónur til að komast aftur til Eyja eftir að hafa skroppið upp á megin­landið á fimmtudeginum fyrir Verslunar­manna­helgina. Það árið keypti ÍBV tvo þriðju af heildar­miðunum í Herjólf. Eins og svo margt annað hefur Þjóðhátíð ekki verið haldin síðustu tvö ár vegna Covid faraldursins og því spennan mikil í landanum.

Mannlífi lék forvitni á að vita hvernig þessu er háttað í ár en nú þegar er orðið uppselt í Herjólf frá Eyjum á mánudaginn 1. ágúst. Aðspurður um það hvort þetta teldist eðlilegt svona löngu fyrir helgina miklu sagði miða­sölumaður Herjólfs svo vera, það seljist oft upp þetta hratt.

Mannlíf sendi póst á eiganda Herjólfs, Vega­gerðina og spurði spurninga um málið. Bergþóra Þorkels­dóttir forstjóri Vega­gerðarinnar svaraði með því að senda upplegg frá Herjólfi ohf. um sölu á farmiðum yfir Verslunar­manna­helgina sem samþykkt var á fundi 7. mars síðastliðinn. Þar kemur fram að ÍBV kaupi 37% af heildar­magni miða til og frá Eyjum en restin er seld í gegnum bókunar­kerfi Herjólfs.

Hér má sjá uppleggið sem samþykkt var:

Sala á miðum í Herjólf um Verslunamannahelgina

Verslunar­manna­helgin er stærsta ferða­helgi hvers árs á Íslandi. Í Vestmanna­eyjum er haldin Þjóðhátið í Eyjum og er lang stærsta helgi ársins í farþega­flutningum til og frá Vestmanna­eyjum. Herjólfur ohf. og fyrri rekstrar­aðilar ferjunnar hafa brugðist við þessum aukna farþega­flutningi með fjölgun ferða til og frá Vestmanna­eyjum til að bregðast við þeirri umfram­eftirspurn sem myndast þessa helgi. Um verslunar­manna­helgina hefur Herjólfur ohf. aukið verulega siglingar­tíðni til og frá Vestmanna­eyjum og með tilkomu nýju ferjunnar hefur flutnings­geta aukist til muna.

Sala á miðum í Herjólf um verslunar­manna­helgina hefur verið sértak­lega tilkynnt og sala farið á stað á ákveðinni dagsetningu og um leið siglingar­áætlun skipsins um verslunar­manna­helgina tilkynnt. Oftast í kringum mánaðar­mótin febrúar/mars.

ÍBV hefur frá 2011 keypt miða af rekstrar­aðilum Herjólfs í ákveðið hlutfall í skilgreindar ferðir á þessu tímabili og endurselt þær á heimasíðu sinni. ÍBV kaupir alls ekki alla miða sem í boði eru og ekki alla miða í neina ferð skipsins. ÍBV kaupir á fullu verði 37% allra miða sem eru í boði með Herjólfi, frá fimmtudegi fram á mánudag. Hin 63% miðanna eru seld í gegnum bókunar­kerfi Herjólfs. Herjólfur selur því eins og venjulega miða fyrir einstaklinga í ALLAR áætlunar­ferðir sínar ásamt því að framboð ferða er aukið til muna. Þjóð­vegurinn á milli lands og Eyja er því alls ekki lokaður fyrir heimamenn og enginn þarf að kaupa miða á Þjóðhátið til að ferðast með Herjólfi. Það eina sem breytist þessa helgi er að siglinga­áætlunin breytist og opnað er sérstak­lega fyrir söluna. Einnig má það koma fram að sérstak­lega á sumrin er oft uppselt heilu og hálfu dagana með löngum fyrirvara, það á ekki bara við um Verslunar­manna­helgina.

Ef einstaklingar sem nauðsyn­lega þurfa að ferðast með Herjólfi t.d vegna veikinda á þeim dögum sem uppselt er í ferjunni, hefur Herjólfur undan­tekningar­laust leyst þau mál, sama hvenær það er og það á líka við um Verslunar­manna­helgina.

Ástæðan fyrir því að þetta fyrir­komulag var sett á árið 2011 um Verslunar­manna­helgina var sú að eftir að Land­eyjarhöfn opnaði er fyrst og fremst sú að einstaklingar voru að kaupa marga miða í margar ferðir og hratt seldist upp í allar ferðir til og frá Eyjum. Mikið „brask“ varð með miða á internetinu og farþega­nýting í ferðir sem voru uppseldar í kerfinu var léleg. Það er ekki bara mikilvægt fyrir Herjólf að samgöngur gangi vel þessa helgi, heldur allt samfélagið hér í Vestmanna­eyjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ