Glúmur Baldvinsson
„Þetta verða löng málaferli“
Glúmur Baldvinsson
Fólk

Átta algeng mis­tök sem gælu­dýra­eig­endur gera

Heimur

Kenn­ingar uppi um að geim­skip hafi stöðvað flug­um­ferð í Banda­ríkj­unum

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Ald­urs­mis­munun hjá lög­regl­unni undir stjórn Höllu Bergþóru

Skoðun

Það er ekki nægur mennta­hroki á Íslandi

Innlent

Ísland sett í frystikist­una næstu daga

Innlent

Dómari fór í taug­arnar á borg­ara

Fólk

Hlýlegt heim­ili með grónum garði í Skerja­firði til sölu

Innlent

Ökumaður kærður fyrir að skilja bíl sinn eftir í lausa­gangi

Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Vinkonur í Keflavík rifust um happdrættisvinning – Endaði í höndum lögmanna

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær

Leið­inda­mál kom upp í Keflavík í kringum ára­mótin 1983 og 1984 en þá rifust vin­konur um síma­happ­drætt­is­vinn­ing Sjálfs­bjargar.

Ung kona datt í lukku­pott­inn þegar hún tók þátt í síma­happ­drætti Sjálfs­bjargar og vann sér inn glæsi­lega bif­reið. Babb kom hins vegar á bát­inn þegar vin­kona hennar gerði kröfu til vinn­ings­ins en hún var skráð fyrir sím­anum sem hringt var úr.

DV sagði frá mál­inu þann 2. jan­úar 1984 en þar segir að unga konan hafi leigt hús sem vin­kona hennar hafði haft í Keflavík en þær ákveðið, vegna síma­skorts í bænum yrði síma­núm­erið áfram skráð á vin­kon­una. Hin unga kona keypti sér síðan miða í síma­happ­drætti Sjálfs­bjargar í gegnum síma vin­kon­unnar og vann glæsi­lega bif­reið, sem hin gerði síðan kröfu í, að minnsta kosti helm­ing­inn. Ekki fylgdi fylgdi frétt DV um mála­lyktir en málið fór í hendur lög­manna.

Hér má lesa frétt DV um málið:

Deilur um vinn­ing í síma­happ­drætti Sjálfs­bjargar:

Vinkonan vill fá hlut í vinn­ingnum

Mikið deilu­mál er komið upp á milli tveggja kvenna í Keflavík vegna vinn­ings í síma­happ­drætti Sjálfs­bjargar. Hefur vinn­ing­ur­inn — nýr og glæsi­legur bíll — verið „frystur” hjá Sjálfs­björg á meðan verið er að útkljá málið. Eins og kunn­ugt er eru mið­arnir í síma­happ­drætt­inu merktir nafni og síma­núm­eri þess sem skráður er fyrir hverjum síma. Stendur deilan um vinn­ing­inn glæsi­lega á milli stúlku sem skráð er fyrir við­kom­andi síma og þeirrar sem nú hefur afnot af honum en það var hún sem keypti mið­ann. Stúlkan sem er hand­hafi mið­ans hafði fyrir nokkrum mán­uðum fengið íbúð á leigu í Keflavík sem kunn­ingja­kona hennar hafði haft. Fylgdi íbúð­inni sími og þar sem mikil síma­ekla er í Keflavík og þar margir á biðlista eftu síma ákváðu þær að sím­inn í íbúð­inni yrði áfram á nafni hinnar. Hefur hún borgað öll gjöld af honum eins og vera ber og þar á meðal borg­aði hún happ­drætt­is­mið­ann með síma­núm­er­inu á, sem kom nú fyrir jólin. Á þennan miða kom svo vinn­ingur en stúlkan sem skráð er fyrir sím­anum gerir nú kröfur til að fá hann eða hluta hans. Málið er nú komið i hendur lög­fræð­inga og á meðan þeir eru að reyna að finna ein­hvern flöt á því, verður vinn­ing­ur­inn ekki afhentur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

VÍS vildi kenna slös­uðum starfs­manni um en tap­aði fyrir dómi

Starfsmaðurinn var látinn skrifa undir íslenskt skjal sem hann skildi ekki
Heimur

Ung­lingar hand­teknir í Póllandi grun­aðir um und­ir­bún­ing hryðju­verka

Pólitík

Ingvar yfir­gefur Viðreisn

Pólitík

„Ísland á ekki að vera þekkt sem sölu­staður vændis“

Mannlífið

Myndir
Mannlífið

Novasvellið rís á Ing­ólfs­torgi

Jólin nálgast óðfluga
Mannlífið

Opn­un­ar­veisla Bryggju­húss­ins að hefj­ast

Mannlífið

Mæður sem taka sjálfur eiga dætur sem vilja frekar fegr­un­ar­að­gerðir

Mannlífið

Hvers vegna eru börn oft að segja þessa setn­ingu?

Mannlífið

Bæj­ar­há­tíðin Í tún­inu heima stendur með miklum blóma í Mos­fellsbæ

Mannlífið

Bangsa­fé­lagið heldur upp á afmæli með stór­há­tíð og nýrri keppni