Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Júlí biður foreldra sína fyrirgefningar: „Tengir við brotna sjálfsmynd og áhrif eineltis úr æsku“

Júlí Heiðar tónlistarmaður. Mynd. Skjáskot/VÍSIR
Júlí Heiðar tón­list­ar­maður. Mynd. Skjáskot/VÍSIR

Tónlistar­maðurinn Júlí Heiðar var að gefa frá sér lagið Brenndur, sem fylgir á eftir hinu gífurlega vinsæla ástarlagi Ástin heldur vöku. Júlí frum­flutti lagið í gær í beinni hjá Gústa B í útvarps­þættinum Veisla á FM957.

Varð fyrir miklu einelti í grunnskóla

„Lagið Brenndur er sprottið út frá minni reynslu og þá sérstak­lega minni æsku.

Lagið fjallar um upplifun mína af einelti þegar ég var barn og samskipti mín við mína nánustu fjöl­skyldu og vini þegar ég er um tvítugt,“ segir Júlí Heiðar í samtali við Vísir.

Hann segist hafa átt virkilega góða æsku, uppeldi og foreldra og fyrir vikið taldi hann sig hafa verið nokkuð sterkan einstakling. Hins vegar átti hann ekki auðvelda skóla­göngu.

„Ég varð fyrir miklu einelti í grunn­skóla og þegar maður verður fyrir ítrekuðu aðkasti þá er það bara þannig að það fara að myndast sprungur sem erfitt er að fylla upp í án aðstoðar, þá sérstak­lega þegar maður er ungur.“

Brotin sjálfsmynd úr æsku

Í þessu lagi lítur Júlí til baka og fer yfir farinn veg. „Mín mesta eftirsjá snýr klárlega að því hvernig ég kom fram við foreldra mína og systkini þegar ég var um tvítugt. Á þessum tíma frá 19 ára til 23 ára hefði ég farið út af sporinu sem ég tengi aðeins við brotna sjálfs­mynd og áhrif eineltis úr minni æsku. Þetta hafði mikil áhrif á fjöl­skylduna mína en það er eitthvað sem ég gat ekki skilið fyrr en ég varð foreldri sjálfur.

Svo lagið er einhverskonar afsökunar­beiðni til þeirra og vitnar í þá sjálfs­vinnu sem ég hef þurft að fara í vegna brotinnar sjálfs­myndar frá æsku.“

Skannar ævi sína sem spannar þó ekki nema 31 ár

Júlí segir að sjálfs­vinnan hafi skilað honum betri líðan. „Í dag hef ég unnið að miklu leyti úr eineltinu og tel mig vera á góðum stað í lífinu, hamingju­samur, góður faðir og í frábæru sambandi. Það er ákveðið ferðalag að skanna ævi sína, sem spannar þó ekki nema 31 ár, skoða hvaðan maður kemur, hvert maður fór, hvar maður er og hvert maður stefnir í lífinu.

Mér finnst gott að skrifa um þessa hluti og er það mín leið til að skilja mig betur og þroskast.“

HÉR er hægt að lesa fallegt viðtal við Júlí Heiðar tónlistar­mann í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá