Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kinnhesturinn skyggði á sögulegt kvöld: Konur, heyrnarlausir og hinsegin fólk áttu sviðið

Þær Amy Schumer, Wanda Sykes og Regina Hall.
Þær Amy Schumer, Wanda Sykes og Regina Hall.

Margt merkilegt, meira að segja sögulegt, átti sér stað á Óskars­verðlauna­hátíðinni síðastliðið sunnudags­kvöld, jafnvel þótt kinn­hesturinn alræmdi hafi skyggt töluvert á alla sigra kvöldsins og það fólk sem ef til vill hefði átt sviðsljós kvöldsins skilið. Hátíðin var fjöl­breyttari en áður; konur voru sigur­sælar sem og fólk af ólíkum uppruna. Einnig átti bæði hinsegin fólk og heyrnar­laust fólk sína stóru sigra þetta kvöld, sem fara þannig á spjöld sögunnar.

Eflaust verður Óskars­verðlauna­hátíðarinnar 2022 ávallt minnst sem kvöldsins sem leikarinn Will Smith sló uppi­standarann Chris Rock utan undir uppi á sviði. Nú er hins vegar kominn tími til að tala um nokkur af mikil­vægari augna­blikum kvöldsins sem tengjast kinn­hestum ekki á nokkurn hátt.

Þær Amy Schumer, Wanda Sykes og Regina Hall.

Þær Amy Schumer, Regina Hall og Wanda Sykes voru kynnar á verðlauna­hátíðinni. Þetta var í fyrsta sinn sem þrjár konur eru kynnar á Óskarnum. Amy beindi skotum sínum að launamuni kynjanna í opnunar­ræðu sinni, þar sem hún sagði Akademíuna hafa ráðið þrjár konur sem kynna, vegna þess að það væri ódýrara en að ráða einn karlmann.

Aðstand­endur kvik­mynd­ar­innar CODA

CODA var valin besta kvik­myndin á hátíðinni. CODA er skamm­stöfun fyrir child of deaf adults, eða barn heyrna­lausra foreldra, og fjallar um stúlku sem er eini heyrandi meðlimur fjöl­skyldu sinnar. Handrits­höfundur CODA, Sian Héder, vann Óskarinn fyrir besta handrit byggt á öðru verki. Sian er fyrsta konan sem vinnur í þeim flokki frá því að Emma Thompson vann fyrir kvik­myndina Sense and Sensibility árið 1995.

Sian Héder

Þar með var sigur­göngu CODA þó ekki lokið. Troy Kostur braut blað í sögunni þegar hann varð fyrsti heyrnar­lausi karl­maðurinn til að vinna Óskarinn fyrir besta leik í auka­hlutverki. Troy Kostur fer með hlutverk Frank Rossi í kvik­myndinni. Aðeins einu sinni áður hefur heyrnar­laus einstaklingur unnið Óskars­verðlaun fyrir leik. Það var Marlee Matlin sem hreppti styttuna fyrir leik sinn í kvik­myndinni Children of a Lesser God, árið 1987. Svo skemmtilega vill til að Matlin leikur einnig í CODA.

Troy Kostur

Troy tileinkaði sigur sinn samfélagi heyrnar­lausra, CODA teyminu og samfélagi fólks með fatlanir. „Þetta er augna­blikið okkar,“ sagði hann, á táknmáli.

Ariana DeBose

Arina DeBose varð fyrsta opinber­lega hinsegin konan til að vinna Óskars­verðlaun fyrir leik sinn. Styttuna fékk hún sem besta leikkona í auka­hlutverki, fyrir leik sinn í kvik­myndinni West Side Story. Þar lék hún hlutverk Anitu, en kvik­myndinni var leikstýrt af kempunni Steven Spielberg. Arina er einnig einungis önnur konan af latneskum uppruna sem vinnur Óskarinn.

Það sem ef til vill gerir það enn áhuga­verðara, er að sú sem vann á undan henni var leikkonan Rita Moreno, sem vann fyrir sama hlutverk – 60 árum fyrr.

„Til þeirra sem einhvern tíma hafa verið óvissir um eigin persónu… ég lofa ykkur því að það er sannarlega til staður fyrir okkur,“ sagði Arina í þakkar­ræðu sinni.

Jane Campion

Kona hlaut Óskars­verðlaunin fyrir bestu leik­stjórn – annan árið í röð. Það var leik­stjórinn Jane Campion, fyrir kvik­myndina The Power of the Dog. Það var Chloé Zhao sem fékk Óskarinn fyrir bestu leik­stjórn á síðasta ári, fyrir kvik­myndina Nomadland.

Jane Campion er þriðja konan í sögunni til að hreppa styttuna fyrir bestu leik­stjórn.

Óskars­verðlauna­hátíð ársins 2022 innihélt því marga sögulega sigra og virðist hátíðin vera að vinna á í fjöl­breytni, eftir að hafa töluvert verið gagnrýnd síðustu ár fyrir að vera afar einsleit.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt