Starfsfólki á skrifstofu Eflingar barst formlegt uppsagnarbréf klukkan tvö í nótt. RÚV greinir frá þessu.
Í bréfinu kemur fram að ástæða uppsagnarinnar sé skipulags- og rekstrarbreytingar sem nái til allra stöðugilda hjá stéttarfélaginu.
Í bréfinu segir ennfremur að ný störf hjá Eflingu verði auglýst og er viðtakandi hvattur til að sækja um. Uppsagnarfrestur er sagður í samræmi við ráðningarsamning viðkomandi og viðeigandi kjarasamning. Óskað er eftir að viðtakandi bréfs sinni vinnuskyldu á uppsagnartíma.
Hópuppsögnin á skrifstofu Eflingar hefur verið gagnrýnd harðlega innan verkalýðshreyfingarinnar. Drífa Snædal, forseti ASÍ, hefur til að mynda sagt verkalýðshreyfinguna hafa unnið hart að því í fjöldamörg ár að hópuppsagnir af þessu tagi ættu sér ekki stað.
Í nýrri yfirlýsingu frá Sólveigu Önnu segist hún ánægð með að samráð við trúnaðarmenn hafi skilað sér í samkomulagi. Það samkomulag felur meðal annars í sér að starfsfólk geti farið í atvinnuviðtöl á vinnutíma og að Efling muni falla frá samningsbundnum uppsagnarfresti viðkomandi starfsmanns, fái hann starf annarsstaðar.
„Ég lýsi ánægju með að samráð við trúnaðarmenn hafi skilað sér í samkomulagi. Staðið hefur verið rétt og faglega að ferlinu. Það er hins vegar mjög leitt að minnihluti stjórnar hafi ekki virt trúnað og kosið að leka upplýsingum í fjölmiðla meðan á samráði stóð,“ segir í tilkynningu Sólveigar Önnu.
„Vanstillt umræða hefur svo farið úr böndunum síðustu sólarhringa þar sem ýmsir hafa sett sig á háan hest án þess að vita nokkuð um málið. Er það engum til sóma,“ segir hún ennfremur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir