Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sveitarstjórnarfólk upplifir mikið álag og áreitni í starfi: „Nýliðun er alltof mikil“

Eva Marín Hlyndsdóttir. Skjáskot/ MYND/Kristinn Ingvarsson
Eva Marín Hlynds­dóttir. Skjáskot/ MYND/Kristinn Ingv­ars­son Mynd: Kristinn Ingvarsson – KRI / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ríflega helmingur sveitar­stjórnar­fólks hefur upplifað mikið álagi í starfi til lengri tíma að því er fram kemur í könnun Evu Marínar Hlyns­dóttur, prófessors í opinberri stjórn­sýslu við HÍ, um reynslu og viðhorf kjörinna fulltrúa í bæjar- og sveitar­stjórnum á Íslandi.

Eva Marín segir niður­stöður könnunarinnar athyglis­verðar í ljósi umfangs­mikilla breytinga á sveitar­stjórnar­stiginu.

„Samhliða auknum verkefnum sveitar­félaga hefur sveitar­félögunum fækkað á landsvísu. Sú þróun hefur óneitanlega haft áhrif á störf sveitar­stjórna. Færri hendur vinna fleiri verk. Í könnuninni vekur álag á sveitar­stjórnir sveitar­félaga af miðstærð sérstaka athygli. Einn þáttur í því gæti verið að þessi sveitar­félög hafi tekið að sér að sjá um verkefni fyrir minnstu sveitar­félögin,“ segir hún í frétt inn á síðu Háskóla Íslands.

„Svo má ekki gleyma því að íslenskar sveitar­stjórnir eru mjög fámennar og raunar aðrar fámennustu sveitar­stjórnir í Evrópu með 7 fulltrúa að meðaltali.“

Fulltrúar upplifa áreitni í tengslu við störf sín

Guðveig Eyglóar­dóttir, bæjar­fulltrúi í Borgar­byggð og formaður verkefnis­stjórnar um starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa innan aðgerðar­áætlunar stjórn­valda á sviði sveitar­stjórnar­mála, segir niður­stöðurnar dýrmætt innlegg inn í störf verkefnis­stjórnarinnar.

„Sveitar­félögin á Íslandi eru ólík og könnunin stað­festir að nauðsynlegt er að líta til margra þátta til að bæta aðstæður kjörinna fulltrúa. Þar er hægt að nefna skipulag, fræðslu, aðstæður, kjör og stuðning vegna erfiðra samskipta og áreitni,“ segir hún og bætir við að ríflega helmingur kjörinna fulltrúa hafi upplifað áreitni í tengslum við störf sín í sveitar­stjórnum á kjör­tímabilinu eða síðasta kjör­tímabili samkvæmt könnuninni.

Guðveig tekur fram að markmið nefndarinnar sé að vinna gegn óvenju­mikilli nýliðun í sveitar­stjórnum, sex af hverju tíu fulltrúum í sveitar­stjórn hafi verið nýliðar í tvennum síðustu sveitar­stjórnar­kosningum.

„Nýliðun er alltof mikil, sérstak­lega meðal kvenna. Þótt hlutfall kynjanna sé orðið ágætt í sveitar­stjórnum stoppa þær alltof stutt.“

Eva Marín naut liðsinnis innviða­ráðuneytis og Samband íslenskra sveitar­félaga við gerð könnunarinnar og var niðurstöðu­skýrsla hennar unnin í samráði við verkefnis­stjórn um starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa innan innviða­ráðuneytisins. Verkefnis­stjórnin vinnur að því að greina starfs­aðstæður kjörinna fulltrúa og leggja fram tillögur til úrbóta. Félags­vísinda­stofnun sendi spurningar­lista vegna könnunarinnar til allra kjörinna fulltrúa í íslenskum sveitar­stjórnum dagana 16. nóvember til  4. desember árið 2020. Af 466 kjörnum fulltrúum svöruðu 236 eða 51%.

Hér má sjá ítarlegar niður­stöður könnunarinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá