Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Hildur um hömlulausa matarfíkn: „Matarfíkn var að ganga frá mér-ég gat engan veginn stjórnað henni“

Ljósmyndari Ellen Inga
Ljós­mynd­ari Ellen Inga

„Þann 2. febrúar 2021 gekk ég ákveðnum skrefum inn á Klíníkina og fór í maga­ermisaðgerð. Með „smá“ kvíðahnút í maganum, ekki vitandi hvað næstu mánuðir myndu bera í skauti sér vissi ég samt að þetta væri það rétta fyrir mig“, segir Hildur Hlín Jónasdóttir í samtali við Mannlíf.

„Það að fara í svona aðgerð er alls ekki auðvelda leiðin út úr ástandi sem var að ganga frá mér bæði andlega og líkamlega. Allt ferlið krefst mikillar vinnu og undir­búnings og hefur þetta ferli kostað blóð, svita og tár í bókstaflegri merkingu.“

Hildur Hlín Jóns­dóttir, er 38 ára og býr í Reykja­nesbæ. Hún er gift og á 6 ára gamlan son og var að eignast sitt annað barn. Hildur er lærður marg­miðlunar­hönnuður og hefur unnið mikið við graffík síðastliðin ár. Hún hefur verið að reka lítið hönnunar­fyrirtæki þar sem hún tekur að sér verkefni tengd graffík. Hildur er eigandi prjóna­fyrir­tækisins Knithilda, en þar selur hún prjóna­uppskriftir og aðrar prjóna­tengdar vörur, en hún vinnur líka sem launa- og upplýsingar­fulltrúi hjá fyrirtæki sem heitir Skóla­matur. „Þannig að það má segja að ég hafi alveg nóg að gera.“

Alltaf verið hrædd við svona aðgerðir

„Ég ákvað í lok október 2020, þá á algjörri endastöð, að heyra í Aðalsteini skurð­lækni á Klíníkinni og fræðast aðeins um aðgerðina. Ég hafði sjálf verið búin að afla mér einhverra upplýsinga og heyrt af nokkrum í kringum mig sem höfðu farið í svona aðgerðir og öðlast nýtt líf við það. Ég hafði sjálf alltaf verið mjög hrædd við svona aðgerðir, verið með mikla fordóma gagnvart þeim og talið þetta verið auðveldu leiðina út, sem það er svo sannarlega ekki.

En þetta símtal við lækninn breytti öllu og endaði það símtal á að ég var búin að bóka aðgerð. Léttirinn, maður minn, ég fann það strax þá að ákvörðunin var rétt og þar hófst í raun minn undir­búningur og ég varð bjartsýn í fyrsta skipti í langan tíma.

Ég fór ekki í aðgerðina til þess að verða eitthvað ákveðið þung eða ná ákveðnu markmiði heldur til þessa að auka lífsgæðin mín og geta gert sjálfsagða hluti, eins og að leika við barnið mitt og svo mögulega eignast fleiri börn.“

Hildur var þá búin að prófað nánast allt undir sólinni. „Borða rétt – hreyfa mig, LKL, Ketó, ég tek Metformin og var á tímabili á lyfinu Saxenda sem er sykursýkislyf sem oft er notað til að hjálpa fólki í ofþyngd. Margt af þessu skilaði mér árangri í skemmri tíma en ekkert sem ég náði að halda eða vinna með.  Það var orðið rosalega þreytandi og slítandi að hafa prófað þetta allt til þess að reyna að laga ástand sem ég vildi ekki vera í og var það farið að draga verulega úr mér að prófa eitthvað nýtt því oft hafði ég náð mjög góðum árangri sem tapaðist svo jafn hratt aftur og leiddi oft til mikillar svartsýni og vanlíðan.

Ég vonaði svo innilega að aðgerðin myndi létta mér lífið, gefa mér von að ég gæti loksins eitthvað sem hefur reynst mér erfitt og nánast ómögulegt, þ.e. að létta mig. Þung­lyndið og svart­sýnin var orðin mikil og ég var hætt að vonast eftir einhverjum árangri og í raun búin að gefast algjör­lega upp.“

Þessi mat­ar­fíkn var að ganga frá mér og gat engan veg­inn stjórnað henni og fannst ég vera mjög van­máttug. Nið­ur­rifið var gríð­ar­legt og van­líð­anin rosa­leg

Hömlulaus matarfíkn

Maga­aðgerðir ganga undir nafninu efnaskipta­aðgerðir en með svona aðgerð breytast efna­skiptin í líkamanum og réttast í flestum tilfellum af. Hildur segir að flestir sjúklingar sem fara í svona aðgerðir eiga í vandræðum með efna­skipti í líkamanum eins og hún. Hún er með pcos sem er að hennar sögn hund­leiðinlegur efnaskipta­sjúkdómur sem leggst á konur og hefur marga leiðinda fylgi­kvilla. Pcos getur m.a. gert það að verkum að líkaminn offramleiðir insúlín (insúlín viðnám). Frumurnar vinna heldur ekki rétt úr insúlíninu, taka það ekki rétt upp, sem gerir það að verkum að umfram insúlín fer út í blóðið og breytist í glúkósa og svo fitu. „Þannig að fyrir mig var sjúklega erfitt að léttast þó svo að ég borðaði rétt og hreyfði mig mikið. Líkaminn minn sendi allt insúlín beint út í blóðið og gargaði svo eftir meira þar sem að frumurnar voru ekki að fá nóg og þar skapaðist víta­hringur og upphafið af minni hömlu­lausu matarfíkn. Þessi matarfíkn var að ganga frá mér og gat engan veginn stjórnað henni og fannst ég vera mjög vanmáttug. Niður­rifið var gríðarlegt og vanlíðanin rosaleg.“

Pcos er marg­slungin sjúkdómur og leggst mismun­andi á konur, sumar fá væg einkenni meðan aðrar fá mikil einkenni eða öðruvísi einkenni. Barn­eignir reynast t.d. mörgum pcos konum erfiðar og var það líka þannig í hennar tilfelli og hefur það tekið mikið á hana síðastliðin 15 ár.

„Ég á mjög erfitt með að verða ólétt, fæ t.d. ekki egglos nema með hjálp lyfja og blæðingar geta staðið í 20 daga og tíða­hringurinn verið hátt í 40-60 dagar. Ég hef oft þurft lyf til að starta nýjum hring. Fósturmissar eru einnig algengari hjá pcos konum en við maðurinn minn eigum að baki þrjá mjög erfiða fóstur­missa.

Síðasta ár er því búið að vera mjög viðburða­ríkt og grunaði mig því ekki að í dag yrði ég á þeim stað sem ég er á nú. Nýbúin að eiga barn og lífs­glaðari en nokkru sinni áður. Það stendur í bæklingnum sem maður fær eftir svona aðgerð að frjósemin geti aukist og man ég eftir því að hafa lesið það og hugsað „piff þetta á ekki við mig“ en viti menn 4 mánuðum eftir aðgerð verð ég ólétt algjör­lega óvænt án nokkurra lyfja. Getið rétt ímyndað ykkur hamingjuna og hræðsluna þegar við komumst að þessu, en það er ekki æskilegt að verða ólétt innan árs frá aðgerð. Meðgangan hefur þó gengið mjög vel og það er vel fylgst með mér. Út af aðgerðinni og hversu stutt síðan það er síðan ég fór að þá er ég flokkuð í áhættu meðgöngu. Ég er í enda­lausum skoðunum sem og blóð­prufum og það hefur verið fylgst með okkur litla stubb.“

Er að læra nýja rútínu

Hildur segir aðgerðina hafa gengið mjög vel og var hún nokkuð fljót að jafna sig, „þannig séð en þetta var rosalega mikil vinna og álag að ná sér eftir aðgerðina. Líkaminn var hjá mér í raun fljótur að jafna sig, litlir verkir og ég komin á ról strax daginn eftir aðgerð. Hugurinn og andlega hliðin hefur þurft aðeins lengri tíma til að ná áttum. Ég var frá vinnu í tvær vikur, en það er mikilvægt fyrstu vikurnar að ná að jafna sig vel og læra á nýja rútínu. Eftir aðgerð er full vinna fyrstu vikurnar að læra að næra sig og drekka.

Fyrir aðgerð var ég á mjög ströngum hitaeininga­snauðum matarkúr í 3 vikur þar sem að ég í raun borðaði ekkert nema hrökk­brauð og prótein­ríkt álegg. Ég þurftir að skera hita­einingar niður þennan tíma og borða í kringum 900 kaloríur á dag, en þetta er gert til þess að lifrin og önnur líffæri taki minna pláss og auðveldara sé að gera aðgerðina. Eftir aðgerð fer maður svo á fljótandi fæði í tvær vikur, en þá einbeitir maður sér að ná inn um 1,5-2 L af vökva á dag, sem er alveg erfiðara en að segja þegar maginn tekur bara í kringum 1-2 desilítra.

Eftir tvær vikur af fljótandi fer maður að kynna inn maukað fæði, en það tímabil reyndist mér erfitt og átti ég í smá vandræðum með að finna út hvað ég gat og mátti borða. Þá byrjar maður einnig að vinna með það að hætta að drekka 30 mín fyrir mat og drekka svo ekki aftur fyrr en 30 mín eftir mat, s.s. aldrei vökvi með mat. Þetta þýðir mikið skipulag og ég var með timer stilltan í símanum til að minna mig á hvenær ég mætti drekka og hvenær ég þurfti að hætta. Það er samt ótrúlegt hvað maður er fljótur að venjast þessu og finnst mér þetta ekkert mál í dag, enda með góða rútínu.“

Fannst ég vanmáttug

Andlega hliðin var á hræði­legum stað fyrir aðgerð eftir mörg ár af svart­sýni og nið­ur­rifi

Bata­ferlið gekk mjög vel og segir hún að það hafi komið henni á óvart hvað líkaminn hafi verið fljótur að aðlaga sig. Hausinn hafi tekið aðeins lengri tíma, en hún segir að sér hafi fundist það hafa tekið meira á að vinna í hausnum og andlegu hliðinni eftir aðgerð.

„Andlega hliðin var á hræðilegum stað fyrir aðgerð eftir mörg ár af svartsýni og niðurrifi. Ég var gjör­samlega búin að gefast upp og hélt að ég ætti enga von með að laga lífstílinn minn. Mér fannst ég vanmáttug sama hversu mikið ég reyndi og aldrei gekk neitt.

Ég lagði mikið á mig fyrir aðgerð og var vel undirbúin, endalaust margir sálfræði­tímar að baki sem og annar undir­búningur. Ég ákvað strax og ég bókaði aðgerðina að vera vel undirbúin andlega og bókaði því reglulega sálfræði tíma hjá sálfræðing sem sérhæfir sig í að hjálpa fólki sem glímir við átröskunar­sjúkdóma og er á leiðinni í eða hefur farið í svona aðgerðir. Ég fékk og fæ góða hjálp frá henni og mörg verkfæri sem ég hef nýtt mér í þessu ferli og finn alveg svakalega mikinn mun á andlegu hliðinni eftir aðgerð. Vinnan er langt frá því að vera búin og þarf ég að vinna í henni daglega til að ná árangri.“

Fitufordómar og fordómar fyrir efnaskiptaaðgerðum

Hildur segist finna fyrir fordómum í samfélaginu, bæði fitu­fordómum sem og fordómum fyrir efnaskipta­aðgerðum. Hún hefur oft heyrt sagt; „af hverju hættir þú ekki bara að borða og ferð að hreyfa þig. Ef málin væru svona auðveld að þá væru ekki svona margir í ofþyngd og þ.a.l í vandræðum með heilsuna. Ég sjálf hef lent í miklum fordómum vegna þyngdar minnar, bæði frá aðilum sem ég þekki sem og fagfólki í heilbrigðis­kerfinu þar sem að maður varla þorir að fara til læknis því flest vandamál eða kvillar eru tengdir við þyngdina þó svo að í mörgum þeirra tilfella tengist kvillinn þyngdinni ekki af neinu leyti. Ég hef líka lent í því að fá ljót og leiðinleg komment frá aðilum varðandi þyngdina mína sem hafa bæði sært mig verulega mikið og sent mann niður í enn meira þunglyndi.

Mér finnst heilt yfir fólk ekki skilja ástæðuna fyrir ofþyngd, málið er ekki bara að fólk sé latt, nenni ekki neinu og vilji bara borða yfir sig. Ofþyngd er sjúkdómur þar sem að í mörgum tilfellum vinnur líkaminn ekki með fólki, efna­skiptin eru í rugli og matarfíkn er staðreynd. Það þurfa að vera til almennileg tæki og tól til þess að hjálpa fólki úr svona vítahring og ég vona svo innilega að það farið að breytast og að fólk sem á við ofþyngd að stríða og vill leita sér hjálpar mæti skilningi og fái þá hjálp og stuðning sem það þarf.“

Hildur hefur verið að deila lífi sínu eftir aðgerð, hvernig og hvað hún borðar ásamt því að reyna að uppræta fordóma fyrir svona aðgerðum á instagram síðu sinni @healthyhildur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá