Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tilkynningar um kynferðisbrot 23 prósent færri miðað við síðustu þrjú ár

Í nýrri mánaðar­skýrslu lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu fyrir febrúar­mánuð kemur fram að flestum hegningar­lagabrotum hafi fækkað milli mánaða. Tilkynningar um ofbeldis­brot og heimilis­ofbeldi voru til að mynda færri í febrúar en í janúar.

Alls voru skráð 524 hegningar­lagabrot á höfuð­borgar­svæðinu í febrúar og voru þau færri en í janúar, þegar þau voru 611 talsins.

Í febrúar bárust lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu alls 87 tilkynningar um ofbeldis­brot, sem eru færri tilkynningar en í janúar. Um 16 prósent færri tilkynningar um ofbeldis­brot hafa borist það sem af er ári, ef miðað er við meðaltal sama tímabils síðastliðin þrjú ár.

Tilkynningum um heimilis­ofbeldi fækkaði einnig á milli mánaða; þær fóru úr 71 tilkynningu í janúar niður í 52 tilkynningar í febrúar. Þeim hefur fækkað um sex prósent það sem af er ári, ef miðað er við meðal­fjölda sama tímabils síðustu þrjú ár.

Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu bárust 24 tilkynningar um kynferðis­brot sem áttu sér stað í febrúar. Um 23 prósent færri tilkynningar um kynferðis­brot hafa borist lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu það sem af er ári, en meðaltal sama tímabils síðastliðin þrjú ár á undan. Fjöldinn var 53 á sama tímabili árið 2019, 37 tilkynningar árið 2020, 51 árið 2021 og 36 það sem af er þessu ári.

Tilkynningum um þjófnaði og innbrot fækkaði töluvert milli janúar og febrúar. Tilkynningar um innbrot eru um 20 prósent færri það sem af er ári en meðaltal sama tímabils síðastliðin þrjú ár. Tilkynningum um þjófnaði það sem af er ári hefur fækkað um 25 prósent. Tilkynningar um þjófnaði voru 234 í janúar en 159 í febrúar.

Lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu bárust 45 tilkynningar um innbrot í febrúar. Tilkynningarnar voru 65 talsins mánuðinn á undan og fækkunin því talsverð. Tilkynnt innbrot á höfuð­borgar­svæðinu eru um 20 prósent færri það sem af er ári en þau hafa að meðaltali verið á sama tímabili síðastliðin þrjú ár.

Beiðnir um leit að börnum og unglingum voru átta talsins í febrúar og fækkaði frá því í janúar.

Tilkynningum um nytja­stuld á vélknúnum ökutækjum voru einar af þeim fáu tilkynningum sem fjölgaði á milli mánaða. Tilkynningarnar fóru úr 17 í janúar upp í 26 í febrúar. Slíkum tilkynningum hefur þó fækkað um 15 prósent ef horft er til meðaltals sama tímabils síðastliðin þrjú ár.

Skráðum fíkna­efnabrotum fækkaði á milli mánaða og það sama má segja um tilkynningar þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Hins vegar fjölgaði tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Skráð umferðar­lagabrot á höfuð­borgar­svæðinu eru um 33 prósentum færri það sem af er ári en á sama tímabili síðustu þrjú ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá