Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Sólveig vill fá vinnufrið – „Sem betur fer tókum við ákvörðum um að hlýða ekki, halda ekki kjafti“

„Umsóknar­frestur á störfum rann út í gær og alls bárust um það bil 250 umsóknir,“ skrifar Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, í pistli á Facebook síðu sinni í dag. Þá segir hún að nú taki við úrvinnsla umsókna þar sem þær verða skoðaðar og metnar.

„Það hefur verið áskorun að tryggja grunn­þjónustu við félags­fólks sökum fjölda-veikinda starfs­fólks skrif­stofunnar en það hefur tekist,“ segir hún í pistlinum en Sólveig vonast eftir vinnu­friði.
„Ég vona innilega að sá vinnu­friður sem ég hef ítrekað óskað eftir fyrir hönd stjórnar félagsins fari að komast á og að við getum óáreitt einbeitt okkur að því sem mestu máli skiptir, því að halda áfram við að breyta Eflingu í öflugustu samtök verka og láglaunafólks á Íslandi.“
Pistilinn má lesa í heild hér að neðan.

„Kæru Eflingar­félagar. Ég sendi ykkur baráttu og samstöðu kveðjur á deginum okkar, alþjóð­legum baráttu­degi verka­lýðsins, 1. maí. Ég vona að ég sjái ykkur í göngunni og svo í Eflingar-kaffinu í Vals­heimilinu að útifundi loknum.

Áður en lengra er haldið vil ég segja nokkur orð um skipulags­breytingarnar sem stjórn félagsins samþykkti að innleiða, og stöðuna á skrif­stofu Eflingar:
Umsóknar­frestur á störfum rann út í gær og alls bárust um það bil 250 umsóknir. Nú hefst vinna við að skoða þær og meta. Það hefur verið áskorun að tryggja grunn­þjónustu við félags­fólks sökum fjölda-veikinda starfs­fólks skrif­stofunnar en það hefur tekist. Stjórn setti í forgang að sjúkra­dagpeningar yrðu greiddir út enda eru þeir ein mikil­vægustu réttindi verka og láglaunafólks, sem vegna lágra launa á lítinn eða engan sparnað, og getur samstundis lent í alvarlegum fjárhags­erfiðleikum þegar veikinda­réttur hefur klárast og engin laun berast frá atvinnu­rekanda. Á morgun verða sjúkra­dagpeningar greiddir frá Eflingu til um það bil 190 félaga, upp á samtals 70 milljónir.
Ég vona innilega að sá vinnu­friður sem ég hef ítrekað óskað eftir fyrir hönd stjórnar félagsins fari að komast á og að við getum óáreitt einbeitt okkur að því sem mestu máli skiptir, því að halda áfram við að breyta Eflingu í öflugustu samtök verka og láglaunafólks á Íslandi.

Kæra Eflingar­fólk.
Atburðar­ráðs síðustu mánaða, vikna og daga hefur verið skrítin, svo vægt sé tekið til orða. En mín afdráttar­lausa afstaða er þó sú að við sem trúum á leik­reglur lýðræðisins eigum einfald­lega að fagna tæki­færunum til þess að berjast fyrir því sem við trúum á, til þess að sannfæra fólk með málefna­legum hætti um að stefna okkar sé þess virði að hún sé studd og henni fylgt. Það höfum ég og félagar mínir á Baráttu­listanum ítrekað gert, nú síðast á fjölmennum félags­fundi þar sem að niður­staðan varð sú að við höfum afdráttar­laust umboð til að stýra félaginu, líkt og við sannarlega vorum kjörin til að gera í kosningunum um forystu félagsins sem lauk 15. febrúar síðastliðinn. Átökin hafa verið hörð og erfið, en þau eru þess virði.

Kæru félagar.
Þegar ég tók fyrst við formennsku í Eflingu vorið 2018 vissi ég ekki mikið um íslenska verkalýðs­hreyfinguna. En ég skildi ekki hversvegna þau sem hreyfingunni stýrðu stærðu sig af því að hún væri best í heimi á meðan að ég og samstarfs­konur mínar á leik­skólanum töluðum um hvað launin okkar væru ömurleg og aðstæður erfiðar. Margar okkar voru í fleiri en einni vinnu, þrátt fyrir að leik­skóla­starfið sé eitt það mest lýjandi sem til er, bæði andlega og líkamlega, og sumar í fleiri en tveimur, til þess að geta tryggt okkur þak yfir höfuðið og til að gera staðið skil á reikningum. Þær okkar sem fastar voru á algróða­væddum leigu­markaði voru algjör­lega undir­seldar duttlunga­fullri græði leigusala. Fyrir okkur virtist verkalýðs­forystan lifa í allt öðrum efnis­legum heimi en við. Þar voru launin há, og fólk var búið að koma sér rækilega fyrir sem meðlimir í íslenskri milli og efri-milli­stétt. Stétta­samvinna var aðal­atriðið og stöðug­leikinn mikil­vægastur, sama þótt að öllum ætti að vera ljóst að hann hvíldi á herðum verka og láglaunafólks sem voru einmitt fórnar­lömb stéttasamvinnunar. Ég vissi ekki mikið um verkalýðs­hreyfinguna en ég vissi að áherslur hennar og forgangs­röðun voru rangar; þau sem tilheyrðu stétt verka og láglaunafólks svitnuðu við að knýja áfram hjól atvinnu­lífsins og héldu uppi umönnunar­kerfum samfélagsins á meðan að efri lög samfélagsins sem verkalýðs­forystan vildi tilheyra, höfðu það sífellt betra og náðugra. Og ég vissi að ég var ekki lengur tilbúin til að láta hlutina halda áfram á þeirri leið sem þeir voru, ég var ekki tilbúin til að sætta mig við að verka og láglaunafólk væri áfram jaðarsett, undan­skilið mikil­vægum ákvarðana­tökum sem höfðu þó allt um tilveru-skilyrði okkar að segja, ekki tilbúin til að sætta mig við að aðeins væri talað við okkur upp á punt eða bara alls ekki. Ég er sannarlega reynslunni ríkari núna, um allt er viðkemur félaginu okkar, verkalýðs­hreyfingunni, samskiptunum svokölluðu við viðsemjendur, átökum við þá og stjórn­völd, og það hvar, hvernig og hvenær stétta­átökin geta blossað upp. Ég veit núna að oft á tíðum fer erfiðasta baráttan fram á vettvangi sjálfrar hreyfingarinnar og að þau sem eru til í að taka þann slag eru ekki vinsæl. En afstaða mín til baráttu okkar verka og láglaunafólks hefur ekki breyst; við munum ótrauð berjast áfram fyrir því að okkar hagsmunir séu settir á oddinn hvar og hvenær sem er, við munum berjast ótrauð fyrir því að raddir okkar heyrist hátt og skýrt hvar og hvenær sem er, og við munum áfram berjast fyrir efnahags­legu réttlæti, gegn stétta­skiptingu, hvar og hvenær sem er.

Kæra Eflingar­fólk. Fjöl­breyttari hóp en okkur er ekki hægt að finna á Íslandi. Við komum allstaðar að úr heiminum. Við aðhyllumst fjölmargar og ólíkar skoðanir á málum, og menningar­legur bakgrunnur okkar er bókstaf­lega óendanlega fjöl­breyttur. En eitt eigum við sameiginlegt: Við tilheyrum stétt vinnu­aflsins. Við knýjum áfram hagvöxtinn með vinnu okkar; okkar vinna skapar verðmætin. Við höldum uppi umönnunar­kerfum samfélagsins; við erum ómissandi. Sama hvort við störfum á almenna eða opinbera vinnu­markaðnum er staðreyndin sú að án okkar vinnuafls stoppar öll verðmæta­framleiðsla þjóð­félagsins. Við erum það sem allt hvílir á. Það er staðreynd sem enginn getur neitað.

Og þessvegna, kæra fólk, eigum við að bera höfuðið hátt. Þessvegna eigum við að horfa stolt í spegilinn og á það fólk sem við mætum. Þessvegna eigum við að koma saman, hugrökk og upplits­djörf, í samstöðu hvort með öðru og með okkur sjálfum, og setja fram kröfuna sem endurómað hefur í gegnum sögu okkar verka­fólks: Okkar vinna skapar verðmætin, því er það okkar að ákveða hvað við viljum, hvað við þurfum. Hverju við eigum heimtingu á. Hverju við eigum rétt á.

Og við eigum bókstaf­lega rétt á öllu. Góðum og mann­sæmandi launum fyrir okkur og fjöl­skyldur okkar. Öruggu og góðu húsnæði fyrir eðlilegt og sann­gjarnt endur­gjald. Vinnu­aðstæðum sem eru til fyrir­myndar. Velferða­kerfi sem virkar fyrir okkur sem höldum því uppi. Skatt­kerfi sem sinnir sínu grundvallar­hlutverki, að endur­úthluta gæðum þjóð­félagsins með jafnaðar-hugsjónina í fyrirrúmi. Lífeyris­kerfi sem tryggir okkur gott og áhyggju­laust ævikvöld. Og svo mætti áfram telja. Þetta allt á að vera okkar og fyrir þessu munum við berjast. Við ætlum að hafna misskiptingu, stétta­skiptingu, arðráni. Við ætlum að hafna græði og spillingu. Við ætlum að hafna því að yfir okkur ríki firrt yfirstétt sem getur ekki hugsað um neitt nema eigin hagsmuni. Við ætlum að hafna því að þrátt fyrir algjört grundvallar­mikilvægi okkar séum það samt við sem fáum minnst, höfum það verst. Við ætlum að standa saman og í samstöðunni sýna öllum að við erum hér, við erum stolt, við erum sterk.

Kæra félagar. Ég vona að við eigum eftir að hittast á vettvangi félagsins okkar. Þar ætlum að halda áfram á okkar einbeittu vegferð um að félags­fólk stýri sannarlega för í Eflingu. Þar ætlum við að koma saman, móta okkar sýn og stefnu. Þar ætlum við að halda áfram við að byggja upp alvöru verkalýðs­félag sem getur tekið slaginn við valda­stéttina, bæði pólitíska og efnahags­lega. Þar ætlum við að halda áfram á þeirri braut að kjara­samninga­gerð verka og láglaunafólks sé í fyrsta skipti í marga áratugi raun­veruleg, metnaðar­full og sigurviss verkalýðs­barátta.

Kæru félagar. Enginn er að fara að færa okkur verka og láglaunafólki nokkurn skapaðan hlut, bara afþví að það sé rétt eða gott, eða af því að við biðjum svo fallega. Verka og láglaunafólk hefur ávallt þurft að berjast fyrir öllu sem það fær. Íslensk valda­stétt reyndi að telja okkur trú um að við ættum ekki að berjast, að við ættum að halda kjafti og hlýða. En sem betur fer tókum við ákvörðum um að hlýða ekki, halda ekki kjafti. Við tókum ákvörðun um að blása í hinar gömlu glæður alvöru róttækrar stétta­baráttu og við sáum bálið lifna við, við fundum af því hitann. Og við ætlum að hjálpast að við að láta eldinn lifa, okkar baráttueld, okkar og þeirra sem á undan okkur komu, þess stolta verka­fólks sem trúði á drauminn um réttlátt samfélag og lagði allt í sölurnar til að sjá hann lifna við, með raun­verulegum og mögnuðum árangri.

Kæru félagar. Ég trúi á réttlæti til handa verka­fólki. Ég trúi því að verkafólk og barátta þess sé hið raun­verulega samfélags­lega hreyfiafl framfara og réttlætis. Ég trúi á samstöðuna og mátt hennar vegna þess að ég sjálf séð og upplifað hverju hún getur skilað. Ég trúi því að ef við setjum okkur sjálf í fyrsta sæti, í félaginu okkar, í verkalýðs­hreyfingunni, í samfélaginu, í baráttu komandi vetrar þá eru okkur allir vegir færir. Þá munum við loksins uppskera í samræmi við algjört grund­vallar-mikilvægi okkar í íslensku samfélagi.

Sjáumst í kröfu­göngunni, sjáumst í Eflingu, sjáumst í barátt­unni!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá