Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Dómur væntanlegur í máli Aarons Ísaks: Sakaður um margvísleg kynferðisbrot gegn 12 ára drengjum

Aaron Ísak Berry.
Aaron Ísak Berry. Mynd: Söngvakeppni sjónvarpsins/RÚV

Réttarhöld fara nú fram yfir söngvaranum Aaroni Ísaki Berry í Héraðs­dómi Reykja­víkur, vegna kynferðis­brota gegn þremur barnungum drengjum. Aðal­meðferð í málinu fór fram 2. og 3. febrúar og því er niður­stöðu að vænta fljótlega. DV greindi fyrst frá málinu í gær.

Dómur er almennt kveðinn upp innan fjögurra vikna frá aðal­meðferð en á vef DV segir að dóms­uppsaga í málinu hafi frestast þegar kalla hafi þurft til tvö sérfræði­vitni til viðbótar fyrir dóminn, sem gáfu skýrslu í fyrradag.

Aaron Ísak er fæddur árið 1998 og er því 24 ára gamall. Hann skaust fram á sjónar­sviðið þegar hann keppti í forkeppni Eurovision hér á landi árið 2020 undir lista­manns­nafninu Kid Isak. Árið áður hafði hann sigrað Söng­keppni framhalds­skólanna.

Margvísleg brot

Aaron Ísak er ákærður fyrir að hafa brotið ítrekað kynferðis­lega gegn þremur drengjum frá hausti ársins 2019 til vors árið 2020. Tveir drengjanna voru tólf ára þegar brotin áttu sér stað en ekki er vitað um aldur þess þriðja eins og sakir standa.

Í DV segir að samskipti Aarons Ísaks við drengina hafi hafist þegar þeir sendu honum skilaboð á Instagram, eftir að hafa séð hann koma fram. Eru þeir sagðir hafa hrifist af söng hans og sviðs­framkomu. Eftir það hafi Aaron byrjað að senda þeim kynferðisleg skilaboð og er áreitið sagt hafa verið nær daglegt. Hann er sagður hafa skrifast á við þá á grófum, kynferðis­legum nótum, lýst kynlífs­athöfnum og sent þeim óviðeigandi og kynferðislegar myndir. Einnig er hann sagður hafa reynt að fá drengina til kynferðislegra athafna gegn greiðslu.

Aaron Ísak er einnig ákærður fyrir að hafa reynt að hafa kynferðismök við tvo drengjanna þar sem hann kyssti annan þeirra á munninn. Drengurinn er sagður hafa brugðist við með því að ýta honum frá sér. Aaron Ísak er sagður hafa káfað á drengnum utanklæða, meðal annars á klofi hans og einnig hafi hann reynt að fá sama dreng og vin hans með sér niður í bíla­kjallara.

Einnig er um að ræða ásakanir um að Aaron Ísak hafi haft þónokkuð barnaníðs­efni í fórum sínum; 10 myndskeið og 74 ljós­myndir.

Fór í skóla drengjanna eftir yfirheyrslur

Aaron Ísak er sömuleiðis sakaður um að hafa farið í skóla drengjanna eftir að yfirheyrsla hjá lögreglu fór fram. Þar hafi hann sótt að meintum þolendum og sakað þá um lygar gegn sér. Móðir eins drengjanna fékk í kjölfarið nálgunar­bann á hann. Samkvæmt DV voru dren­girnir allir mjög hræddir eftir að Aaron Ísak kom í skólann.

Líklega má gera ráð fyrir niður­stöðu dómsins í málinu á næstunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá