Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Svetlana Álfheiður: „Rússneska þjóðin er allt í einu orðin þetta skrímsli“

Svetlana Álfheiður
Svetlana Álf­heiður

„Þegar árás Rússlands inn í Úkraínu hófst þá hélt ég að um þetta mál gætu ekki verið skiptar skoðanir. En mér skjátlaðist. Pabbi sagðist ætla að hringja til baka af því að þau voru að hlusta á ávarp Pútíns til þjóðarinnar. Þegar hann sagði nokkrum dögum seinna „þetta er í raun ekki stríð“ og að engum sprengjum væri kastað á Kænugarð heldur væru þetta bara „æfinga­skot úkraínsks loftvarna­kerfis“ þá áttaði ég mig á því hversu kröftugum áróðri er beitt og að hann er því miður að virka,“ segir Svetlana Álfheiður, rússnesk kona búsett hér á landi.

„Ég á ekki orð til að lýsa tilfinningum mínum vegna ástandsins. Þetta er súrrealískt og ég held að ég sé ennþá í hálf­gerðri afneitun. Ég get ekki trúað að árið 2022 geti allsherjar­stríð verið eina mögulega lausnin í samskiptum tveggja þjóða sem eiga þar að auki svo margt sameiginlegt, sem deila sameiginlegri sögu og menningu og sem hafa lifað hlið við hlið öldum saman. Sumir kaflar í þeirri sögu voru kannski ekki bjartir – en ég er sannfærð um að að hlutverk stjórn­málamanna felist meðal annars í því að tryggja að við lærum af þeim og byggjum gott traust og samvinnu milli þjóðanna. Mér er sama hversu góða afsökun Rúss­landsstjórn getur gefið fyrir því að hafa farið í stríð. Það er óafsakanlegt.

Ég get ekki annað en hugsað að miðað við ástandið í dag voru kannski kjarn­orku­stríðsæf­ing­arnar okkar í æsku ekki til­gangs­lausar.

Hins vegar get ég ekki ímyndað mér hvaða töfra­lausn væri hægt að grípa til núna. Á einni viku virðist Rússland hafa glatað hálfri öld af jákvæðri þróun og stigið risaskref aftur í tímann. Samkvæmt heims­áliti breyttist landið úr nútíma­landi og gildum þátt­takanda í alþjóð­legum málum í árásar­gjarna villiþjóð lausa við alla skynsemi, sem lætur sem grunn­mann­réttindi séu ekki til. Ég get ekki annað en hugsað að miðað við ástandið í dag voru kannski kjarnorku­stríðs­æfingar okkar í æsku ekki tilgangs­lausar.

Sem betur fer eru flestir sem ég þekki sömu skoðunar og ég og finnst ástandið vera það hryllilegasta sem þeir hafa lent í á sinni lífstíð hingað til. Fyrir stuttu héldum við sakleysis­lega að Covid hefði verið það versta. Eins og er, er erfitt fyrir mig að hugsa um framtíð rússneskrar þjóðar. Að öllu óbreyttu munu framtíðar­horfurnar verða sársauki, fátækt, sundrung fjöl­skyldna – annaðhvort bókstaf­lega hjá þeim sem eiga ættingja í Úkraínu eða út frá ágreiningi vegna skoðana – algjör einangrun frá alþjóða­samfélagi og kúgun allrar mótspyrnu innan Rússlands. Eins og á verstu tímum Sovét­stjórnar er almenningur í Rússlandi hand­tekinn og fangelsaður fyrir að tjá skoðanir sínar, fyrir að fara á frið­samleg mótmæli og fyrir að vilja kjósa fólk sem stendur fyrir heilbrigða skynsemi og þráir að leggja lið í þróun landsins í takt við nútímann.“

Ég votta úkra­ínsku þjóð­inni inni­lega samúð mína og vona að þjóðir heims geti unnið að því í sam­ein­ingu að stoppa þessa hörm­ung.

Svetlana segist varla geta ímyndað sér hvað ríki í hjörtum úkraínsks almennings. „Á hverjum degi heyrum við fréttir af fólki sem þarf að yfirgefa heimili sín og flýja burt til að bjarga börnum sínum frá stríðinu. Hvaða hryllingur ríkir í hjörtum þessara barna? Líklegast lítur það út eins og verstu martraðir hafi orðið að veruleika og skrímsli úr ævintýra­bókum séu að lifna við. Og rússneska þjóðin er allt í einu orðin þetta skrímsli. En orrusturnar og blóðið er raun­verulegt.

Ég votta úkraínsku þjóðinni innilega samúð mína og vona að þjóðir heims geti unnið að því í sameiningu að stoppa þessa hörmung. Ég óska þess heitt að þjáningum beggja þjóðanna muni linna og við öll getum vaknað upp af þessari martröð – og þótt skaðinn sé eflaust nú þegar skeður, er hann ef til vill ekki alfarið óafturkræfur.“

Illa lyktandi gasgrímur

Svetlana fæddist og ólst upp í nágrenni Moskvu en foreldrar hennar fluttu þangað áður en hún fæddist. „Þau komu frá borg sem heitir Samara og liggur í um 1.000 kílómetra fjarlægð suðaustur frá Moskvu. Þau eru afar einlægt og harðduglegt fólk sem trúði á yngri árum mjög innilega á sósíalíska drauminn, þannig að það má segja að uppeldisár mín í dæmigerðu, sovésku umhverfi hafi einkennst mjög af rómantískum og útópískum keimi. Foreldrar mínir störfuðu á rann­sóknar- og vísinda­stofnunum ríkisins. Þegar pabbi minn fékk ekki að vera flugmaður, sem var draumur margra drengja sem fæddust stuttu eftir heims­styrjöldina síðari, út af lélegri sjón þá valdi hann menntun á sviði rafiðnaðar og vann svo á rannsóknar­stofu ríkisins í þróun vélrænna tækja (Scientific Research Institute of Electromechanics). Mamma lærði geimferða­verkfræði við Háskóla geimflug­iðnaðar í Samara (Aerospace University) og starfaði síðar á ríkis­stofnun sem þróaði meðal annars fyrsta sovéska geimfarið, Buran, sem part af geim­ferðaáætlun Rússa.“

Það má full­yrða að gagn­rýnin hugsun hafi hvergi verið í kennslu­á­ætlun á þessum tíma.

Svetlana segir að lífið hafi verið einfalt og framtíðin björt þegar hún var lítil. „Á grunn­skólaaldri fór ég ein út í búð til að kaupa mjólk í þríhyrndum mjólkur­fernum, klassíska rússneska rúgbrauðið og einu kextegundina sem til var. Ég hafði gaman af því að fara í maíkröfugöngur, sitja á öxlunum á pabba og veifa litla, rauða fánanum. Ég hafði líka gaman af því að teikna og gat setið dögum saman við þá iðju að leira persónur úr uppáhalds­teiknimyndunum mínum. Ég lærði samt nógu snemma að list var „ekki alvöru starf“ – enda ekki nógu gagnlegt fyrir samfélagið – og trúði því án þess að efast; eins og ég trúði öllu öðru sem mér var sagt og kennt. Það má fullyrða að gagnrýnin hugsun hafi hvergi verið í kennslu­áætlun á þessum tíma.

Mér leiddist ávallt í skólanum; það var of auðvelt að læra utanbókar skoðanir annarra en fyrir okkar eigin fengum við lægri einkunnir. Það var helst gaman þegar kennslan var lögð niður fyrir æfingar á svokölluðum „dögum almanna­varna“. Þá kannski heyrðist loftárásar­viðvörun í miðjum stærðfræði­tíma og við þurftum að setja á okkur illa lyktandi gasgrímur í snatri, mynda einfalda röð og koma okkur í næsta loftvarnar­byrgi á mettíma. Íþrótta­kennarinn var á klukkunni og tilkynnti okkur síðar hvaða bekkir náðu að lifa þykjustu­kjarnorku­árásina af.“

Svetlana segir að árið 1991 hafi breytt öllu. „Ég sá brostna drauma og ótta í augum foreldra minna. Ríkis­stofnanir fengu ekki nægilegan fjar­stuðning lengur og margar voru lagðar niður. Fljótlega urðu þau bæði atvinnu­laus en þau voru alls ekki nógu praktísk til að átta sig fljótt á óreiðu perestrojkunnar og að koma sér vel fyrir á nýja, frjálsa markaðnum. Peningur var af skornum skammti, stundum var ekkert til að borða og við fengum okkur steiktar kartöflu­sneiðar í öll mál. Það tók fjöl­skylduna þó nokkur ár að koma sér á fætur á ný og hafa efni á einhverju öðru en helstu nauð­synjum.“

Dúfnahólar 10

Svetlana segir að það hafi verið mikill gleði­dagur þegar faðir hennar fékk vinnu sem rafvirkja­meistari í banka og keypti sitt fyrsta VHS-tæki. „Af ótrúlegustu tilviljun var þetta augnablik líka upphaf sögunnar um tengingu mína við Ísland.

Önnur myndin á spól­unni var ónefnd lág­gæða fram­tíð­ar­geim­veru­mynd en hin var engin önnur en Sódóma Reykja­vík.

Einn góðan veðurdag kom pabbi minn heim með vídeó­spólu sem hann keypti af handahófi á svarta markaðnum; löglegar útgáfur af útlenskum myndum voru því miður ekki eins aðgengilegar þá. Önnur myndin á spólunni var ónefnd lággæða framtíðar­geim­verumynd en hin var engin önnur en Sódóma Reykjavík. Einhver snillingur talsetti hana á rússnesku með því að þýða samtölin úr enskum texta. Hún varð á auga­bragði uppáhalds­myndin á heimilinu – við stóra systir horfðum á hana ótal sinnum og erum enn þann dag í dag að skiptast á einka­húmorsfrasa á borð við „Dúfna­hólar tíu“. Þar heyrði ég íslenskuna í fyrsta sinn á bak við rússneskt tal og sagði í gríni að einn daginn myndi ég læra þetta skrýtna og töfrandi tungumál. Í myndinni var líka svo skemmtilega furðulegt fólk sem mig langaði ótrúlega mikið til að hitta. Síðan þá fékk ég áhuga á öllu sem tengdist Íslandi, en mörgum árum seinna þegar ég var að læra málvísindi við Háskólann í Moskvu komst ég að því að það var kennari á deildinni sem kenndi íslensku – og þá var ekki aftur snúið.“

Svetlana kom fyrst til Íslands árið 2005 til að halda áfram að læra íslensku við Háskóla Íslands. „Mér fannst fyrst eins og ég hefði lent í röngu landi – þótt ég hefði verið að læra íslensku í um eitt og hálft ár áður en ég kom þá skildi ég ekki baun. Það er kannski skiljanlegt með tilliti til þess að eina orðabókin sem við gátum notað við kennslu við Háskólann í Moskvu var orðabók eftir Valerij Berkov sem var gefin út árið 1962. Þannig að það tók mig lengri tíma að klára námið og ég var einu ári lengur en ég ætlaði. Svo annað og það þriðja. Og nú, 17 árum seinna, held ég að foreldrar mínir séu farnir að átta sig á því að ég er ekki endilega á leiðinni heim.“

Neikvæðni og hræðsluáróður

Svetlana segir að í fyrstu hafi henni fundist lífið á Íslandi mjög frábrugðið lífinu sem hún lifði í Moskvu. „Ég þurfti ekki að taka strætó og svo lest og neðan­jarðarlest til að komast í háskólann. Samskipti milli fólks voru mjög óformleg og innileg. Ólíkt Rússlandi þar sem ég þurfti að ganga með gassprey í vasanum á leiðinni heim á kvöldin var ég alveg örugg á röltinu um miðbæ Reykja­víkur á hvaða tíma dags sem var. Fólk var hjálpsamt og hver stóð með öðrum. Það minnti mig jafnvel á góða hlið Sovét­tímans þar sem fólk upplifði sig eins og eina stóra fjöl­skyldu.

Það tók mig mjög langan tíma að læra að hugsa út fyrir Sov­ét­kass­ann minn og enn í dag rekst ég annað slagið á rang­hug­myndir sem eru enn fastar í huga mínum og sem ég trúi enn.

Smám saman áttaði ég mig samt á því að ég passaði engan veginn vel inn í þennan frjáls­lynda heim þar sem ég var mjög ferköntuð og skoðanir mínar voru í raun eitthvað sem ég hafði lært frekar en myndað sjálf. Það tók mig mjög langan tíma að læra að hugsa út fyrir Sovét­kassann minn og enn í dag rekst ég annað slagið á rang­hugmyndir sem eru enn fastar í huga mínum og sem ég trúi enn. En nú er ég vön að draga allt sem ég veit í efa.

Fyrstu árin var ég að reyna að aðlagast íslensku samfélagi og reyndi að láta af öllum rússneskum hegðunar­hætti og verða „íslensk“. Ég varð það að sjálfsögðu ekki, en það var nóg til þess að ég færi að missa tengsl við rætur mínar og þá fann ég fyrir þeirri þörf að líta til baka og komast að því hver ég er og hvað skiptir máli fyrir mig. Ég þurfti að uppgötva hvað það þýðir fyrir mig að vera Rússi – hvað það er sem gerir mig öðruvísi en aðra heims­borgara, en hvernig við erum lík. Það leiddi óumflýjanlega að persónulegri krísu sem ég hef glímt við í nokkur ár.

Það væri kannski góð mynd­líking að segja að ég hafi verið eins og matrjóska sem Íslendingar kalla babúsku; hulin djúpt inni með mörg lög af fölskum eigin­leikum sem ég þurfti að losa mig við til að komast að kjarnanum og klæða mig svo í sum þeirra upp á nýtt. Kannski var það þessi leit að ekta eðli mínu sem leiddi mig svo í jógaiðkun, en ég hef stundað jóga af krafti í mörg ár og er nýlega farin að kenna það.

For­eldrar mínir segja jafn­vel sjálfir að þaðan streymi helst nei­kvæðni og hræðslu­á­róður.

Í gegnum árin fannst mér þó sífellt erfiðara að deila persónu­legum sigrum og uppgötvunum mínum með mömmu og pabba – ég fór að taka eftir því að álit þeirra á sumum „vestrænum“ gildum er fremur neikvætt og þau eru oft ekki tilbúin til að heyra aðrar skoðanir en þær sem tíðkast úti. Ég er löngu hætt að fylgjast með sjón­varpinu í Rússlandi en ég fæ nóg af því á stuttum ferðum heim. Foreldrar mínir segja jafnvel sjálfir að þaðan streymi helst neikvæðni og hræðslu­áróður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá