Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Arnór: „Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram“

Arnór Sveinsson. Ljósmyndari: Jón Ágúst Guðjónson. Lónið framan við Skaftafellsjökul
Arnór Sveins­son. Ljós­mynd­ari: Jón Ágúst Guð­jón­son. Lónið framan við Skafta­fells­jökul Mynd: Jon Agust Gudjonsson

Arnór býr í notalegu húsi við Hafravatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Hann tekur á móti blaða­manni við afleggjarann að húsinu og við skutlumst yfir snjó­breiðurnar, fyrst á jeppa og svo á snjósleða síðasta spölinn. Hann býr í ekki nema 20 mínútna aksturs­fjarlægð frá Reykjavík, en upplifunin er eins og vera komin langt út á land.

Þegar inn er komið tekur á móti okkur hundurinn hans, glaður að fá fólk í heimsókn. Rýmið ilmar af ilmkjarna­olíu og við setjumst niður með heitan kakóbolla sem er útbúinn eftir kúnstarinnar reglum af Arnóri. Kakóið er ekkert venjulegt kakó, heldur svokallað „ceremonial grade cacao“ criollo-kakó, lífrænt, óerfðabreytt og sann­kölluð ofurfæða. Hreint kakó inni­heldur eitt mesta magn magnesíum og andoxunar­efna nokkurrar plöntu og er mjög góður náttúru­legur orkugjafi og ástar­drykkur.

kakó­plantan gegnt veiga­miklu hlutverki í árþúsund og hlotið nafn­bótina fæða guðanna

Arnór Sveinsson. Ljós­myndari: Jón Ágúst Guðjónsson. Lónið framan við Skafta­fellsjökul

Blaða­maður kynnti sér þetta magnaða kakó og komst að því að það er blóð­flæðis­aukandi, hefur jákvæð áhrif á úthald og orku, minnkar bólgur, ýtir undir fram­leiðslu á gleði­boðefninu serótónín, lækkar streitu­hormónið kortisól og örvar vellíðunar­stöðvar í heilanum og fram­leiðslu á endorfíni. Að auki inni­heldur það króm, theobromine, manganese, sink, kopar, járn, C-vítamín, omega 6-fitusýrur og tryptophan svo eitthvað sé nefnt af þeim góðu efnum sem kakóið inni­heldur.

Fjölmargar rann­sóknir sem gerðar hafa verið, meðal annars við Yale og Oxford, staðfesta virkni kakó­baunarinnar og stöðu hennar sem heilsu­samleg og heilsu­eflandi fæða.

Í menningu Maya-fólksins í Mið-Ameríku hefur kakó og kakó­plantan gegnt veiga­miklu hlutverki í árþúsund og hlotið nafn­bótina fæða guðanna. Þá má rekja kakó­drykkju 4.200 ár aftur í tímann og því tími til kominn að þessi dásemdar­drykkur rati til Íslands.

Djúp innri vinna

Arnór er 37 ára og uppalinn á Álftanesi. Hann hefur kennt jóga og haldið vitundar­tengd námskeið frá september 2013, árið sem hann lauk jóga­kennaranámi. Nú kennir hann flestalla tíma í Primal Iceland. Þau námskeið saman­standa af jóga, öndun, hugleiðslu, Wim Hof, slökun, tónheilun og kakó-athöfnum.

Árið 2013 lauk hann jóga­kennaranámi í Jógaskóla Krist­bjargar Krist­mundar­dóttur og hefur frá þeim tíma ferðast víðs vegar um heiminn og sótt fjöldann allan af námskeiðum sem tengjast jóga, hugleiðslu og andlegri vinnu. „Ég varði dýrmætum tíma með munki í fjöllum norður Taílands þar sem ég fór í djúpa innri vinnu og lærði hugleiðslu sem er undir­staðan í nálgun minni og leið­beiningum í dag. Þessi munkur var í raun minn fyrsti kennari. Á þessum tíma lærði ég að um leið og maður fer að stunda hugleiðslu í gegnum jóga þá hverfur smám saman það sem maður þarf ekki í lífinu,“ segir Arnór en hann leggur mikla áherslu á öndun í allri sinni nálgun.

Arnór með munki í Taílandi

Fráfall nákomins ættingja ýtti honum á andlegu brautina

Þegar skóla­göngu hans lauk eftir 10. bekk var hann fljótlega kominn á sjóinn og farinn að vinna fyrir sér. Hann hafði alltaf haft áhuga á jóga og andlegum málefnum en fráfall nákomins ættingja var það sem að lokum ýtti honum af stað á andlegu brautina.

ÞAR UPPHÓFST UNDARLEG ATBURÐARÁS ÞAR SEM ÖRLÖGIN OG GÆFAN LEIDDU MIG ÁFRAM

„Án þess að vita fyrir víst hvað væri í vændum þá fór svo á endanum að ég pakkaði föggum mínum og flaug austur til Taílands. Þar upphófst undarleg atburðarás þar sem örlögin og gæfan leiddu mig áfram. Ég endaði í smábænum Pai í norður­hluta landsins þar sem ég komst í kynni við munk og varði dýrmætum tíma með honum í fjöllum Norður-Taílands. Þar fór ég í djúpa innri vinnu og lærði hugleiðslu sem er undir­staðan í minni nálgun og leið­beiningum. Ég fylgdi munkinum víða um landið og dvaldist meðal annars við hugleiðingar í helli. Síðan þá hef ég ferðast víðs vegar um heiminn og sótt fjöldann allan af námskeiðum sem tengjast jóga, hugleiðslu og andlegri vinnu,“ segir hann í samtali við Mannlíf.

Wim Hof og Arnór, en Wim Hof-aðferðin er einmitt skírð í höf­uðið á honum.

Sælureitur við Hafravatn

Eins og fyrr segir býr Arnór á fallegu landi við Hafravatn ásamt Ingeborg, konu sinni. Landið er algjör paradís, steinsnar frá borginni. Markmið þeirra er að byggja upp sælureit fyrir sig og aðra til að njóta og er planið jafnvel að hafa festival á landinu, þegar að því kemur.

„Það sem við viljum gera á sælu­reitnum er að hafa námskeið yfir helgar og fá fólk hingað í náttúruna til þess að læra að beita líkama sínum rétt. Vera í mosanum, í skóginum, í vatninu. Tengjast nátt­úrunni. Bara það að vera berfættur og setja hendurnar í moldina er svo mikilvægt fyrir okkur til þess að tengjast. Flóran þín og flóran í jörðinni eru eins og systkini.

Við viljum byrja með eitthvað skemmtilegt á þessum reit, en við erum með rými til að tengjast nátt­úrunni. Við verðum með námskeið og fáum kennara til að kenna okkur um vist­kerfið og moldina.

Ég og Ingeborg erum nýkomin í þetta húsnæði og erum að byggja þetta upp sem eins konar „retreat“. Hugmyndin er að vera með „retreat“ í borginni. Þú kemur eftir vinnu á föstudegi og ert að verja tímanum hérna í nátt­úrunni. Við erum að læra um tauga­kerfið, hugleiða, koma inn við eldinn eða kveikja eld út. Við viljum veita fólki rými til að kúpla sig út úr amstri dagsins. Fólk getur tjaldað, en annars er þetta hugsað til þess að fólk geti skutlast aftur heim og sofið þar og mætt svo aftur snemma næsta dag.

Á landinu er skógur og við viljum finna góðan stað fyrir matjurta­garð og búa til góða mold, því eitt stærsta vandamál sem við stöndum frammi fyrir í dag er lélegur jarðvegur. Jarð­vegurinn er 70-80% lélegri en til dæmis fyrir 1960. Ástæða þess er sú að við erum að nota of mikinn áburð – jarð­vegurinn er ekki í tengingu við vist­kerfið lengur. Ef þú fengir þér eina appelsínu árið 1920 þá þyrftir þú að fá þér þrjár appelsínur í dag til að fá sama næringar­gildi. Allt er svo erfða­breytt og jarð­vegurinn er alltaf að verða veikari,“ segir Arnór.

Arnór og Ingeborg

Meira „workshop“ en jógatími

Arnór býður upp á nokkur námskeið og er eitt af þeim MjaðmaRæs. Hann segir að það sé hans vinsælasti tími. „Það má segja að þessir tímar séu meira „workshop“ en jógatími. Hver tími er tvær klukku­stundir og enginn tími er eins. Á sama tíma er fræðsla um stoð­kerfið.“

Arnór lýsir sér sem „leitandi og finnandi“, sem er sífellt meira á leiðinni inn á við: „Allt sem við upplifum gerist innra með okkur og sem leitandi leita ég að aðferðum sem hjálpa mér að leita dýpra inn á við og í leiðinni leyfi ég öðrum að læra af mér og verða samferða á þessu ferðalagi.“

Arnór leggur mikla áherslu á að kenna fólki að tengjast sjálfu sér á jákvæðan hátt, hann leggur áherslu á að kenna nemendum sínum að finna jákvæðan ásetning og losa sig við hindranir og hömlur. Hann leggur mikla áherslu á að læra að næra sig með jákvæðum hugsunum og góðum ásetningi.

„Ef þú getur treyst því að þú sért í leiðinni í átt að ásetningi þínum; að það þurfi ekki allt að gerast eins og þú hefur hugsað þér. Láta af stjórninni og leyfa sér að vera í flæði.

Við erum nefnilega svo oft föst í vananum. Þess vegna er svo mikilvægt að byrja daginn á því að þjálfa sjálfan sig. Byrja daginn á því að næra sig og ákveða hver ég ætla að vera í dag. Þú ert búinn að finna hvaða vana þú vilt ekki hafa og byrjar þess vegna að veita því athygli sem þú vilt vera. Og því oftar sem þú getur tengt þig yfir daginn því meira ertu á staðnum. Við erum svo vön því að vera í streitu­ástandi. Við erum háð því að fá þetta kortisól streitu­hormón og þar á meðal ég. Og þar af leiðandi þarf ég að fara í slökunar­ástand oft yfir daginn.

Ég mæli með að dagurinn hefjist á öndunar­æfingum sérstak­lega hjá þeim sem eiga erfiðara með að hugleiða. Þegar þú byrjar að gera öndunar­æfinguna þá ertu í núinu og hlustar á andar­dráttinn. Það er til dæmis mjög gott að byrja á því áður en þú færð þér morgun­kaffið og klæðir þig.

Þegar ég var að læra í Taílandi þá vaknaði ég mög snemma á morgnana til að hugleiða og hef sennilega aldrei verið jafn tengdur inn á við, eins og þá.“

Arnór með ungum munki í Kanchanaburi, Taílandi

Öndum stórum skömmtum af íslenskri náttúru

Sumarið 2016 fluttist Arnór út í sveit og varði þar einu ári ásamt góðu fólki. Þar bauð hann upp á Endur­nærandi helgar og leiddi þátt­takendur inn á við í jóga, hugleiðslu, samfloti og öndun ásamt stórum skömmtum af íslenskri náttúru.

Nóvember 2018 kláraði hann kennaranám hjá Guðna Gunnars­syni og er honum afar þakklátur fyrir það tækifæri. Guðni er að sögn Arnórs einn fróðasti og reynslu­mesti kennari sem hann hefur hitt.

Arnór hefur unnið sem þjálfari hjá Primal frá 2018 og segist ekki geta verið partur af betra teymi. Nálgun hans er út frá tauga­kerfinu og stoð­kerfinu og segir hann þessi námskeið vera á algjör­lega öðru „leveli“.

önd­un­ina til að stýra líðan sinni og róa tauga­kerfið með ein­faldri önd­un­ar­tækni

Í desember 2018 lauk Arnór svo kennara­námi í Wim Hof-aðferða­fræðinni og hefur innleitt þá þekkingu í sína kennslu. Wim Hof-aðferðin byggist á þremur stólpum sem eru kulda­þjálfun, öndun og hugleiðsla.

Arnór Sveins­son. Wim Hof-nám­skeið í Naut­hóls­vík­inni. Ljós­mynd­ari: Dukagjin Idrizi

Arnór hefur mikla þekkingu á tauga­kerfinu: „Ég kenni nemendum mínum hvernig þeir geti notað öndunina til að stýra líðan sinni og róa tauga­kerfið með einfaldri öndunar­tækni. Þetta hefur jákvæð áhrif á svefn okkar og almenna líðan yfir daginn.“

Arnór hefur einnig verið að vinna við kakó-hugleiðslu og býður reglulega upp á innri ferðalög með aðstoð kakósins. Hann fór til Gvatemala og lærði að nýta þessa mögnuðu plöntu eins og Mayarnir gerðu og gera, þetta er gert til þess að ferðast dýpra inn í sjálfan sig og tengjast uppruna sínum, að sögn Arnórs.

Þar sem þyngdaraflið sleppir okkur

Ásamt því að vera með tíma hjá Primal Iceland elskar Arnór að vinna úti í nátt­úrunni og nýtir hana til þess að leiða nemendur inn á við. Hann býður þar af leiðandi upp á eins mikið af viðburðum úti í nátt­úrunni og hann getur. Hann er reglulega með útijóga (Snjóga á veturna) og hugleiðslu úti. Svo býður hann reglulega upp á Endur­næringar (retreat) helgar þar sem fólk getur komið og endurnærst í nærandi íslenskri náttúru. Þar leggur hann áherslu á slökun, öndun, samflot og tónheilun í vatni, flot­þerapíu, jóga, hugleiðslu, heilsu­fæði, náttúru­ferðir o.fl.

hjálpað okkur að upp­lifa hluti sem við höfum ekki upp­lifað áður

Ein af þeim þerapíum sem Arnór hefur sérhæft sig í er Flot­þerapía bæði með tónheilun og án. „Flot­þerapía er slökun og sjálfs­heilun í vatni. Vatns­slökun getur haft ótrúlega jákvæð áhrif á heilsu okkar og ég hef sérhæft mig í því að hjálpa fólki á þessu sviði. En í vatninu slökum við algjör­lega á, þar sem þyngdar­aflið sleppir okkur, og með aðstoð heilandi hljóða og undir hand­leiðslu leið­beinanda skapast hið fullkomna ástand fyrir djúp­slökun og jafnvægi.“ Hljóð­heilun er mjög öflug aðferð til slökunar og hugleiðslu, „tíbesku tónheilunar­skálarnar sem ég spila á geta fært okkur enn þá dýpra í hugleiðslu ástandið og hjálpað okkur að upplifa hluti sem við höfum ekki upplifað áður. Heilun með þessari ástundun nærir, róar og gefur einstaka upplifun.“

Vertu eins og þú ert!

Arnór Sveins­son. Ljós­mynd­ari: Jón Ágúst Guð­jón­son. Lónið við Skafta­fells­jökul

„Það að allir eigi að vera með sömu skoðunina er algjör þvæla. Við erum öll alls konar. Hlustum frekar á fólk sem er á öndverðum meiði í staðinn fyrir að loka á það strax og setja upp múra. Góða fólkið er svo réttlátt og ef þú ert ekki sammála því, þá fer það upp á móti og er þá orðið eins og fólkið sem það er að dæma. Við verðum að leyfa fólki að vera eins og það er. Þannig að ef ég er ekki sammála einhverjum um eitthvert viðfangs­efni, þá þarf ég ekki að sannfæra aðra um að annar sé vondur og hafi rangt fyrir sér og eyða orkunni minni í það, ég vil frekar verja orkunni minni í eitthvað skemmtilegra.

Ég elska fólk sem segir hlutina eins og þeir eru og er ekki hrætt við að að særa einhvern. Ef þú spáir í það, þá snýst það alltaf um það hvernig ég bregst við. Þannig að ef ég er ekki sammála einhverjum um eitthvert viðfangs­efni, þá þarf ég ekki að sannfæra aðra um að annar sé vondur og hafi rangt fyrir sér og get eytt minni orku í það. Það er orðið svo mikið svona; þú átt að vera svona og svona, annars ert þú vond manneskja. En það er efni í annað viðtal,“ segir Arnór að lokum.

Við mælum með því að þið kíkið á síðu hans og fylgist með öllu því spennandi efni sem Arnór er að miðla. Við erum sérstak­lega spennt að fylgjast með uppbyggingunni á sælu­reitnum þeirra við Hafravatn.

Arnór er svo með slökunar­tíma alla miðvikudaga í Primal sem eru opnir öllum. Hægt er að skoða tímana hans hér. En einnig er hægt að fylgjast með honum á Instagram, Facebook og á heimasíðu Primal. Ný og flott heimasíða er verða til, en hægt er að fylgjast með honum hér.

www.youare.is

https://www.instagram.com/yoga_arise/

Facebook Arnórs, þar sem hægt er að fylgjast með nýjustu námskeiðum.

Námskeið Arnórs hjá Primal

Primal

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá