Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sál Ingólfs fylgdist með vini sínum hlaupa eftir hjálp: „Það rifnaði upp á mér höfuðkúpan“

Ingólfur Níelsson
Ingólfur Níelsson

Nýjasti gestur bræðranna Gunnars og Davíðs Wiium í hlaðvarps­þættinum Þvotta­húsið er enginn annar er Ingólfur Níelsson. 

Þessi þáttur bræðranna, með Ingólfi er síðasti þátturinn í þríleiknum Sitting Bull sem svo varð mannkyns­frelsarinn. Í fyrsta þættinum  lýsti hann því hvernig hann fór í gegnum mikið ferðalag þjáninga sem svo leiddi hann inn í dauða­reynslu sem hann varð fyrir í fanga­klefa í Kaupmanna­höfn. Dauða­reynslan hafði djúp sálræn áhrif á hann og byrjaði vegferð hans þaðan inn í ljósið eins og hann kallar það. Sá þáttur, sem var númer 17 vakti mikla athygli og má sjá hann og heyra neðst í þessu viðtali.

Ingólfur segir Gunnari frá fyrstu dauða­reynslu sinni en þá var hann ekki nema 13 – 14 ára með vini sínum Friðleifi og fleirum strákum en þeir höfðu stolið traktors­slöngu frá bíla­verkstæði. Þeir gengu með slönguna í kringum Urriða­kotsvatn en þar er fjall sem þá var alveg autt af trjám og kjarri. Þetta var um vetur en þeir félagar notuðu slönguna til að renna sér niður fjallið. Þeir fóru alltaf hærra og hærra upp fjallið og fóru því sífellt hraðar en þar kom að því að þeir misstu stjórnina.

„Við lendum ofan í holu minnir mig og ég slengi höfðinu í klöpp. Það rifnaði upp á mér höfuð­kúpan, 52 spor minnir mig og mér er bara að blæða út þarna“

Þegar strákarnir koma að honum halda þeir að hann sé að fíflast en hann var alveg hreyfinga­laus. Þeir byrjuðu að kasta í hann steinum til að fá hann til að hætta þessum fífla­gangi en hætta því þegar þeir sjá blóðið vella úr höfðinu á Ingólfi.

Friðleifur hljóp af stað til að ná í hjálp á nálægan bóndabæ. Hljóp hann eftir stíg sem kallaðist flótta­mannaleið en segir Ingólfur að sál hans hafi fylgt honum þennan spöl.

„Þegar hann er að hlaupa þarna fylgi ég honum í sálu minni þarna yfir, um leið og hann fer af stað fer sál mín með honum. Líkami minn liggur þarna dauðvona eða aflvana og ég fylgi Friðleifi þennan spotta.“

Ingólfur sá þegar Friðleifur kom að býlinu og sá bóndann sem vann sem kennari í iðnskólanum, fara upp í Rússa­jeppann sinn, hann man litinn á honum og fleiri smáatriði. Bóndinn hringdi fyrst í slökkviliðið og Ingólfur man að hafa séð hann snúa Rússa­jeppanum við en eftir það man hann ekkert.

Ingólfur missti þarna gríðar­lega mikið af blóði og þurft að liggja á spítala í nokkra daga á eftir.

„Það sem ég lærði af þessari reynslu er að vitund eða vitundar­bylgja okkar eru ljóseinda­flæði og því meiri boðefna­magn sem að heilinn fram­kallar í gegnum hugsun því þéttari verað ljós­eindirnar, og því meira af ljós­eindum talar fólk um að þú sért komin með geisla­baug, það geislar af þér og þetta hefur með boðefna­framleiðslu að gera. Þegar þú svo ert að deyja fram­leiðir þú gríðarlegt magn af boðefnum,“ segir Ingólfur og bætir við: 

Ingólfur elskar lífið

„Þetta er gert í kynlífi og víðar þar sem fólk er í gegn um kyrkingar og fleira þar sem fólk er að koma sér inn í dauða­reynslu og fólk er að ná sér í dauða­endorfín sem fram­leiðast í þér þegar þú ert að deyja. Vitundinn er miklu stærra en bara heili, heili er bara starftæki, bara líffæri og er undir miklu álagi hjá okkur og við þetta álag fer starfsemi heilans á yfir­snúning og við þennan yfir­snúning fara tauga­hulstur og allskonar stöff í skallanum á okkur að rotna eða gefa sig og útur því koma alls konar sjúkdómar.“

Hægt er að horfa á þetta magnaða viðtal við Ingólf, í heild sinni hér fyrir neðan. Þá mælir Mannlíf með því að áhuga­samir horfi einnig á hina tvo þættina með Ingólfi en þá má sjá hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt