Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Kristjana stakk nýfætt barn sitt fimm sinnum – Átti barnið með stjúpa sínum

Aðfarar­nótt 6. ágúst árið 1913 fæddi Kristjana Guðmunds­dóttir, 22 ára ógift kona í Furufirði, barn í baðstofu móður sinnar og stjúpa, þeirrar Elínar Jóns­dóttur og Árna Friðriks Jónssonar. Enginn hafði vitað af meðgöngunni og ól hún það án þess að nokkur heimilis­manna vaknaði. Hvað síðan gerðist var púslað saman eftir frásögn Kristjönu, Elínar og Ragn­heiðar Jóns­dóttur, yfirsetu­konu.

Hófu holdlegt samræði

Fimm árum áður, árið 1908 hafði Árni Friðrik, þá 28 ára að aldri, kvænst Elínu, sem var ekkja með fjögur börn, meðal annars Kristjönu. Sumarið 1912 byrjar Árni að stunda „holdlegt samræði” við stjúpdóttur sína, Kristjönu og viðurkenndu bæði síðar að um þrjú slík tilvik hefði verið að ræða.

Kristjana hafði veturinn 1911 til 1912 verið í námi í Reykjavík til yfirsetu og má því teljast makalaust að hún hafi ekki gert sér grein fyrir að hún væri vanfær fyrir en tveimur til þremur dögum áður en að hún ól barnið eins og hún hélt síðar stað­fastlega fram. Í umfjöllun og dómsorði þeirra tíma er hvergi efast um þá full­yrðingu hennar.

Ýtti frá hugsuninni

Kristjana sagði síðar fyrir dómi að þegar hún hafi fundið hreyfingar barnsins hafi hún álitið að töluvert væri eftir af meðgöngunni og hún myndi taka á málunum þegar að fæðingu kæmi. Sagði hún hafa ýtt hugsuninni frá sér en þó hefði henni komið til hugar að sennilega væri best að deyða barnið með að klippa í sundur nafla­strenginn.

Um kvöldið 5. ágúst finnur hún til verkja og ógleði og fæðir barnið um fimm­leitið um morgunin. Sagði hún hjarta barnsins hafa slegið en ekkert hljóð hafi aftur á móti heyrst í því. Sagðist hún hafa gripið til skæra sem lágu á náttborði og ætlað að klippa nafla­strenginn en verið óstyrk og því hefðu skærin runnið til í hendinni á henni og farið í barnið. Við yfirheyrslur síðar sagði hún skærin hafa verið á borðinu af tilviljun en ákæru­valdið dró það mjög í efa. Hvergi er þess getið í heimildum hvors kyns barnið var.

Garnirnar lágu úti

Þegar Elín, móðir hennar, fór á fætur um morgunin sá hún hvar barnið lá í rúminu hjá Kristjönu og var naflastreng­unninn óklipptur. Elín bar vitni um að barnið hefði augljós­lega verið dáið því það var orðið kalt. Ómögulegt er að geta sér til um viðbrögð hennar hvað þá samtal hennar við dóttur sína,  en má ætla að henni hljóti að hafa verið brugðið.  Tók Elín líkið af barninu eftir að hafa klippt á milli, setti í fat og út í skemmu. Var barnið það illa skorið á kvið að garnirnar lágu út. Því næst sendi Elín bróðir sinn með bréf til Ragn­heiðar Jóns­dóttur, yfirsetu­konu á Höfða­strönd og bað hana um að senda krampalyf en best væri þó ef hún kæmi sem og Ragn­heiður gerði.

Ragn­heiður sá strax hvað hafði átt sér stað en sá sér ekki fært vegna kostnaðar að senda sýslu­manni bréf sem hún þó gerði með næstu póstferð sem ekki var fyrr en 20. ágúst, tæpum tveimur vikum síðar. Var þá búið að jarða barnið.

Með fullri ráð og rænu

Sýslu­maður brást skjótt við og lét umsvifa­laust grafa barnið upp og gerði héraðs­læknir líkskoðun. Fundust tvær stungur á hálsi þess og þrjár á kvið. Héraðs­læknir hélt því ennfremur fram að barnið hefði verið fullburða við fæðingu og fæðst lifandi. Hann hafnaði alfarið að barnið hefði kafnað, stungurnar hefðu orðið því að bana. Sýslu­maður hafnaði því einnig að skærin hefði runnið til í hendi Kristjönu með þeim afleiðingum að barnið fékk fimm stungur.

Sýslu­maður taldi að um ásetnings­brot væri að ræða þótt að Kristjana mótmælti því og bar fyrir sig að muna lítið atburði. Sýslu­maður benti þá á hversu vel Kristjana hefði falið fæðinguna í þögn sem sannaði að hún hefði aldrei ætlað barninu líf. Hún hafi ennfremur farið fram á að fá krampalyf frá Ragnheiði sem sýndi að hún hafi verið með fullri ráð og rænu.

Dómur fellur

Þegar Elín fann líkið af barninu kvað Árni bróður sinn vera föður barnsins og fékk hann til að samþykkja það og skrá sig sem föður í kirkjubók. Þegar yfirvöld komu hins vegar að málinu og hófu yfirheyrslur gaf Árni sig og viðurkenndi að hafa barnað stjúpdóttur sína.

Bæði Kristjana og Árni voru kærð fyrir sifjaspell auk þess Kristjana var ákærð fyrir morðið á barninu. Bæði voru dæmd til betrunar­húss­vinnu, Árni í átta mánuði en Kristjana í þrjú ár. Ennfremur voru þau dæmd til að greiða laun talsmanns síns, fimm krónur, svo og laun sækjanda og verjanda, alls fimmtán krónur.

Ekki er að finna heimildir hvað síðar varð um þau Kristjönu og Árna né hvort Elín hafi slitið hjóna­bandinu í kjölfar atburð­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá