Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Aurskriðan sem þurrkaði næstum út heila fjölskyldu: „Það molaðist niður og grófst undir skriðunni“

Þar sem hvíti krossinn er stóð tvílyft steinhúsið.
Þar sem hvíti kross­inn er stóð tví­lyft stein­húsið. Mynd: Har. Hermanss.

Að morgni laugar­dags 19. ágúst árið 1950 varð sá skelfi­legi atburður á Seyðis­firði að aurskriða féll á tvílyft steinhús af miklu afli með þeim afleiðingum „að það molaðist niður og grófst undir skriðunni, sem gekk í sjó fram,“ líkt og því var lýst í Morgun­blaðinu daginn eftir. Í húsinu bjuggu tvær fjöl­skyldur. Voru það hjónin Aðalbjörn Jónsson og Ingibjörg Magnúsdóttir ásamt fimm börn þeirra sem og hjónin Gunnar Sigurðsson og Kristlaug Þorvalds­dóttir og tveir synir þeirra.

Rignt hafði mikið daginn áður en frétta­ritari Morgun­blaðsins á Seyðis­firði, Benedikt Jónasson lýsti því svo: „Hjer byrjaði að rigna laust eftir miðnætti í nótt sem leið og gerði þá stór­rigningu og hjelst hún í alla nótt fram yfir hádegi. Var úrfellir eins og hann verður mestur hjer um slóðir.“

Aðeins lifðu þrír einstaklingar af þeim sem lentu í skriðunni en fimm biðu bana, þar af fjögur börn.

Atburðurinn var reiðar­slag fyrir Seyðis­fjörð eins og gefur að skilja. Blaðið Íslend­ingur
fjallaði um þennan sorgar­atburð þann 23. ágúst 1950. Hér má sjá frásögnina í heild sinni:

Hörmulegt slys

Fimm manns býður bana í skriðu­hlaupi á Seyðis­firði.

Gífurlegt eignatjón varð þar einnig og á ýmsum öðrum stöðum á Austur­landi. Stór­rigningar ollu skriðu­föllunum.

Þau hörmulegu tíðindi gerðust á Seyðis­firði s.l. laugardags­morgun, að aurskriða féll úr Stranda­tindi á yzta íbúðar­húsið á Fjarðar­strönd, með þeim skelfi­legu afleiðingum, að fimm manns beið bana, en tvennt meiddist nokkuð.

Þau, sem fórust, voru Ingibjörg Magnúsdóttir, kona Aðalbjörns Jónssonar á Seyðis­firði, 36 ára að aldri, og fjögur börn þeirra hjóna, þau: Jónína lngibjörg, 18 ára; Baldur Þór, 12 ára; Bragi Már, 6 ára og óskírt stúlku­barn, sex mánaða.

Eina barnið, sem lifir.

Eina barn þeirra hjónanna, Aðalbjörns og Ingibjargar heitinnar, sem nú lifir, Guðrún Sigríður, 15 ára gömul, var einnig í húsinu, þegar skriðan féll á það og fyllti það og braut. Luktist hún inni í rústunum í aurskriðunni, en var grafin upp eftir að hafa verið röska þrjá
klukku­tíma í skriðunni. Hún var eitthvað meidd, en líður nú sæmilega eftir atvikum.

Fólkið ætlaði að yfirgefa húsið.

Vegna hins gengdar­lausa vatns­veðurs, sem gengið hafði, var fólk farið að óttast um að skriður kynnu að falla, og var Aðalbjörn þegar farinn inn í bæinn til þess að ná í bíl til þess að flytja fólk sitt og aðra þá, sem í húsinu voru, burt úr því. Í húsinu bjuggu einnig hjónin
Gunnar Sigurðsson og Kristlaug Þorvalds­dóttir og tveir synir þeirra. Var konan farin úr húsinu og út í rigninguna með yngri soninn um morguninn áður en skriðan féll, en
feðgarnir björguðust, annar eitthvað meiddur.

Annað tjón.

Þegar slík hörmunga­slys sem þetta verða, þá falla minni háttar atburðir í skugga þeirra, en ótal skriður féllu víðs vegar um Austur­land og ollu miklu tjóni á mann­virkjum, en ógerlegt er ennþá að gera sér fullkomlega ljóst hversu miklum fjár­verðmætum tjónið nemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá