Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Regina Hall með ósmekklegt grín á Óskarnum: „Tvöfalda siðgæðið er hlægilegt“

Regina Hall káfar á Josh Brolin
Regina Hall káfar á Josh Brolin Mynd: Daily Mail skjáskot

Leikkonan Regina Hall hneykslaði marga á Óskarnum í nótt með gríni sem þótti jaðra við kynferðis­lega áreitni.

Regina Hall

Óskars­verðlaunin voru haldin í 94 skiptið í Dolby höllinni í Hollywood í nótt að íslenskum tíma. Kynnarnir í ár voru grín­istarnir og leik­konurnar Regina Hall, Amy Schumer og Wanda Sykes. Þóttu þær standa sig yfir höfuð mjög vel enda fagmenn fram í fingurgóma.

Regina Hall hefur þó hlotið mikla gagnrýni margra vegna gjörnings sem hún gerði á sviðinu í gær. Til að mynda talaði breski fjölmiðla­maðurinn Pierce Morgan um tvöfalt siðgæði. En hvað gerði Regina Hall?

Hún tók upp blað með lista yfir nokkra einhleypa og myndar­lega leikara sem voru í salnum og bað þá að koma upp á svið. Þeir Simu Liu, Bradley Cooper, Tyler Perry and Timothée Chalamet mættu upp á svið og virtust ekki alveg vissir um það hvað væri í gangi en brostu þó og tóku þátt í gríninu. Ástæðuna sagði hún vera þá að hún yrði að gera á þeim Covid próf baksviðs. Fullvissaði hún þá um að þetta tæki stutta stund, þeir þyrftu bara að taka af sér grímuna og fötin og svo þyrfti hún aðeins að taka munn­stroku af þeim, með tungu sinni. Hún las einnig upp nafn Euphoria leikarans Jacob Elordi sem er aðeins 24 ára og tók fram að hún vissi að hann væri á „löglegum aldri“ og sagði að hann hefði verið greindur með Covid og að hún þyrfti að taka á honum „djúpt“ PCR próf.

Regina Hall ásamt leik­urum sem hún ætl­aði að Covid prófa bak­sviðs.

Þegar Josh Brolin og Jason Momoa mættu svo til að lesa næstu tilnefningar, var Regina Hall enn á sviðinu ásamt fjór­menningunum sem hún ætlaði að taka Covid próf á. Tilkynnti hún þá að þeir Brolin og Momoa þyrftu einnig að fara í próf og byrjaði að þreifa á þeim báðum til skiptis, með hliðunum á lærum þeirra og á rassi. Þeir tóku vandræða­lega þátt í gríninu og áhorf­endur í salnum hlógu með. En ekki hlógu allir áhorf­endur heima í stofu.

Ekki virt­ust hjónin Mila Kunis og Ashton Kutcher sam­mála um ágæti gríns­ins.

Þó nokkuð var skrifað um þennan gjörning Hall, bæði í fjöl­miðlum á borð við LA Times og  Daily Mail sem og á Twitter. Fjölmiðla­maðurinn frægi, Pierce Morgan er einn af þeim sem gagnrýnt hefur Hall á Twitter og bendir á tvöfalt siðgæði í Hollywood. „Áhugavert að sjá kvenkyns stjörnu segja ósmekk­lega brandara um karlkyns stjörnur og káfa svo á þeim á sviðinu. Ef að karlmaður myndi gera þetta, yrði honum slaufað um leið. Tvöfalda siðgæðið er hlægilegt.“

Twitternotandinn @mariaisalright tók í sama streng og Morgan: „„Covid káfið“ var ekki fyndið og óþægilegt áhorfs. Ef hlut­verkunum yrði snúið við… ímyndið ykkur viðbrögðin. Tvöfalt siðgæði er ekki sætt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt