Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Nýr miðbær Egilsstaða gerir ráð fyrir 160 íbúðum – Opin torg og græn svæði fjarri bílaumferð

Tölvumynd af nýjum miðbæ Egilsstaða
Tölvu­mynd af nýjum miðbæ Egils­staða Mynd: Mulathing.is

Gert er ráð fyrir 160 íbúðum í nýlega staðfestu deili­skipulagi í miðbæ Egils­staða. Þá er einnig gert ráð fyrir verslun og þjónustu á neðri hæðum íbúðanna. Hefur hinn nýji miðbæjar­kjarni hlotið nafnið Straumur en göngu­gatan Ormurinn er þar í lykihlutverki. Auglýsir nú Múlaþing eftir samstarfs­aðilum um uppbygginguna.

Fram kemur á heimasíðu Múlaþings að nú sé hafin uppbygging á nýjum miðbæ á Egils­stöðum og að þar sé gert ráð fyrir 160 íbúðum í bland við verslun og þjónustu. Takmarkið sé að „skapa líflegan miðbæ með opnum torgum og grænum svæðum fjarri bíla­umferð,“ eins og það er orðað á síðunni. Hefur miðbæjar­kjarninn fengið nafnið Straumur og göngu­gatan sem þar má finna mun heita Ormurinn, með vísun í þjóð­söguna um Lagar­fljóts­orminn.

Tölvu­mynd af nýjum miðbæ Egils­staða

Segir einnig á síðu Múlaþings að lagður verður grunnur að fögru og vel byggðu umhverfi með vandaðri miðbæjar­byggð. Þá verði einnig sköpuð aðstaða fyrir verslun og þjónustu sem laðar að íbúa fjórðungsins og ferðamenn. Tengin við farþegar í gegnum alþjóðaflugvöllin á Egils­stöðum og með Norrænu á Seyðis­firði, opnar einnig mjög stór tækifæri í ferða­mennsku að sögn síðunnar.

Héraðs­búar hafa beðið lengi eftir miðbæ á Egils­stöðum en árið 2004 var haldin hugmynda­samkeppni um nýjan miðbæ þar sem arkitekt­stofan ARKÍS vann fyrstu verðlaun. Var deili­skipulag samþykkt árið 2006 en komst aldrei til framkvæmda. Árið 2015 var svo ákveðið að hefja að nýju undir­búning við breytingu á deili­skipulaginu og var þá ARKÍS fengið til að vinna skipulagið í samvinnu við bæjar­stjórn Fljótsdals­héraðs. Frum­drögin voru svo kynnt í stýrihópi ári síðar en árið 2021 var endur­skoðað skipulag samþykkt.

Núver­andi mið­bær Egils­staða

Árið 2015 hófst á ný undir­búningur við breytingu á deili­skipulaginu og var ARKÍS falið að vinna skipulagið í samvinnu við bæjar­stjórn Fljótsdals­héraðs. Ári seinna voru frum­drögin kynnt í stýrihópi og árið 2021 var endur­skoðað skipulag samþykkt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ