Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Launadeila úr hestaheiminum kostar Alendis

Fyrrum starfs­maður krafðist greiðslu vegna meðal annars yfirvinnu, frítöku­réttar og vangoldinna launa

Íslenskur hestur
Íslenskur hestur Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Héraðs­dómur Reykjaness hefur dæmt Alendis ehf. til að greiða Embrek Snæ Arnars­syni, fyrr­verandi tækni­stjóra félagsins, 764.108 krónur vegna vangoldinna launa og orlofs. Upphafleg krafa hans nam rúmlega 1,7 milljónum króna.

Embrek Snær var ráðinn í fullt starf sem tækni­stjóri, eða CTO, hjá Alendis í desember 2023. Starf hans fól meðal annars í sér að stýra útsendingum frá hesta­íþrótta­mótum og tryggja gæði streymis til áhorfenda. Samkvæmt ráðningar­samningi átti hann ekki rétt á sérstakri greiðslu fyrir yfirvinnu heldur skyldi aukið vinnu­framlag jafnað með frítöku.

Hann sagði starfi sínu lausu í maí 2024 og krafðist síðar greiðslu vegna meðal annars yfirvinnu, frítöku­réttar og vangoldinna launa. Dómurinn taldi honum ekki hafa tekist að sanna kröfur vegna yfirvinnu í maí og júní. Tíma­skráningar hans hefðu verið einhliða og komið fram nokkru eftir starfslok.

Öðru máli gegndi um laun fyrir júlí 2024. Alendis hafði greitt Embrek Snæ 187 þúsund krónur fyrir mánuðinn en full mánaðar­laun hans námu 877.625 krónum. Dómurinn taldi gögn málsins sýna að hann hefði verið við störf allan júlímánuð að því marki sem ráðningar­samningurinn kvað á um.

Alendis var því gert að greiða honum 690.625 krónur í vangoldin laun auk 73.483 króna í orlof, samtals 764.108 krónur, ásamt dráttar­vöxtum frá 1. ágúst 2024. Hvor aðili ber sinn máls­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá