Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Julia Fox opnar sig um sambandið við Kanye West: „Ég missti svona sjö kíló þennan mánuð“

Kanye West og Julia Fox. Skjáskot Buzzfeed.
Kanye West og Julia Fox. Skjáskot Buzzfeed.

Leikkonan Julia Fox hefur nú rætt samband sitt við Kanye West opinber­lega í fyrsta sinn.

Fox, sem er þekkt fyrir leik sinn í kvik­myndinni Uncut Gems, átti í stuttu ástar­sambandi við Kanye West frá því í kringum áramótin. Á Valentínusar­daginn, þann 14. febrúar, staðfestu heimildar­menn að sambandinu væri lokið.

Fox segir að sambandið hafi verið eins konar hraðkúrs í frægð fyrir hana, enda sjaldan lognmolla í kringum Kanye West.

Þétt dagskrá banamein sambandsins

Fox gefur í skyn í viðtali við The New York Times að þétt dagskrá og annir þeirra beggja hafi átt stærstan þátt í að sambandið hafi ekki gengið upp.

„Ég gerði mitt besta til þess að láta þetta ganga. Líf mitt var nú þegar þétt pakkað. Hvernig kem ég svona stórum persónu­leika fyrir inn í dagskrá sem þegar er þétt? Þetta gekk bara ekki. Ég missti svona sjö kíló þennan mánuð.“

Fox segist ekki halda að þau hafi verið í formlegu sambandi en hún neitar því að samband þeirra hafi verið sett á svið fyrir athygli. „Það voru tvímæla­laust hlutar af því sem voru raun­verulegir.“

Fox segist hafa slitið sambandinu við West en að það hafi verið á vinsam­legum nótum. Hún segist halda að þau hafi eytt um 15 dögum saman, allt í allt, þar sem þau höfðu bæði mörgum skyldum að gegna.

Engin sviðsetning

Slúður­miðlar vestanhafs hafa ýmsir gefið því skóna að sambandið hafi verið sviðsett og að Fox hafi í raun farið í eins konar atvinnu­viðtal til þess að verða kærasta West. Einnig hefur verið gefið í skyn að hún hafi skrifað undir þagnar­samning. Fox neitar hvoru tveggja stað­fastlega og segir „fáránlegt“ að hún hafi gengist undir ráðningar­viðtal.

Aðspurð segir Fox að sér hafi sannarlega liðið eins og kærustu West, meðan á stuttu sambandinu stóð. „En mér leið líka eins og það væri verið að setja mig í hlutverk kærustunnar hans – að hann væri að ráða mig í hlut­verkið. Hann stjórnaði þessu öllu saman. Þetta var í alvöru eins og bíómynd.“

„Ég fer bara beinustu leið í slagæðina“

Aðspurð hvort hún hafi áhyggjur af því að West opinberi einkamál innan úr sambandi þeirra og samskiptum á samfélags­miðlum, eins og hann hefur gert gagnvart öðrum fyrr­verandi elskhugum, vinum og fjölskyldu­meðlimum, segist Fox ekki halda að West myndi kjósa að opna þær dyr gagnvart henni.

„Ef þú ræðst að mér, mun ég ráðast að þér til baka. Og ég er mjög góð í því að ráðast að fólki. Ég fer bara beinustu leið í slagæðina. Ég held að hann sé ekki nægilega vitlaus til þess að gera það,“ segir Fox.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt