Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að verða við kalli Alþingis um breytingar á lögum um réttindi sjúklinga varðandi beitingu nauðungar. Að ósk hans hefur frumvarpið því verið tekið af dagskrá þingsins og mun hann setja á fót samráðshóp sem mun koma með tillögur og breytingar á frumvarpinu, segir á vef stjórnarráðsins.
Eftirtöldum aðilum verður meðal annarra boðið að tilnefna fulltrúa í samráðshópinn:
- Geðhjálp
- Hugarafli
- Landsambandi eldri borgara
- Þroskahjálp
- Öryrkjabandalaginu
Frumvarpið var lagt fyrir Alþingi á síðasta löggjafarþingi vegna athugasemda sem umboðsmaður Alþingis gerði í kjölfar eftirlitsheimsókna á lokaðar deildir geðsviðs Landspítala haustið 2018 á grundvelli svokallaðs OPCAT-eftirlits. Einnig var með frumvarpinu brugðist við athugasemdum frá nefnd Evrópuráðsins um varnir gegn pyndingum sem hefur ítrekað bent á skort á skýrum lagaramma er viðkemur beitingu hvers kyns nauðungar á heilbrigðisstofnunum hér á landi, ekki síst til að draga úr hættunni á beitingu ómannúðlegrar meðferðar.
Frumvarpið var tekið til umfjöllunar í velferðarnefnd en náði ekki fram að ganga. Velferðarnefnd lagði til nokkrar breytingar á frumvarpinu og var því breytt til samræmis við þær og lagt fram á Alþingi nú á vorþingi. Hefðbundið samráð var viðhaft við undirbúning frumvarpsins, og var það almennt mat þeirra sem tóku þátt í samráðsferli um það og skiluðu inn umsögnum að frumvarpið feli í sér mikilvæga réttarbót fyrir sjúklinga með skýrari lagaumgjörð um hvaða skilyrði m.a. varðandi verklag, skráningu og eftirlit þurfi að uppfylla ef ekki verður hjá því komist að beita þvingaðri meðferð í heilbrigðisþjónustu.
Ljóst er að frumvarp til breytinga á lögum um sjúklinga sem lýtur að nauðung verður ekki lagt fyrir Alþingi fyrr en næsta haust, að undangengnu því samráðsferli sem ráðherra hefur nú ákveðið.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir