Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Fólk lendir í ruslflokki hjá Creditinfo þrátt fyrir vafamál hjá Motus: „Ég er bara manneskja, sko“

Lánshæfismat einstaklings hrapar hjá Creditinfo þegar viðkomandi fær rukkun frá innheimtu­fyrirtæki á borð við Motus og er settur í vöktun. Þetta er óháð því hvort deilur séu um réttmæti reikningsins. Fólk getur því lent í skertu lánshæfis­mati vegna tilhæfu­lausra reikninga. Þetta getur haft mikil áhrif ef fólk er að reyna að kaupa fasteign, að endur­fjármagna eign eða í annars konar viðskiptum.

Blaða­maður Mannlífs sendi fyrir­spurn á Motus um verkferla varðandi innheimtu og vaktanir sem settar eru á þegar fólk greiðir ekki reikningana fljótt og örugglega. Blaða­maður spurði meðal annars hvort hægt væri að senda reikning á hvern sem er, fyrir hverju sem er, og fá Motus til að sjá um innheimtuna, án þess að Motus kannaði sérstak­lega réttmæti reiknings.

Tilgreint var dæmi þar sem reikningur fór í innheimtu hjá Motus en sá sem fékk kröfuna taldi reikninginn ekki eiga rétt á sér og fór með málið fyrir Kærunefnd vöru- og þjónustu­kaupa. Þrátt fyrir að hafa greint Motus frá því var viðkomandi aðili settur í vöktun og hrapaði niður flokka í lánshæfis­mati hjá Creditinfo. Þegar viðkomandi spurði hvort hægt væri að greiða kröfuna og fá hana svo endur­greidda ef kæru­nefndin úrskurðaði honum í vil, voru svörin á þá leið að ekki væri hægt að ábyrgjast það; með því að greiða reikninginn væri viðkomandi að staðfesta réttmæti hans.

Þess ber að geta að nokkuð basl er að komast í samband við Motus símleiðis. Símsvarinn er langur og flókinn, og nánast óskiljanlegt hvað skal velja til þess að komast í samband við lifandi manneskju. Aldrei er bent á skipti­borð og fólki ítrekað vísað á heima­síðuna. Mannlíf hefur áður unnið fréttir sem tengjast fyrir­tækinu og afar langan tíma tók að komast í samband við einhvern, þrátt fyrir ítrekaða tölvu­pósta og símtöl.

Fljótlega eftir að blaða­maður sendi tölvupóst á stjórn­anda innan Motus barst hins vegar símtal frá lögmanni vegna fyrir­spurnarinnar.

Motus bendir á Creditinfo

Lögmaðurinn byrjaði á því að segja að starf lögmanna væri að vera á milli aðila sem ættu í deilum. „Flest okkar eru að reyna að leysa hluti en svo gengur það svona mismun­andi,“ sagði hann.

„Þegar það er ágrein­ingur og við erum með mál í fanginu þá þurfum við að fylgjast með hlutum eins og því sem er að gerast hjá Creditinfo. Ef ágrein­ingur er uppi, þá er látið vita af því til Creditinfo. Engu að síður láta þeir það hafa áhrif á lánshæfis­matið.“

Lögmaðurinn sagði að einhvern veginn yrði innheimtu­fyrirtækið að vinna sína vinnu.

„Ef við gerum þetta ekki, þá erum við að bregðast okkar skjólstæðingum. Það að við séum með einhvern á vakt er eitthvað sem Creditinfo ákveður að skipti máli.“

Hann sagði að í málum sem þessum fái Creditinfo að vita að um ágreining sé að ræða. „Af hverju eru þeir að láta það hafa áhrif á lánshæfis­matið ef tveir einstaklingar eru að rífast um það?“

Hann sagði að innheimtu­fyrirtæki eigi að láta Creditinfo vita ef um ágreiningsmál sé að ræða. Það séu ákveðnar aðferðir sem séu í verk­ferlum. „Við megum skrá viðkomandi á vanskila­skrá þegar við erum búin að birta greiðslu­áskorun eða birta stefnu, eða þegar kominn er dómur. En síðan, þegar það er ágrein­ingur, þá tökum við þá skráningu út. Þá á það ekki að hafa áhrif lengur, skráningin sem slík. Hins vegar er vöktunin ennþá til staðar, vegna þess að ef við vöktum ekki þá vitum við ekkert hvað er að gerast, hvort það kemur innköllun eða eitthvað annað. En aftur á móti ákvörðunin að það sé síðan að markera fólk, það er Creditinfo, ekki í sjálfu sér okkar.“ 

Hvað varðar fyrir­spurn um það hvort hvað sem er sé tekið til innheimtu sagði hann að reynt sé að flokka það. „Því ekki vill maður alltaf vera með glataðan málstað heldur vill maður frekar vera í vinnings­liðinu. En auðvitað getum við ekki alveg stimplað það út að við séum ekki stundum með eitthvað sem er ekki gott og ef þú fylgist með heimasíðu dómanna, þá eru þetta miklar sveiflur. Maður veit aldrei hvort maður er með góðan málstað. En við auðvitað reynum að taka ekki einhverja dellu í innheimtu vegna þess að við viljum vera að vinna vinnu sem skilar árangri en ágrein­ingurinn getur átt full­kominn rétt á sér.“

Motus og Lögheimtan

Blaða­maður spurði næst út í tengsl Motus og Lögheimtunnar. Mörg dæmi eru um að mál byrji í innheimtu hjá Motus en séu síðan flutt yfir til Lögheimtunnar. Aðspurður sagði lögmaðurinn að ekki væri um að ræða sama fyrir­tækið heldur vinni fyrir­tækin tvö saman. Hann útskýrði að Lögheimtan væri lögfræði­fyrirtæki en Motus milli­innheimtu­fyrirtæki. Þannig flytjist reikningar frekar yfir til Lögheimtunnar sem stefni ef til vill í dómsmál. „Lögheimtan sinnir innheimtum fyrir dómstólum og sýslu­mönnum.“

Þegar þarna var komið sögu kom í ljós að lögmaðurinn starfar hjá Lögheimtunni, ekki Motus. „Fólk samsamar þetta oft mikið, enda erum við á sama staðnum.“ Þegar blaða­maður furðaði sig á því að hafa sent tölvupóst á stjórn­anda hjá Motus en fengið símtal frá starfs­manni Lögheimtunnar var svar hans: „Þú færð símtal frá mér. Ég er bara manneskja, sko.“ Aðspurður frekar um það hvernig þetta fyrir­komulag virkaði hjá þeim sagði hann fyrir­tækin einfald­lega vinna saman. „Við erum hér í sama húsi og ég tók ákvörðun um að hringja í þig vegna þess að ég hélt að þig vantaði upplýsingar. Mér fannst það ekki flókið í sjálfu sér.“ Þegar honum var bent á að ef til vill væri erfitt fyrir leikmann að átta sig á fyrir­komulagi fyrir­tækjanna þegar tölvu­póstur væri sendur á Motus og símtal bærist frá Lögheimtunni, þrátt fyrir að ekki væri um að ræða sama fyrirtæki sagðist hann líka starfa fyrir Motus. „Ég starfa fyrir bæði félögin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá