Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Skoða lífsstílsþætti hjá stórum hópi Íslendinga: „Frá vöggu til grafar“

Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent í næringarfræði, sem vinnur ásamt samstarfsfólki sínu að því að greina hvað þættir í lífsstíl okkar geta tryggt farsæla öldrun eins og það er kallað. MYND/Kristinn Ingvarsson
Ólöf Guðný Geirs­dóttir, dós­ent í nær­ing­ar­fræði, sem vinnur ásamt sam­starfs­fólki sínu að því að greina hvað þættir í lífs­stíl okkar geta tryggt far­sæla öldrun eins og það er kallað. MYND/Kristinn Ingv­ars­son Mynd: KRISTINN INGVARSSON / Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson

Ólöf Guðný Geirs­dóttir, dósent í næringar­fræði, vinnur ásamt samstarfs­fólki sínu að því að greina hvaða þættir í lífsstíl okkar geta tryggt farsæla öldrun.

„Að eldast með reisn þýðir að eiga gott og gefandi líf alla ævi, helst í sjálf­stæðri búsetu. Hérna skiptir máli að eiga gott líf helst alla ævi en ekki endilega sem lengsta ævi. Því er það svo mikilvægt að halda góðri heilsu, bæði líkamlegri, andlegri og félagslegri, sem er talin vera undir­staða þess til að geta notið lífsins,“ segir Ólöf í samtali við Háskóla Íslands.

Lífslíkur Íslendinga hafa aukist jafnt og þétt undan­farna áratugi samfara framförum í samfélaginu. Tölur Hagstofunnar sýna að bæði meðal­karlinn og meðal­konan á Íslandi geta vænst þess að ná yfir 80 ára aldri, sem er með því mesta sem gerist í Evrópu. Þá hefur barn sem fæðist í dag meiri líkur en minni á að verða 100 ára. Þessi hækkandi meðal­aldur þjóðarinnar hefur beint sjónum vísinda­manna að ýmsum þáttum sem snerta fjölgun aldraðra í samfélaginu, þar á meðal áhrifum fjölgunarinnar á félags- og heilbrigðis­kerfi og leiðum til þess að tryggja að sem flestir geti elst með reisn.

„Með því að skoða langtímaspá­gildi fyrir þær heilsufars­legu breytur, s.s. líkamlega og andlega færni, sem hægt er að hafa áhrif á með lífsstíls­breytingum er mögulega hægt að hafa áhrif á þætti sem gætu skipt máli varðandi farsæla öldrun,“ bætir Ólöf við.

Gagnagrunnur byggður á áratugarannsóknum á heilsu Íslendinga

Í rann­sókninni er að sögn Ólafar ætlunin að byggja upp gagna­grunn sem inni­heldur fæðingar­skrá Íslendinga og gögn úr hinn umfangs­miklu Reykjar­víkur­rannsókn Hjarta­verndar, sem hófst fyrir meira en 50 árum og hafði m.a. það markmið að kanna áhættu­þætti hjarta- og æðasjúkdóma hjá stórum hópi Íslendinga. Einnig verða gögn úr Öldrunar­rannsóknum Hjarta­verndar, sem nefnast AGES 1 og AGES 2, nýtt en þar hefur einstaklingum úr Reykjar­víkur­rann­sókninni verið fylgt frekar eftir.

„Að lokum verða upplýsingar um RAI-vistunarmat sömu einstaklinga sett in í gagna­grunninn,“ segir Ólöf og vísar þar til alþjóð­legs og yfirgrips­mikils tækis til að leggja mat á þarfir og heilsu fólks á hjúkrunar­heimilum.

Þarna er því verið að skoða lífsstíls­þætti hjá afar stórum hópi Íslendinga frá fæðingu nánast til lífsloka.

„Þannig mun verkefnið veita upplýsingar um þá þætti sem hægt er að hafa áhrif á og geta spáð fyrir um farsæla öldrun. Sérstak­lega verða skoðaðir lífsstíls­þættir eins og líkams­samsetning, hreyfing og mataræði og hvaða áhrif þessar breytur hafa á vitræna getu, hreyfi­færni, sjúkdóma og sem forvörn fyrir vistun á hjúkrunar­heimili,“ segir Ólöf enn fremur og bætir við að von sé á fyrstu niður­stöðum á vordögum í samtali við Hí.

„Frá vöggu til grafar“

Ólöf bendir á að kostnaður vegna hjúkrunar­heimila fara vaxandi hér á landi og er nú áætlaður yfir 20 milljarða á ári. Því er til mikis að vinna að finna þá áhættu­þætti sem tengjast heilsu fólks og ekki síður þá þætti sem hægt er að hafa áhrif á og styðja við farsæla öldrun „frá vöggu til grafar“ eins og hún orðar það.

„Ef við getum sýnt fram á hvaða þættir í lífsstíl fólks hafa jákvæð áhrif á farsæla öldrun og hverjir hafa neikvæð áhrif getum við sett fram ráðleggingar sem gætu komið í veg fyrir ótímabært andlegt og eða líkamlegt færnitap fólks og um leið jafnvel sett tón fyrir forvarna­stefnu stjórn­valda í þessum efnum.

Þetta myndi ekki aðeins auka lífsgæði hvers og eins einstaklings heldur má leiða líkur að því að kostnaður við heil­brigðis- og/eða öldrunar­þjónustu myndi ekki aukast með auknum fjölda aldraða í samfélaginu heldur jafnvel minnka til framtíðar,“ segir Ólöf um ávinning rann­sóknarinnar.

Hægt er að lesa fréttina í heild sinni HÉR.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá