Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Glúmur ætlar ekki að taka þátt í þessu bulli: „Síðan hvenær má fólk ekki lifa eðlilegu lífi“

„Ég er alveg hættur að skilja íslenskt samfélag. Síðan hvenær má fólk ekki lifa eðlilegu lífi og taka þátt í samfélaginu á meðan grunur leikur á?“

Þetta segir Glúmur Baldvinsson, oddviti Frjáls­lynda lýðræðis­flokksins í síðustu Alþingis­kosningum, á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hann viðtal RÚV við Arnar Svein Geirsson, forseta leikmanna­samtaka Íslands, að umtals­efni en í viðtalinu sagði hann það mjög óeðlilegt að Eggert Gunnþór Jónsson, fyrr­verandi lands­liðsmaður í knatt­spyrnu og leikmaður FH, hafi verið í byrjunar­liðinu í fyrsta leik liðsins gegn Víkingi í Bestu deildinni í fyrra­kvöld.

Eins og komið hefur fram hefur Eggert sætt rannsókn vegna meints kynferðis­afbrots árið 2010. Eggert hefur stað­fastlega neitað sök en málið var sent frá ákæru­sviði lögreglu til hérðassaksóknara fyrir skemmstu. Sú ákvörðun að láta Eggert spila umræddan leik hefur verið gagnrýnd víða og sagði Arnar Sveinn í umræddu viðtali:

„Ef leikmaður er undir opinni lögreglu­rannsókn eða rannsókn hjá yfir­valdinu um einhvers konar ofbeldis­brot þá þykir okkur það sjálfsögð og eðlileg krafa að leikmaður sé ekki að spila á meðan að staðan er þannig.“

Glúmur er ekki sáttur við þessa nálgun og spyr á Facebook-síðu sinni hvort ekki þurfi að sanna sekt lengur áður en fólkið er refsað.

„Ætlum við öll að taka þátt í að dæma bræður og systur fyrirfram? Ætlum við öll að taka þátt í þessum múgæsingi og meðvirkni? Viljum við sem samfélag Njáls og norna­brennur eða viljum við endur­heimta réttar­ríkið og siðmenntað samfélag? Ætlum við öll að skunda sem fjöl­skylda með barna­börnin á Þingvelli til að skemmta okkur með ís með dýfu yfir aftökum sautjánda júní?,“ spyr Glúmur. Hann endar færslu sína á þessum orðum:

„Sjálfur ætla ég ekki að taka þátt í þessu bulli og setjast í dómara­sætið.

Ef að þjóðinni sem heild finnst svona í lagi þá er hún huglaus þjóð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá