Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Fullyrðingar úr nærumhverfi: „Það er ekki rasismi á Íslandi, þið eruð að ímynda ykkur þetta“

Gabríel Douane Boama, strauk úr gæslu­varðhaldi í lok apríl. Í kjölfar þessa máls spruttu upp spurningar hvar við stöndum sem samfélag þegar kemur að rasisma á Íslandi.

Snorri Sturluson, skrifar pistil inn á Karl­mennskan. Á síðu Karl­mennskunnar segir að markmiðið verk­efnisins sé að varpa ljósi á íhalds­samar ráðandi karlmennsku­hugmyndir, hreyfa við þeim, skapa jákvæðri karl­mennsku frekari sess og styðja í leiðinni við jafnrétti í íslensku samfélagi.

„Það er ekki rasismi á Íslandi“ 

Í kjölfar þessa máls segir Snorri að hann hafi rekið sig á eftir­farandi full­yrðingu í sínu nærumhverfi og lesið á vefmiðlum:

„Það er ekki rasismi á Íslandi, þið eruð að ímynda ykkur þetta.“

Og segir ennfremur að á baki þessari full­yrðingu býr ekki bara þekkingar­leysi heldur líka afneitun og gaslýsing á veruleika hörunds­dökks fólks í okkar samfélagi.

Í pistlinum sínum lýsir hann því að: „hann hafi oftar en einu sinni og oftar en tvisvar heyrt svart fólk lýsa því að það sé bara eitt verra en yfir­lýstir rasistar en það er fólk sem veit ekki, eða viðurkennir ekki, að það hafi kynþátta­fordóma, hegðar sér samt á fordóma­fullan hátt og neitar svo að viðurkenna það þegar því er bent á það.

Fólk sem segir „það er ekki rasismi á Íslandi“ er oft fólk sem veit ekki að það býr yfir kynþátta­fordómum, eða neitar að horfast í augu við það. Það þarf ekki annað en að opna kommenta­kerfin til að sjá að það er nóg af rasisma á Íslandi.“

Viðbrögð samfélagsins eru afneitun

Snorri bendir einnig á að: „þegar þolendur rasisma segjast verða fyrir fordómum og viðbrögð samfélagsins eru afneitun, er það gaslýsing á upplifun þolandans og meðvirkni með gerandanum. Samfélagið kýs frekar að afneita upplifun þolandans heldur en að viðurkenna að um kynþátta­fordóma sé að ræða því ef við viðurkennum samfélags­legan rasisma þá erum við í leiðinni að viðurkenna eigin sekt.

Sem hvítt fólk ölumst við upp við að vera að meðaltali ríkari, valda­meiri, betur menntuð og með lengri lífslíkur en samferða­fólk sem eru dekkri á hörund. Þetta eru allt stað­reyndir sem hægt er að sýna fram á á tölulegan hátt. Við erum alin upp við lúmska yfirburðar­hyggju og við erum flest haldin henni í einhverju mæli en gerum okkur fæst grein fyrir því. Enda er oft erfitt að sjá eigin forréttindi og yfirburða­stöðu.

Í hvert skipti sem við gerum lítið úr eða afneitum upplifun og reynslu hörunds­dökks fólks af kynþátta­fordómum gaslýsum við þau, brjótum traust þeirra og aukum bilið á milli okkar.

Hlustum á og trúum upplifun og reynslu minnihluta­hópa. Það er fyrsta skrefið í átt til jafnara og fordóma­lausara samfélags.“

HÉR er hægt að lesa pistilinn í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá