Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Deilt um verklag matsmanna í forsjármálum: „Þetta er bara svartur blettur á okkur“

Héraðsdómur Reykjavíkur. Mynd / Aldís Pálsdóttir|Ragnar Þór Ingólfsson
Hér­aðs­dómur Reykja­víkur. Mynd / Aldís Páls­dóttir|Ragnar Þór Ing­ólfs­son

„Gott að þú sért að skoða þetta,“ sagði reyndur sálfræðingur á dögunum í samtali við Mannlíf er hann var spurður út í áreiðanleika persónu­leika­prófa. Sálfræðingurinn vill ekki láta nafn síns getið af persónu­legum ástæðum en sagði hann persónu­leika­próf vera hluti af þörf fólks fyrir að skilgreina en má rekja hana aftur til forn­grikkja. Þar var kenningin sú að hægt væri að greina karakter út frá útliti fólks en á nítjándu öld tók við önnur kenning, svokölluð höfuðlags­fræði.

„Þeir töldu sig geta mælt stöðu augna og eyrna upp á milli­metra og út frá þessu var hægt að sjá fyrir um persónu­leika fólks,“ sagði hann og bætti við að eitt sinn hafi vísindin verið svona en nú til dags sé hlegið af þessu.
„Nú á 20. öldinni er farið að spá fyrir með persónu­leika­prófum, þessi próf eru öll þannig að þetta er bara glás af spurningum, þær eru lagðar fyrir stóran hluta fólks og ur því verða til einhver viðmið. Það eru svo þessir svar- prófílar og viðmið byggð á þeim sem eru notuð – þar með talin í forsjár­málum.“

Sagði hann staðreyndina vera að notkun prófanna gríðar­lega umdeilda.
„Við getum ekki slegið neinu föstu til dæmis um foreldra­hæfni, tel ég.“
Taldi hann einnig mikilvægt að hafa það hugfast að megin deilan innan persónu­leika­sálfræðinnar væri hvort að persónu­leika­þættir séu stöðugt fyrirbæri. Sem dæmi varpaði hann fram þeirri spurningu hvort niður­staða persónu­leika­prófsins yrði sú sama ef einstaklingur tæki prófið í dag og svo aftur eftir 10 ár.

„Það er enginn botn kominn í þessa deilu, hversu stöðugt fyrirbæri er persónu­leiki og það er mjög margt sem bendir til þess að hann sé óstöðugur“.
„Þegar þú ert að tala um þetta út frá forsjár­hæfnis­mötunum, hvaða áhrif hefur það á það hvernig persónu­leiki konu mælist ef hún hefur búið við það að vera barin í 10 ár. Hvernig kemur það út a svona prófi og er það að hafa orðið fyrir ofbeldi með barninu talið gegn henni?“.

Ekkert persónu­leika­prófanna hefur verið staðlað á Íslandi og taldi sálfræðingurinn prófin ekki eiga erindi í forsjár­hæfnideilum.

„Er þetta relevant í forsjár­hæfnisdeilu? Stutta svarið við því er bara nei og þá komum við að því sem er að mínu mati mjög gagnrýni­vert við kollega mína sem eru að gera þessi möt og réttar­farið í kringum mötin.“

Dóms­kvaddir matsmenn.
„Þá er sálfræðingur og stundum geðlæknir, í raun komin með völd dómara og það er ekkert eftirlit með því hvernig þeir gera þetta, það er ekkert eftirlit með því hvaða  tæki þeir nota og dómstóllinn er síðan ekki með neinar forsendur til þess að yfirfara vinnu­brögðin, þetta er alveg kreisí,“ sagði hann en á 17 ára ferli sínum hefur hann unnið með ótal mörgum bæði á geðdeild, heilsu­gæslu og fleiri stöðum.
„Ég er bara búinn að hitta  svo margt fólk sem að segir farir sínar ekkert sléttar af samskiptum við þessa matsmenn.“
„Einhver sem hittir konu í tveggja tíma viðtali og slær því svo á fast eftir þetta viðtal að hún sé border line – hann getur það ekki. Fyrir utan það að við erum hægt og rólega að hætta að nota hana(border line greininguna).“
„Réttargæslu­kerfið er mikil mjólkurkýr fyrir þennan hóp sérfræðinga, þannig að þetta er bara svona kimi í réttar­kerfinu sem enginn sér inn í og það eru ekki samræmd vinnu­brögð eða neitt,“ bætti hann við að hann myndi ekki vilja snerta þetta með priki.

Sálfræðingurinn sagði að þunglyndi, áfalla­streitu­röskun og álíka sjúkdóma eða greiningar væri hægt að meðhöndla og ættu ekki að ráða úrslitum um foreldra­hæfni.

„Bottom line-ið er þetta – Það á sér stað viðtal og þetta viðtal er alltof stutt og alls ekki nægilega ítarlegt til þess að út úr því komi fullnægjandi mat á forsjár­hæfni. Og hvað er þá gert? Þá er lagt fyrir próf, út úr því koma staðlaðar niður­stöður en niður­staðan er síðan túlkuð til þess að ljá því meiri trúverðug­leika sem að hafi þegar verið ákveðið, þetta er svona spákonu effect.“

Segir aðferðina vera svartan blett á stéttinni.
„Þetta er bara svartur blettur á okkur, að gera þetta svona. Það er gott það er verið að taka þetta upp. Það er svo sorglegt og merkilegt hvað þetta gengur hægt,“ sagði hann og hrósaði þeim baráttu­samtökum sem hafa barist fyrir konum sem þolendum ofbeldis og einnig þeim sem rýna í mál eins og þessi.

„Hópur sálfræðinga á Íslandi er svo lítill og þegar maður fær upplýsingar um að einhver sem maður treysti alveg sé bara ekki traustsins verður –  þetta er bara eins og þegar kemur upp einhver skandall í fjöl­skyldunni. Ekki það að ég myndi aldrei velja að standa með matsmanni sem er að gera eitthvað svona hæpið.“
Sagði blaða­maður það gleðiefni að fólk skoði þessi mál og þá sérstak­lega þeir sem þekkja til.
„Þetta er stækkandi hópur sem er alveg búinn að fá nóg af þessu. Þetta mjakast,“ sagði hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá