Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Willum hættir við afglæpavæðingu neysluskammta og Halldóru brugðið: „Langar mest að fara að gráta“

Samsett mynd
Samsett mynd

„Ég kann ekki að setja í orð vonbrigði mín en langar mest að fara að gráta,“ segir Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata en hún segir þetta án skýringa. Þetta hafi komið fram í morgun þegar þingmenn fengu í hendur uppfærða þing­málaskrá en þar kemur fram áætlun ráðherra um hvaða mál þeir ætla að leggja fram.

Willum Þór Þórsson heilbrigðis­ráðherra er búinn að setja fyrir­hugað frumvarp sitt um afglæpa­væðingu neyslu­skammta á salt. Halldóra sem barist hefur fyrir laga­breytingu í þá átt, á vart orð til að lýsa vonbrigðum sínum.

Skilur ekki hvar andstaðan við málið liggur

Halldóra segir að meirihlutinn hafi þannig drepið fullt af sínum eigin málum og þetta hafi verið eitt þeirra.

Halldóra segist ekki gera sér fyllilega grein fyrir því hvar andstaðan við málið liggi, hvar fiskur sé undir steini en skoðana­kannanir hafi sýnt að um 60 prósent þjóðarinnar eru á því að gera breytingar enda liggi fyrir að núverandi stefna sé stór­skaðleg.

Málið fellt niður

„Þar kemur fram að búið er að fella málið niður,“ segir Halldóra í samtali við Vísi. Þetta séu gríðarleg vonbrigði. Hún segist vera með sitt mál í heilbrigðis­nefnd til umfjöllunar og búið er að fá inn fyrstu gesti.

„En það er svo auðvelt fyrir stjórnar­liða að neita að afgreiða okkar mál, Pírata, með þeim rökum að heilbrigðis­ráðherra ætli að leggja fram frumvarp,“ segir Halldóra sem er farin að þekkja það ferli, of vel. Eða er ekki bara verið að drepa málið?

„Jahhh, þetta hefur gerst áður, líka þegar Svandís Svavars­dóttir var heilbrigðis­ráðherra á síðasta kjör­tímabili. Þau létu málið sofna inni í nefnd. Ég barðist fyrir því að fá málið út úr nefndinni en það var ekki áhugi fyrir því að fá málið þaðan þó klárlega væri búið að taka það til meðferðar í nefndinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá