Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íslenska móðirin aldrei dæmd fyrir ofbeldi – Norskir dómstólar þekktir fyrir brot á barnasáttmála

Höfuðborg Noregs, Osló. Myndin tengist Baksýnisspeglinum óbeint.
Höf­uð­borg Noregs, Osló. Myndin teng­ist Bak­sýn­is­spegl­inum óbeint.

Mál íslensku móðurinnar sem flutti syni sína þrjá frá Noregi hefur vakið mikla athygli bæði þar á landi og heima á Íslandi.

Málið má teljast furðulegt en ekki er algengt hér á landi að foreldri sé sviptur umgengni líkt og þarna á við en móðirin fær að hitta syni sína í 16 klukku­tíma á ári, undir eftirliti. Lögfræðingur konunnar stað­festir í samtali við Mannlíf að hún hafi aldrei verið dæmd fyrir neinskonar ofbeldis­brot né þekkt fyrir neina slíka hegðun. Þeir sem þekkja til konunnar segja í samtali við Mannlíf að hún sé góð móðir.

Móðirin skyldi við barns­föður sinn árið 2015 en þau bjuggu saman í Noregi með börnin sín fimm. Faðirinn vann í Finnlandi á þeim tíma og voru börnin því nánast bara hjá móður sinni, samkvæmt lögfræðingnum. Móðirin fór svo með börnin til Íslands, með leyfi föðurs. Faðirinn vildi svo hafa börnin hjá sér og fór í mál. Norskir dómstólar dæmdu honum í vil.

Barna­vernd í Noregi er bæði þekkt fyrir að grípa of seint inn í mál vanræktra barna og fyrir að taka of hart á þeim málum sem þeir grípa inn í.

Nýlega var tekið upp mál á norska þinginu þar sem lagt var til að börn í Noregi fengu þann rétt að skjóta máli sínu til barna­nefndar sameinuðu þjóðanna finnist þeim brotið á sér í Noregi á grund­velli Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna, það var fellt á þingi með 80 atkvæðum gegn 21.

„Í máli umbj. míns eiga börnin alla sína stór­fjölskyldu, líka föðurmegin, á Íslandi en ekkert bakland í Noregi. Móðurmál þeirra og foreldranna er íslenska. Hagsmunum þeirra er augljós­lega betur borgið á Íslandi en í Noregi sökum þessa. Rétturinn til að þekkja fjöl­skyldu sína er betur tryggður á Íslandi. Ákvörðun norskra dómstóla um umgengni móður er skýrt brot gegn 8. gr. MSE. Réttindi barnanna yrðu augljós­lega frekar virt á Íslandi. Auk þess á faðir barnanna auðvelt með að flytja til Íslands. Systur strákanna munu eiga heima á Íslandi og ákvörðun norskra dómstóla er til þess fallin að sundra fjöl­skyldunni, sem aftur er skýrt brot gegn 8. mgr. MSE, sem og Barna­sáttmála Sameinuðu þjóðanna auk annarra íslenskra laga. Fjöl­skyldan sameinast hins vegar á Íslandi. Mál tengd föður eru til rann­sóknar hjá lögreglu á Íslandi. Umbj. minn telur að hagsmunum barnanna sé óumdeilt best borgið á Íslandi,“ segir lögmaður móðurinnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá