Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Íbúar miðborgarinnar vilja færa skemmtanalífið út á Granda: „Við krefjumst svefnfriðar“

Íbúar í miðborg Reykja­víkur eru ósáttir með hávaða sem myndast frá skemmtistöðum og börum á svæðinu. Stofnaður hefur verið Facebook hópur undir nafninu Kjósum hávaðann burt: „Andóf íbúa og annarra hagsmuna­aðila í miðbænum gegn hávaða frá næturlífi,“ stendur í lýsingu hópsins. Einnig hefur verið gerður undir­skriftar­listi þar sem mótmælt er að barir og kráir komist upp með það að „blasta tónlist“:

„Við sem eigum heima í miðborg Reykja­víkur, hótel- og gististaða­eigendur og allir aðrir sem eiga hagsmuna að gæta mótmælum harðlega að barir og krár komist upp með það að blasta tónlist út á götu og spila dúndrandi dansmúsík fram til hálf fimm á morgnana í miðri íbúabyggð án þess að yfirvöld aðhafist nokkuð í málinu. Um hverja helgi megum við þola yfir­gengilegan hávaða frá þessum stöðum, sem heldur vöku fyrir fólki og spillir heilsu þess. Slíkir barir skipta orðið tugum í miðbænum og eru margir þeirra í raun diskótek í húsa­kynnum sem uppfylla engan veginn þær kröfur sem Heilbrigðis­eftirlit Reykja­víkurborgar gerir til hljóð­einangrunar.“

Við í miðbænum krefjumst þess tafar­laust:

  • að íbúar miðborgarinnar sitji við sama borð og aðrir borgar­búar;
  • að þar til bær yfirvöld framfylgi þeim lögum og reglum sem í gildi eru;
  • að gerð sé sú krafa til kráa og skemmtistaða að hljóðvist sé með þeim hætti að nágrannar verði ekki fyrir ónæði;
  • að þeir sem brjóta 4. grein Lögreglu­samþykktar sæti viðurlögum og þurfi að greiða dagsektir, allt að kr. 500.000 á dag þar til úr er bætt, í samræmi við reglugerð umhverfis-, orku- og loftslags­ráðuneytisins um hollustu og mengunar­varnir frá 2008;
  • að þessir staðir séu umsvifa­laust sviptir veitinga­leyfi við ítrekuð brot;
  • að opnunar­tími bara og kráa í miðbænum sé styttur til muna;
  • að fundin sé varanleg lausn á þessum vanda með því að koma slíkum stöðum fyrir á hentugri stöðum utan almennrar íbúða­byggðar, t.d. á Grandanum.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá