Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

D-vítamín ver gegn sjálfsofnæmissjúkdómum

Meðal sjálfs­ofnæmis­sjúkdóma eru m.a.:

  • Psoriasis
  • Liðagigt
  • Krónískar þarma­bólgur
  • MS (Multiple sclerosis)
  • Sykursýki 1
  • Skjald­kirtils­bólgu

D-vítamín minnkar hættuna um 22%

Ný rannsókn hefur sýnt fram á að stórir daglegir skammtar af D-vítamíni geta komið í veg fyrir að sjálfs­ofnæmis­sjúkdómar komi fram, allavega hjá fólki sem komið er yfir fimmtugt.

26.000 manns eldra en fimmtugt tóku þátt í rann­sókninni og stóð rann­sóknin yfir í fimm ár.

Þátt­takendum var skipt í tvo hópa og annar hópurinn fékk D-vítamín daglega en hinn hópurinn fékk óvirkar töflur, svonefnda lyfleysu.

Gefinn var ráðlagður dags­skammtur, 2.000 alþjóða­einingar og sýndi þessi rannsókn að þessi skammtur dró úr algengi ónæmis­sjúkdóma um 22%.

Ræðst á sinn eigin vef

Ónæmis­kerfi þitt verst árásum frá veirum, bakteríum og fleiri örverum á hverjum degi. Ónæmis­kerfið virkar eins og þraut­þjálfað herlið og eru hvítu blóð­kornin í hlutverki hermannanna.

En í um fimmtungi mannkyns snúast þessir hermenn gegn röngum óvini: heil­brigðum líkams­vefjum. Það er þetta sem kallast sjálfs­ofnæmis­sjúkdómar.T

Til eru um 80 sjálfs­ofnæmis­sjúkdómar en það einkennir þá að ónæmis­kerfið ræðst á heil­brigðan vef. Skjald­kirtill, liðir og húð geta m.a. orðið fyrir slíkum árásum.

Psoriasis er t.d. sjálfs­ofnæmis­sjúkdómur og lýsir sér þannig að hvít blóðkorn hraða vexti frumna í ysta lagi horn­húðarinnar og mynda rauða hrúður­bletti.

Tvær mögulegar skýringar

Það hefur lengi leikið grunur á að D-vítamín kynni að vera einskonar töfralyf að því er varðar sjálfs­ofnæmis­sjúkdóma. Dýra­tilraunir hafa t.d. sýnt að þetta vítamín hefur góð áhrif á ónæmis­kerfið almennt – hvers vegna, vita menn þó ekki.

Möguleg skýring er talin sú að vítamínið hjálpi frumum ónæmis­kerfisins að greina á milli t.d. baktería og eigin líkams­frumna.

Hitt gæti líka verið að viðbót af D-vítamíni dragi úr þeim bólgu­viðbrögðum sem ónæmis­kerfið veldur í líffærum.

Vísinda­menn gera sér vonir um að öðlast meiri þekkingu með nýjum rann­sóknum sem m.a. eiga að leiða í ljós hvort vítamínið virki enn eftir fimm ár. Einnig á að rannsaka hvort viðbótar­skammtur af D-vítamíni hafi jafn greinileg áhrif á fólk undir fimmtugu.

ATH: Skammta­stærð D-vítamíns er mikilvæg! Fáðu ALLTAF ráðleggingar hjá heimilis­lækninum áður en þú tekur viðbótar­skammta af D-vítamíni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá