Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Óhugnalegt hvarf Valgeirs – Grunur um saknæmt athæfi

Þegar faðir Valgeirs Víðis­sonar kom af sjónum, náði hann engu sambandi við son sinn. Eftir ítrekaðar tilraunir hafði hann loks samband við lögreglu og kom þá í ljós að enginn hafði séð til, né talað við Valgeir í heila viku.

Valgeir var fæddur þann 11.júlí árið 1964. Faðir hans bjó í Reykjavík en Valgeir ólst upp að mestu leiti hjá móður sinni í Vestmanna­eyjum. Þegar hann var kominn á unglingsár flutti hann í höfuð­borgina til föður síns. Ungur byrjaði Valgeir að fikta við fíkniefni, því fylgdu ýmis smávægileg lögbrot en hann hafði meðal annars verið hand­tekinn fyrir vörslu fíkniefna.

Þegar Valgeir var orðinn þrítugur hafði hann þróað með sér fíkni­sjúkdóm og var hand­tekinn, ásamt nokkrum öðrum, fyrir að flytja til landsins töluvert magn af fíkni­efnum.

Faðir Valgeirs sagði son hans setið undir hótunum frá mönnum í undir­heimum Reykja­víkur. Hann vissi þó ekki hvort það tengdist innflutningnum og því að efnin hafi ekki skilað sér í réttar hendur.

Þann 19.júní árið 1994 var Valgeir í síma­sambandi við vinkonu sína og sagði henni að hann ætti von á mikilvægu símtali. Meira heyrðist ekki í Valgeiri.

Um kvöldið yfirgaf hann íbúð sína við Laugaveg 143 í Reykjavík á dökkleitu hjóli. Hann skyldi eftir kveikt ljós og sjón­varpið í gangi, einnig var mynd sem Valgeir var að mála á striga í stofunni. Því leit allt út fyrir að hann hafi ætlað sér rétt að skreppa en enginn vissi hvert ferð hans var heitið. Hann var klæddur í leður­jakka, galla­buxur og reimuð stígvél. Þegar faðir Valgeirs náði engu sambandi við son sinn hófst strax umfangs­mikil leit að honum, enda var vika liðin síðan nokkur gat sagt til um ferðir hans. Margar ábendingar bárust lögreglu og lá fljótlega sá grunur að hvarf hans hafi orðið með saknæmum hætti. Valgeir skuldaði háar fjárhæðir í undir­heimum landsins.

Vinur Valgeirs tók svokallað fílófax úr íbúð hans en það er nokkurskonar skipulags­dagbók. Vinurinn skilaði bókinni til lögreglu eftir að búið var að rífa úr henni nokkrar blaðsíður sem höfðu að geyma dagana fyrir hvarfið. Lögregla náði aldrei neinni trúverðugri útskýringu á þessu frá vininum en hann var þó ekki talinn eiga aðild að hvarfi Valgeirs.

Eftir margar yfirheyrslur og ábendingar færðist lögregla ekkert nær því að finna Valgeir og var hann að lokum úrskurðaður látinn árið 2000.

Árið 2001 komu þó nýjar upplýsingar um málið upp á yfir­borðið og voru tveir menn hand­teknir, annan þeirra þurfti að framselja frá Hollandi þar sem hann sat í fangelsi. Áttu þessir menn að hafa hitt Valgeir kvöldið örlaga­ríka í bílastæða­húsi í Reykjavík vegna fíkniefna­skuldar. Þar áttu þeir að hafa gengið svo illa í skrokk á honum að hann hafi látið lífið og þeir svo falið líkið á óþekktum stað.

Það sem studdi þennan grun var að stuttu eftir hvarf Valgeirs fór annar mannana með bílinn sinn á verkstæði og bað um að selja hann í brotajárn, hann sagði bílinn ryðgaðan og illa farin að ekki yrðu frekari not af honum. Manninum á verk­stæðinu fannst þetta undarlegt þar sem bíllinn var í fínu standi, ennþá skrítnara var þó að í hann vantaði alla innréttingu. Skömmu síðar kom þriðji maðurinn á verk­stæðið og ítrekaði mikilvægi þess að bílnum yrði fargað sem fyrst.

Yfirheyrsla yfir mönnunum skilaði þó engum árangri og var þeim að lokum sleppt enda neituðu þeir því stað­fastlega að hafa eitthvað með hvar Valgeirs að gera.

Árið 2011 reyndi barns­móðir Valgeirs að fá málið tekið upp á nýju, bæði hún og faðir hans voru ósátt við rann­sóknina og töldu hana verulega ábótavana. Faðir hans segir nær öruggt að Valgeir hafi verið myrtur.

Valgeir var einhleypur og átti einn son. Hann var lágvaxinn, grannur, skol­hærður og með blá augu.

Vinsamlegast hafðu samband við lögreglu í síma 444-1000 ef þú telur þig hafa upplýsingar um málið.

Heimildir: Morgun­blaðið, Helgar­pósturinn, Saknað-Íslensk manns­hvörf eftir Bjarka H.Hall

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá