Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Í meðferð intersex fólks er sjúkdómsvæðing algengasta læknisfræðilega nálgunin „leiðrétting“

Daniela Alaattinoğlu, doktorsnemi við Háskóla Íslands
Daniela Ala­attin­oğlu, dokt­or­snemi við Háskóla Íslands

Daniela Alaattinoğlu er nýdoktor við lagadeild Háskóla Íslands. Rannsóknar­verkefni hennar skoðar baráttuna fyrir réttindum intersex fólks á Norður­löndunum.

Í fyrir­lestrinum fjallaði Daniela um baráttuna fyrir réttindum intersex fólks á Íslandi og nefnist „Mobilising for Intersex Rights in Iceland“. Fyrir­lesturinn var haldinn í lok febrúar í fyrirlestrasal Þjóð­minjasafns Íslands og var sýndur í beinu streymi.

„Intersex“ er hugtak sem nær yfir breitt svið af meðfæddum líkamlegum einkennum eða breyti­leika sem liggja á milli okkar stöðluðu hugmynda um karl og kvenkyn.

Intersex einstaklingar fæðast með einkenni sem eru ekki algjör­lega karl- eða kvenkyns; sem eru sambland af karl- og kvenkyns; eða sem eru hvorki karl- né kvenkyns.

Margar form­gerðir of intersex eru til. Um er að ræða skala eða regnhlífar­hugtak frekar en einn eigin­legan flokk. Sumar algengar intersex-form­gerðir eru greindar á meðgöngu.

Intersex breyti­leiki getur verið sjáanlegur við fæðingu. Sumir intersex eigin­leikar koma í ljós við kynþroska, þegar reynt er að geta barn, eða fyrir einskæra tilviljun, segir á síðu intersex hjá 78′ samtökunum.

Kitty Andersen, for­maður Intersex á Íslandi.

Ekki auðveldlega hægt að flokka sem „karlkyns“ eða „kvenkyns“

Í iðnvæddum ríkjum hefur sjúkdóms­væðing verið algengasta læknis­fræðilega nálgunin í meðferð intersex fólks, það er fólk með meðfædd frávik á líkamlegum kyneinkennum sem ekki er auðveldlega hægt að flokka sem „karlkyns“ eða „kvenkyns“, frá miðri tuttugustu öld til dagsins í dag.

Hið læknis­fræðilega viðbragð við því sem talið er sjúklegt ástand hefur verið „leið­rétting“ sem oft er fólgin í óafturkræfum inngripum í líkama ungbarna. Ísland er engin undan­tekning.

Á síðustu áratugum hefur baráttu­fólk fyrir réttindum intersex fólks gagnrýnt þá læknis­fræðilegu nálgun að frávik í líkamlegum kyneinkennum eigi að meðhöndla sem sjúkdóm. Á síðari hluta síðasta áratugar hóf intersex fólk á Íslandi skipulagða baráttu fyrir bættri stöðu intersex fólks og því að stöðva læknis­fræðileg inngrip án samþykkis.

Á árunum 2019 og 2020 náðust mikil­vægir lagalegir áfangar: kyneinkenni voru tekin inn í lög gegn mismunun, þriðja kynið var kynnt og síðast en ekki síst voru ónauðsynleg læknis­fræðileg inngrip í líkama intersex barna bönnuð (þó með nokkrum eftirtektar­verðum undan­tekningum).

Baráttufólk fyrir réttindum intersex fólks tókst að breyta lögum

Í dag eru íslensku lögin um kynrænt sjálfræði álitin til fyrir­myndar í alþjóð­legum saman­burði. Í fyrir­lestrinum var skoðað hvernig baráttu­fólki fyrir réttindum intersex fólks tókst að nota bæði alþjóðlegar mann­réttinda­yfir­lýsingar og -samninga og réttinda­orðræðu til að breyta lögum og læknis­fræðilegum nálgunum.

Þannig er kast­ljósinu sérstak­lega beint að því hvernig hreyfingar geta notað réttindi sem tæki til að setja fram kvörtunarmál og fá stofnanir til að bregðast við og knýja fram aukna inngildingu í lögum og samfélaginu. Að lokum er spurt um takmarkanir réttinda­miðaðar nálgunar þegar kemur að því að bæta stöðu intersex fólks.

Daniela Alaattinoğlu var fjórði fyrir­lesari fyrirlestraraðarinnar Hinsegin Ísland í alþjóð­legu samhengi sem var haldin í samstarfi RIKK – Rannsókna­stofnunar í jafnréttis­fræðum við Háskóla Íslands og Jafnréttis­skólans (GRÓ-GEST) á vormisseri 2022.

Frekari upplýsingar um fyrirlestra­röðina má finna á heimasíðu RIKK – rikk.hi.is – og Facebook-síðu stofnunarinnar auk þess sem hægt er að skrá sig á tölvu­póstlista RIKK hér. Upptaka af fyrir­lestrinum er á Youtube-rás Hugvísinda­sviðs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá