Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sigmundur Davíð tjáir sig um fjárkúgunina: „Það er annars eðlis þegar fjölskyldan blandast í málið“

Þann 28. maí 2015 fékk þáverandi forsætis­ráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hótunar­bréf. Þar var hann krafinn um átta milljónir króna, annars yrðu meintar upplýsingar um tengingar hans við DV.

Sigmundur Davíð tjáði sig í fyrsta skipti um málið í hlaðvarps­þættinum Eftirmál með þeim Þórhildi Þorkels og Nadine Yaghi. Sigmundur Davíð sagði þar frá því að hótunar­bréfið hafi borist á þrjá staði, heim til hans, á leikskóla þriggja ára dóttur hans og heim til aðstoðar­manns hans.

Þegar málið var í umfjöllun hjá fjöl­miðlum kom aldrei fram að hótanir hafi beinst að dóttur Sigmundar. „Það er annars eðlis þegar fjöl­skyldan blandast í málið,“ sagði Sigmundur í hlað­varpinu.

Lögreglan tók málið strax föstum tökum, sérsveitin var fengin til að fela sig og bíða þess að gerendurnir létu sjá sig á ónefndum stað á Suðurnesjum, þar sem Sigmundur átti að afhenda peninginn.

Við hand­tökuna kom í ljós að þarna voru á ferðinni systurnar Hlín Einars­dóttir og Malín Brand. Hlín var í miklum fjárhags­vanda á þessum tíma og veik á geði.

„Hlín hringdi í mig að kvöldi 28. maí og sagðist hafa sent bréfið og nú þyrfti að ná í peningana. „Sendirðu bréfið og heldurðu virkilega að það hafi komist til skila og það verði tekið mark á þessu rugli,“ spurði ég hana. Ljóst var að hún var búin að fylgjast með högum forsætis­ráðherra því hún sagðist vita á hvaða leikskóla barn þeirra hjóna væri og hafði velt fyrir sér hvort hún ætti að lauma bréfinu í tösku barnsins. Hún var augljós­lega veik en ég brást henni og sjálfri mér þá sem fyrr með því að stoppa hana ekki af. Hún sagði að ég yrði að koma með henni á afhendingar­staðinn, ofan Hafnar­fjarðar. Ég neitaði í fyrstu en hún nauðaði í mér áfram. Ég hugsaði með mér að eina leiðin til að þessu linnti væri að ég færi með henni. Það yrði frið­þæging og hún losnaði við þetta mál af heilanum. Mér leið eins og ég væri að fara með lítið barn til að athuga hvort jóla­sveinninn væri í fjallinu. Hlín hafði undirbúið þetta vandlega. Hún sagðist hafa lesið sér til um fjár­kúganir á vefnum. Við mæltum okkur mót morguninn eftir,“ sagði Malín Brand í viðtali við Stundina í nóvember árið 2015.

Héraðs­dómur dæmdi báðar systurnar 12 mánaða fangelsi fyrir fjár­kúgunina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá