Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Verkalýðsfélag Vestfirðinga harmar hópuppsögn Eflingar: „Þið eruð hetjur sem hafið staðið vaktina“

Starfstöð Verk Vest á Patreksfirði
Starf­stöð Verk Vest á Pat­reks­firði Mynd: Verkvest.is

Stjórn Verkalýðs­félags Vestfirðinga harmar í yfir­lýsingu, hópuppsögn stjórnar Eflingar á starfs­fólki á skrif­stofu félagsins á dögunum.

Í yfir­lýsingunni sem birtist á bb.is, tekur stjórn Verkalýðs­félags Vestfirðinga undir með ASÍ-UNG um „ósiðlega aðför að grund­vallar réttindum vinnandi fólks“. Þá furðar stjórnin sig á „framgöngu formanna SGS og VR/LÍV, sem verja aðför formanns Eflingar gegn réttindum starfs­fólks.“ Segir í yfir­lýsingunni að með því hafi formennirnir brugðist grund­vallar skyldum sínum að veita starfs­fólki Eflingar stuðning og skjól, algjör­lega.

Hér má sjá yfir­lýsinguna í heild sinni:

Stjórn Verkalýðs­félags Vestfirðinga harmar þá ósvífnu ákvörðun Baráttu­lista stjórnar Eflingar að segja öllu starfs­fólki á skrif­stofu félagsins upp störfum. Slíkar aðgerðir eiga að vera algjört neyðar­úrræði ef hagræða þarf í rekstri en ekki til að lækka laun. Stéttar­félögum ber skylda til að ganga fram með góðu fordæmi og þannig tryggja að réttindi vinnandi fólks sé ofar öðrum hagsmunum. Velferð starfs­fólks á að vera í fyrsta sæti.

Stjórn Verk Vest tekur undir með ASÍ-UNG um ósiðlega aðför að grund­vallar réttindum vinnandi fólks og lýsir jafnframt yfir stuðningi við framgöngu forseta ASÍ sem hefur komið starfs­fólki Eflingar til varnar á erfiðum tímum.

Jafnframt furðar stjórn félagsins sig á framgöngu formanna SGS og VR/LÍV sem verja aðför formanns Eflingar gegn réttindum starfs­fólks.  Með þeim hætti hafa formenn SGS og VR/LÍV algjör­lega brugðist grund­vallar skyldum sínum að veita starfs­fólki Eflingar stuðning og skjól í þeirri fordæma­lausu aðför gegn réttindum þeirra sem unnar eru af hálfu nýrrar forystu Eflingar stéttar­félags. Með framgöngu sinni hafa þeir einnig brugðist verkalýðs­hreyfingunni sem leiðtogar tveggja stærstu land­sambandanna innan ASÍ.

Stjórn Verk Vest tekur því enn og aftur undir með forseta ASÍ að vinnandi fólk á Íslandi eigi þá sjálfsögðu kröfu að við sem störfum fyrir verkalýðs­hreyfinguna komum fram sameinuð og forðumst að týnast í eigin ágreiningi sem oft og tíðum fjallar um völd, persónur og leikendur.

Stjórn Verk Vest sendir starfs­fólki Eflingar stuðnings og baráttu­kveðjur, þið eruð hetjur sem hafið staðið vaktina fyrir félags­menn Eflingar þrátt fyrir ítrekað aðkast og ósvífni af hálfu nýrrar forystu félagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá