Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Skipstjóra Herjólfs loksins gert að hætta – Reiknar með að þetta gerist ekki aftur

Mynd/vegagerdin.is
Mynd/vega­gerdin.is

Skip­stjóri Herjólfs sem snemma á árinu varð uppvís að því að sigla án atvinnu­réttinda og falsa skýrslur um það hver hefði siglt bátnum hefur komist að samkomu­lagi við Herjólf ohf. um starfslok. Staðfesti framkvæmdar­stjóri Herjólfs, Hörður Orri Grettisson, þetta í samtali við mbl.is.

Mannlíf fjallaði um málið ásamt fleiri miðlum fyrr á árinu en þá hafði skip­stjóri í Herjólfi verið lækkaður í tign eftir að upp komst að hann hélt áfram að sigla skipinu eftir að réttindi hans runnu út. Þá skráði hann aðra skip­stjóra fyrir siglingunum. Mannlíf upplýsti um að þessi tign sem hann var strípaður af hafi í raun verið búin til handa honum nokkru áður, en hann var gerður að yfir­skipstjóra Herjólfs, titill sem ekki var til áður og var hann lækkaður niður í venju­legan skip­stjóra. Þá upplýsti Mannlíf einnig um tiltal sem skip­stjóri fékk í fyrra fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart tveimur stúlkum í starfs­liði skipsins. Samkvæmt heimildum Mannlífs var skip­stjórinn afar óvinsæll meðal skipverja Herjólfs og mikill titringur um borð.

Sjá einnig: Réttinda­laus skip­stjóri áminntur fyrir kynferðis­lega áreitni gagnvart stúlkum í áhöfn Herjólfs

Samkvæmt mbl.is komst skip­stjórinn og Herjólfur ohf. nú að samkomu­lagi um starfslok sem tilkynnt voru starfs­mönnum í gær. Hörður vildi ekki tjá sig um ástæðu þess að til starfs­loka hafi komið nú en ekki um leið og upp komst um brot hans, en sagði að um væri að ræða mjög erfitt mál.

Býst Hörður ekki við að þetta muni endurtaka sig en félagið hefur nú skerpt á verklags­reglum sem voru þegar til staðar en hafi ekki reynst nægilega góðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Landið

Það verður hárþurrku­veður á Trölla­skaga

Annars staðar má víða búast við skúrum eða slydduéljum

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ