Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Védís hönnuður hjá Ístex heimsækir Guðna: ,,Lopapeysan er í raun og veru þjóðbúningur Íslendinga“

Védís Jóns­dóttir hönnuður hjá Ístex er gestur Spjall­vina Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni.

Þegar kemur að útgáfu bókarinnar Lopi sem gefin er út af Lopi Design, sem jafnframt er í eigu Ístex, er Védís í broddi fylkingar en hún eltir bókina alveg að prent­vélinni. Á síðu Lopi Design má nálgast allar 40 bækurnar sem gefnar hafa verið út.

Védís telur að lopa­peysan sé í raun og veru þjóð­búningur Íslendinga

„Það eru voða fáar þjóðir sem eiga einhverja flík sem að allir geta orðið sér út um. Allir hafa efni á að eignast lopapeysu.“

Védís hefur hannað fjöldann allan af lopa­peysum en hún sækir innblástur í mynstur og litaval í íslenska náttúru, hvortheldur sem er mosann, úfið hafið eða allt þar á milli.

Hönnun hennar er svo vinsæl að erlend fyrirtæki hafa bersýni­lega stolið hugmyndum hennar og mark­aðsett sem sínar eigin „það er merkilegt þegar maður sér að fyrirtæki eru hreinlega að stela þessum mynstrum. Það er til dæmis eins og „Afmæli“ sem ég hannaði þegar Ístex varð 20 ára. Ég hef séð það fjölda­framleitt hjá amerískri lágvöru­keðju og ég sá það síðast núna hjá frönsku tískuhúsi en það skondnasta var að þegar ég las að inspirasjónin á bakvið mynstrið væri einhver frönsk höll sem mér fannst alveg óheyrilega fyndið.“

Védís ánægt með að litlar ullar­vinnslur séu að skjóta upp kollinum víðsvegar um landið. Ístex er hinsvegar verksmiðja með um 50 manns í vinnu. Varan verður til í tonnum og er bæði seld hér á Íslandi sem og erlendis.

„Þetta er mjög sjálfbært. Það að við búum til uppskriftir sem fólk getur prjónað eftir og við búum til bandið. Við erum ekki að búa til einhverjar flíkur sem einhver vill ekki og fólk getur auðvitað breytt litum og gert það sem það vill en það hefur þarna ákveðið efni til að vinna með og það er hinn almenni prjónari sem er auka alla þessa sölu  á Íslandi, það eru ekki einhver stór­fyrirtæki sem eru að framleiða einhverjar flíkur.“

Lopann má nota í fleira en peysur. Védís hefur unnið pils, kraga og kjóla en svo er hann notaður í teppi og mottur, einangrun, sængur og kodda, yfirdýnur og í úlpur. Védís sér líka sóknar­færi í fram­leiðslu á vörum úr ullarfitu sem er talin gríðar­lega græðandi efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt