Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Reykjavíkurdætur sigurstranglegastar hjá veðbönkum og í skoðanakönnun: 54 prósent vinningslíkur

Reykjavíkurdætur flytja lagið Turn This Around. Mynd/skjáskot RÚV.
Reykja­vík­ur­dætur flytja lagið Turn This Around. Mynd/skjá­skot RÚV. Mynd: Baldur Kristjánsson

Reykja­víkurdætur þykja sigur­stranglegastar af þeim atriðum sem keppa í Söngva­keppni sjón­varpsins í kvöld, ef marka má stuðla veðbanka.

Á síðunni Eurovisionworld má sjá stuðla fyrir þau fimm atriði sem keppa um hylli lands­manna í kvöld, saman­tekna af helstu veðbönkum þar sem fólki býðst að veðja á hina ýmsu hluti. Eins og margir þekkja eru það slíkir veðbankar sem oft spá fyrir um það með nokkurri nákvæmni hvaða land beri sigur úr býtum í aðal­keppni Eurovision – þó ekki sé það algilt.

Á Eurovisionworld má sjá að Reykja­víkurdætur eru efstar hjá veðbönkunum með 54 prósent vinnings­líkur. Á eftir þeim í röðinni er Katla, með 21 prósent vinnings­líkur. Það er Stefán Óli sem veðbankar telja líklegastan í þriðja sætið, með 10 prósent vinnings­líkur. Á eftir honum koma systurnar Sigga, Beta og Elín með 9 prósent vinnings­líkur og svo systkinin söngelsku í Amarosis með 6 prósent líkur.

Katla flytur lagið Then Again. Mynd/skjá­skot RÚV.

Skoðanakönnun líka með dæturnar efstar

Við hlið listans frá veðbönkunum má sjá skoðana­könnun þar sem spurt er: „Hver ætti að sigra Söngva­keppnina 2022?“

Niður­stöðurnar úr könnuninni, eins og atkvæðin standa núna, eru á þá leið að flestum þykir Reykja­víkurdætur bestu fulltrúar þjóðarinnar til þess að leggja land undir fót til Ítalíu.

Þannig telja 36 prósent kjósenda þær eiga sigurinn skilið. Líkt og hjá veðbönkunum er það Katla sem kemur næst á eftir, þó mun mjórra sé á munum í könnuninni heldur en hjá veðbönkum. Hún fær 32 prósent atkvæða. Sigga, Beta og Elín eru í þriðja sæti hjá kjósendum síðunnar, með 10 prósent atkvæða. Stefán Óli fær síðan 6 prósent og Amarosis 4 prósent.

Stefán Óli flytur lagið All I Know. Mynd/skjá­skot RÚV.
Syst­urnar Sigga, Beta og Elín flytja lagið Með hækk­andi sól. Mynd/skjá­skot RÚV.
Systk­inin Már og Ísold í Amarosis flytja lagið Don’t You Know. Mynd/skjá­skot RÚV.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt