Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Gabríel gæti talist hættulegur – Grunaður um ótal ofbeldisbrot

Gabrí­el Doua­ne Boama
Gabrí­el Doua­ne Boama

Hinn tvítugi Gabríel Duoane Buma, sem slapp úr haldi lögreglu í Héraðs­dómi Reykja­víkur þar sem aðal­meðferð í máli hans fór fram, er enn ófundinn. RÚV greinir frá þessu. Gabríel á að baki þó nokkurn sakaferil og hefur verið dæmdur fyrir alvarleg ofbeldis­brot. Hann er meðal annars sagður tengjast árás í Borgar­holtsskóla í janúar í fyrra.

Samkvæmt RÚV er lögregla meðal annars með það til skoðunar að flóttinn hafi verið skipulagður. Gabríel sleit sig lausan frá lögreglu í Héraðs­dómi Reykja­víkur, þar sem aðal­meðferð í máli á hendur honum fór fram. Lögregla náði ekki að hlaupa hann uppi og var mikill viðbúnaður í miðbænum í gær vegna málsins. Gabríel hafði verið í síbrota­gæslu undan­farið vegna fjölda ofbeldis­brota og fíkniefna­brota.

Kristján Helgi Þráinsson, aðstoðar­yfir­lögreglu­þjónn, segir lögreglu sinna sjálf­stæðri rannsóknar­vinnu auk þess að elta vísbendingar frá almenningi. Gabríel birti mynd af sér á samfélags­miðlum í gær þar sem hann sagðist vera í Vesturbæ Reykja­víkur. Lögreglu hefur enn ekki tekist að sannreyna það.

Kristján Helgi segir að hægt sé að líta á Gabríel sem hættu­legan, þar sem hann hann sé kærður fyrir marg­vísleg ofbeldis­brot. Til að mynda var hann dæmdur í átján mánaða fangelsi í febrúar í fyrra fyrir að hafa hótað lögreglu­mönnum lífláti og fyrir líkams­árás sem þótti sérstak­lega hættuleg. Hann er einnig grunaður um alvarlega líkams­árás sem var framin í Borgar­holtsskóla í janúar á síðasta ári. Á vef RÚV segir að hann sé grunaður um hátt í fimmtíu brot.

Hjá héraðs­saksóknara er til skoðunar hvort flótti Gabríels hafi verið skipulagður. Þeir sem telja sig hugsanlega hafa upplýsingar um ferðir hans eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá