Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sandra Hlíf annaðist deyjandi föður sinn í Chile: „Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig“

Ljósmyndari: Aldís Pálsdóttir
Ljós­mynd­ari: Aldís Páls­dóttir Mynd: XD.is

Sandra Hlíf Ocares var í litlum samskiptum við föður sinn sem barn. Leiðir foreldra hennar skildu áður en Sandra kom í heiminn og faðirinn sinnti henni ekki mikið. Í helgar­viðtali Frétta­blaðsins segir Sandra meðal annars frá vanlíðan sinni á unglings­árum og því hve mikilvægt það sé að fólk sem starfi með börnum og unglingum átti sig á því ef eitthvað er í ólagi. Sjálf hefur Sandra starfað um árabil hjá Barna­verndar­nefnd Reykja­víkurborgar og var aðeins 29 ára gömul þegar hún tók við sem formaður þar. Hún gefur nú kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðis­flokksins í Reykjavík fyrir komandi borgar­stjórnar­kosningar.

Faðir Söndru, Julio Cesar Ocares Romo, var í háskóla­námi í Chile og að vinna fyrir ríkið þegar Pinochet komst til valda þar í landi. Julio var sendur í pyntingar­búðir, sem hann náði að flýja úr og eftir mikið ferðalag kom hann hingað til lands, til Akureyrar, sem flótta­maður árið 1979. Þá var hann 27 ára gamall. Sandra segir að ef faðir hennar hefði ekki flúið land hefði hann vafalaust verið drepinn. „Þetta voru bara aftökur,“ segir Sandra í viðtalinu.

Faðirinn á gjörgæslu í Chile

Einn dag árið 2008 fékk Sandra símtal frá systur sinni, sem sagði henni að faðir þeirra væri kominn á gjörgæslu í Chile. Julio hafði skilið við konuna sína og flutt aftur út til Chile, en komið til Íslands annað hvert ár til að heimsækja fjöl­skyldu og afkomendur.

Sandra hélt strax af stað til Chile. Faðir hennar hafði greinst með heilaæxli rétt rúmlega fimmtugur og systurnar voru þess full­vissar að hann lægi fyrir dauðanum.

„Þrátt fyrir að pabbi hafi ekki alltaf komið vel fram við mig þá er foreldri alltaf foreldri og römm er sú taug. Þarna var ég líka búin að gera þetta svolítið upp og ákvað að elska hann fyrir það sem hann var og bera virðingu fyrir því. Gera þetta bara á mínum forsendum,“ segir Sandra í samtali við Frétta­blaðið.

Fjöl­skylda Söndru í Chile, sem hún hafði aldrei hitt fyrr, tók á móti henni og skutlaði henni upp á sjúkrahús.

„Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig,“ sagði faðir hennar við hana þegar hún kom til hans. Sandra segist vita það að hann hefði aldrei gert það sama fyrir hana en segist jafnframt ekki sárna þessi orð hans. Hún segir að hún myndi sjálf gera þetta fyrir hann, aftur og aftur. Þannig séu hennar gildi. Svar hennar til hans var því einfald­lega: „Ég veit það. En gott að sjá þig, pabbi minn.“

„Ég myndi aldrei gera þetta fyrir þig“

Önnuðust hann við slæmar aðstæður

Julio, föður Söndru, voru upphaf­lega gefin þrjú ár eftir þetta en hann endaði þó á því að lifa í sjö. Þegar hann lá bana­leguna komu systurnar til hans og dvöldu hjá honum í þrjár vikur. Þær hugsuðu um föður sinn og hjúkruðu honum áður en bróðir þeirra kom honum síðan fyrir hjá konu sem leigði út rúm hjá sér fyrir fólk til að deyja í. „Það er engin líknar­deild eða heima­hjúkrun og við eiginlega úti í sveit,“ segir Sandra.

Sandra lýsir því hvernig þær systur þurftu að annast föður sinn við aðstæður sem myndu teljast ansi slæmar á okkar mæli­kvarða. Til að mynda hafi þær þurft að gefa föður sínum lyf, skipta á honum, skipta um á rúminu og þvotta­vélin hafi verið léleg. Enginn þurrkari hafi verið á heimilinu. Þá hafi húsið verið heldur hrörlegt.

„Við myndum ekki kalla þetta hús, göt í veggjum og köngulær um allt. Við notuðum flugvéla­koddana undir höfuðið og kyntum með einum gasofni sem við þorðum ekki að sofa með í gangi,“ segir Sandra.

Hún segir tímann þó hafa verið dýrmætan og að þrátt fyrir að þetta hafi verið erfitt hugsi hún til þess alls með hlýju. Hún segir að auk þess að hafa annast deyjandi föður sinn og eytt tíma með honum, hafi þær systur, sem ólust upp í sitthvoru lagi, náð að tengjast enn betur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá