Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Sjósundgarpar verði vakandi fyrir því hvenær skólpi er hleypt í sjó: „Örverur lifa ekki lengi“

Nauthólsvík. Mynd/skjáskot RÚV
Naut­hóls­vík. Mynd/skjá­skot RÚV

Vegna mikillar úrkomu og leysinga undan­farið hefur þurft að hleypa óhreinsuðu skólpi út í sjó á höfuð­borgar­svæðinu. Almennt má reikna með því í miklum vatna­vöxtum. Undir slíkum kringum­stæðum verður álagið á fráveitu­kerfið það mikið að einungis tvær leiðir verða færar: að hleypa skólpinu út í sjó eða að það flæði aftur til baka sömu leið og það kom, inn á heimili lands­manna.

„Sjórinn gengur mjög hratt frá lífrænu efnunum og örverur lifa ekki lengi,“ segir Ólöf Snæhólm Baldurs­dóttir, upplýsinga­fulltrúi Veitna, aðspurð um velferð sjósunds­garpa þegar aðstæður sem þessar skapist. Árið 2017 voru stjórn­völd til að mynda harðlega gagnrýnd fyrir að upplýsa ekki strax um bilun sem varð í neyðar­loku skólp­dælu­stöðvarinnar við Faxaskjól. Málið kom upp eftir að Heilbrigðis­eftirlitið varaði við sjósundi í Naut­hólsvík vegna hárrar gerlatölu sem fannst í sýni sem tekið var á svæðinu.

Ólöf bendir á að skólp sem fari í fráveitu­kerfið sé mjög útþynnt. „70 prósent af því sem er í skólpinu er hitaveitu­vatn. Svo þegar allt ofan­vatnið bætist ofan á það, þá er þetta orðið frekar mikið útþynnt þegar það fer í sjó.“

Að því sögðu mælir hún þó með því að fólk sem stundi sjósund sé meðvitað um það hvenær óhreinsað skólp sé að renna út í sjó. „Þegar það þarf að hleypa skólpi í sjó, þá er ekkert sniðugt að vera að synda í því akkúrat á meðan. Þess vegna settum við upp það sem heitir „fráveitusjá“, á síðu Veitna.“

Á fráveitu­sjánni er hægt að fylgjast með stöðunni á dælu­stöðvum og hreinsi­stöðvum Veitna. „Þú getur séð hvort þær eru opnar eða lokaðar, í rauntíma. Þú getur líka séð hversu langt er síðan stöð opnaðist. Það hefur verið töluvert undan­farið, enda hafa aðstæður verið erfiðar í fráveitu­kerfinu. Metúrkoma og mikið af vatni á ferðinni allsstaðar.“

Aðspurð hversu lengi fólk þurfi að halda aftur af sér í sjósundinu, í kringum þau svæði sem verið sé að hleypa skólpi í sjóinn, segist hún ekki geta gefið upp nákvæman tíma.

„Ég get sagt að á þessum árstíma lifa örverurnar í nokkrar klukku­stundir og á sumrin lifa þær í einn til tvo tíma. Sjórinn gengur nokkuð vel frá lífrænu efnunum en ég bara bendi fólki á að ef það ætlar í sjó, hérna í Reykjavík allavega, að þá er hægt að kíkja inn á fráveitu­sjánna og sjá hvort stöðvarnar hafi opnast í kringum þar sem þau ætla að fara í sjó. Fólk má alveg gera sér grein fyrir því að þegar úrkoman er gríðar­lega mikil og veður mjög vont, leysingar eða hláka og annað slíkt, þá aukast líkurnar á því að stöðvarnar fari á yfir­snúning. Að það komi of mikið vatn í kerfið þannig að það ráði ekki við það og við þurfum að hleypa hluta af skólpi óhreinsuðu í sjóinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá