Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Er Ólafur Ragnar orðinn talsmaður Pútíns?

Fjölmargir stigu fram á Facebook og fordæmdu ummæli Ólafs Ragnars Gríms­sonar fyrr­verandi forseta Íslands þau sem hann viðhafði um innrás Rússa í Úkraínu í viðtali við Egil Helgason á Ríkis­sjónvarpinu í þættinum Silfrinu þann 20. mars síðastliðinn.

Ólafur Ragnar og Egill ræddu ástandið í Úkraínu og um Pútín sem Ólafur Ragnar hefur margoft hitt. Og hefur hingað til borið honum vel söguna. Ýmsir sjónvarps­áhorfendur fannst sem hann væri jafnvel að afsaka gjörðir Pútíns í viðtalinu. Þá sagði Ólafur Ragnar að stækkun Atlantshafs­banda­lagsins til austurs hefði leitt til stærsta stríðs í Vestur-Evrópu frá lokum seinni heims­styrjaldarinnar, NATO hefði í það minnsta ekki komið í veg fyrir það.

Guðmundur Andri Thorsson vara­þingmaður Samfylkingarinnar og rithöfundur ritaði pistil eftir að hafa horft á hið umdeilda viðtal.

„Ólafur Ragnar Grímsson kom fram í Silfrinu sem talsmaður Pútíns, og talaði um innrás Rússa eins og nokkurs konar hryllilegar – en óhjákvæmlegar – náttúru­hamfarir. Ólafur hefur alveg síðan í Alþýðu­bandalaginu talað eins og lönd Vestur-Evrópu séu ekki vinir og bandamenn Íslendinga heldur þvert á móti óvinir, og viljað að við litum annað eftir stuðningi.“

Guðmundur Andri segir að um hríð hafi hann talað eins og Ísland ætti að ganga í Asíu, og oft hafi hann og í gegnum tíðina mært Pútín.

Í dag birti Ólafur Ragnar myndband á twitter síðu sinni þar sem hann segir: „Raddir frá hinum megin“ (e. „Voices from the other side“). Með þessum orðum mætti segja að hann sé að staðfesta gagn­rýnina sem hann fékk eftir viðtalið í Silfrinu.

Í mynd­bandinu lýsir Rússi því hvernig hann lítur á Úkraínu og er hægt að túlka það þannig að Ólafur hafi birt mynd­bandið á twitter síðu sinni, orðum mannsins í mynd­bandinu til stuðnings.

Í mynd­bandinu er maðurinn spurður hvernig hann áætli að stríðinu ljúki? Maðurinn svarar: Úkraína er ekki land – það þarf að koma því af yfirborði jarðar.

Hér er hægt að sjá umrætt myndband:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá