Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Illugi minnist Megasar

„Þetta mun verða mér ógleymanlegt. Alltaf og alveg ógleymanlegt.“

Magnús Þór Jónsson eða Megas
Magnús Þór Jónsson eða Megas Megas kvaddi sviðið á dög­unum, 81 árs að aldri Mynd: -

Fjölmiðla­maðurinn Illugi Jökulsson minnist tónlistar­mannsins Megasar með hlýjum orðum í Facebook-færslu sem hann birti í morgun en útför lista­mannsins fór fram í Hallgríms­kirkju í gær.

Illugi segir kveðju­stundina hafa verið afar áhrifa­mikla og rifjar upp að kynni hans af Megasi hafi hafist með plötunni Milli­lending árið 1975.

„Enginn, bara alls enginn íslenskur lista­maður hefur verið mér mikil­vægari allt frá því ég kynntist honum fyrst á plötunni Milli­lendingu 1975,“ skrifar hann.

Hann segir að á þeirri plötu hafi þegar verið til staðar allt það sem einkenndi list Megasar.

„Húmorinn, leikurinn, hugkvæmnin og kvikindis­skapurinn, orðkyngin, orðlistin, einlægnin, hæðnin, nístandi sorgin og lífsneistinn samt í söng silfur­skottanna.“

Illugi segir margt hafa staðið upp úr við útförina en nefnir sérstak­lega flutning Möggu Stínu á lögum Megasar.

„Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að eina manneskja sem syngur Megas betur en Megas er Magga Stína og það stað­festist þarna svo sannarlega,“ skrifar hann og hrósar sérstak­lega túlkun hennar á Óþarflegri fundvísi Ingólfs Arnar­sonar og laginu Björt ljós borgar­ljós.

Hann segir einnig flutning Passíu­sálmsins, með Ragnar Kjartansson fremstan í flokki, hafa verið ógleymanlegan.

„Þetta mun verða mér ógleymanlegt. Alltaf og alveg ógleymanlegt.“

Illugi segist gera sér grein fyrir því að útförin hafi verið erfið fyrir fjöl­skyldu og ástvini Megasar en sjálfur hafi hann upplifað hana á annan hátt.

„Þetta var eflaust erfið kveðju­stund fyrir syni Magnúsar, aðra ástvini og afkomendur, og ekki síst hana Margréti, en sjálfur gladdist ég nú bara á einhvern hátt að hafa fengið að vera viðstaddur þegar hann ýtti úr vör.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Fólk

Viðtal

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Eftir rúm þrjátíu ár í tónlistinni sækir GusGus innblástur í reifið á tíunda áratugnum.

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið