Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Lögmaður Aðalsteins reiknar með að kæra til Hæstaréttar: „Við teljum að þetta brjóti gegn lögum“

Aðalsteinn Kjartansson/Gunnar Ingi Jóhannsson
Aðal­steinn Kjart­ans­son/Gunnar Ingi Jóhanns­son

Lands­réttur hefur nú vísað kæru blaða­mannsins Aðalsteins Kjartans­sonar, um lögmæti aðgerða lögreglu gegn sér, frá Héraðs­dómi Norður­lands eystra. Hann mun því að öllu óbreyttu þurfa að mæta til skýrslu­töku, ásamt þremur öðrum blaða­mönnum, vegna rann­sóknar lögreglu á broti gegn friðhelgi einka­lífsins. Þessu var greint frá á vef RÚV.

Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður Aðalsteins, segist í samtali við Mannlíf gera ráð fyrir því að úrskurðurinn verði kærður til Hæstaréttar: „Í þessari niður­stöðu Lands­réttar felst að ákvarðanir lögreglu um svona hluti sæti engri endur­skoðun dómstóla. Þar af leiðandi sé í rauninni enginn varnagli á rann­sóknar­aðgerðum lögreglu fyrr en það liggi fyrir einhver niður­staða í máli.

Það sé þá í rauninni ekkert sem hindri það í sjálfu sér að til dæmis lögreglan ákveði það að þú skulir hafa réttar­stöðu sakbornings vegna einhverrar fréttar sem þú skrifar í dag og skulir hafa hana næstu tíu árin.“

Aðalsteinn hafi ekki séð umrædd gögn

Málið sem blaða­mennirnir fjórir hafa réttar­stöðu sakbornings í snýr að gögnum úr síma, en heimildir úr téðum síma voru notaðar við frétta­flutning um svokallaða skæruliða­deild Samherja. Málið snýr hins vegar ekki að þeim gögnum sem notuð voru við frétta­flutninginn, heldur persónu­legum gögnum úr símanum sem aldrei voru birt. „Gögnum sem Aðalsteinn hefur ekki séð,“ segir Gunnar Ingi í samtali við blaðamann.

Gunnar Ingi segir að í niður­stöðu Lands­réttar felist að það sé þá enginn varnagli á gerræðis­ákvörðunum. „Dómstólar hafi bara ekkert um það að segja, hvernig lögreglan beiti vald­heimildum á rannsóknar­stigi.“ Hann segir að það hljóti að þurfa að fá úrskurð um það frá Hæstarétti.

„Það kemur fram í þessum dómi Lands­réttar að það sé betra að hafa réttar­stöðu sakbornings heldur en til dæmis réttar­stöðu vitnis. En best er að hafa enga réttar­stöðu,“ segir Gunnar Ingi.

Hann segir að ef Lands­réttur hefði annað hvort staðfest eða snúið við þessum úrskurði þá væri ekki hægt að láta reyna á það í Hæstarétti. „Fyrst málinu er vísað frá, þá er heimild til að kæra það.“

En hver er rökstuðningur Lands­réttar fyrir því að vísa málinu frá?

„Hann telur í rauninni að til þess að fá einhvern úrskurð um þetta þurfi að vera einhvers konar formgalli á rannsókn lögreglu, og hann sé ekki til staðar. Það er hins vegar engin form­bundin ákvörðun að veita manninum réttar­stöðu. Það er bara eitthvað sem lögreglan ákveður og við teljum að þetta brjóti gegn lögum. Það sé nú alveg nægjanlegur formgalli,“ segir Gunnar Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Einkennalausir hundar geta dreift smiti og hefðbundin bóluefni gegn smáveirusótt virðast ekki veita vörn gegn veirunni.

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá