Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Vladimír Pútín sagður dauðvona: „Stríðinu verður að ljúka áður en hann deyr“

Vladimír Pútín
Vladimír Pútín

Vladimír Pútín deyr brátt úr krabba­meini. Þessu heldur yfirmaður leyni­þjónustu úkraínska hersins fram.

Kyrylo Budanov, yfirmaður leyni­þjónustu úkraínska hersins segir að Pútín Rúss­lands­forseti hafi verið að glíma við krabba­mein um „langt skeið“ og muni deyja „mjög fljótlega.“ Sagt er frá þessu á breska frétta­miðlinum Mirror. Heldur Budanov því fram að hann hafi heimildi fyrir því innan Kremlar að forsetinn, sem er sjötugur, þjáist af krabba­meini.

Kyrylo Budanov

Segir hann ennfremur að Pútín hafi glímt við krabba­meinið um langa hríð og muni brátt deyja. Kom þessi full­yrðing fram eftir að Rúss­lands­forsetinn herskái hætti við að koma fram á tveimur opinberum viðburðum í lok ársins 2022, en annar þeirra var hið árlega ríkis­ávarp forsetans.

Budanov var spurður um ýmis mál tengdum heilsu Pútíns í sjaldgæfu viðtali sem hann veitti ABC News, sem og mögulegar loft­árásir á Rússland og Krímskaga.

Sagði hann að árásir á rússnesk svæði muni án efa halda áfram þetta árið en vildi ekki svara hvort her Úkraínu myndi standa fyrir þeim eða einhverjir aðrir..

Eftir að hann hélt því fram að Rúss­lands­forseti væri dauðvona sagði Budanov: „Stríðinu verður að ljúka áður en hann deyr.“

Að hans sögn mun Úkraína koma vel út á nýja árinu og bætti við að „allur heimurinn“ myndi græða á dauða Pútíns og hvatti Vestur­veldin til að „óttast ekki.“

Er Budanov var spurður í viðtalinu að því hvort forsetinn væri dauðvona, svaraði hann: „Auðvitað. Hann hefur verið veikur í mjög langan tíma. Ég held að hann deyji mjög fljótlega. Ég vona það. Ég er alveg viss um að hann sé með krabba­mein.“ Sagðist hann „bara vita“ að Pútín sé veikur því hann hafi fyrir því „heimildir“ frá innsta ranni forsetans.

Síðan orðrómur um heilsu Rúss­lands­forseta fór á kreik fyrir nokkrum mánuðum hafa margir haft áhyggjur yfir því hver muni setjast í stól Pútíns eftir dauða hans og hvort dauði hans hefði í raun kosti eður ei.

Í frétt Mirror segir að eftir að þó nokkrar tilkynningar Pútíns hafi fallið í grýttan farveg hjá almenningi í heima­landinu hafi fyrrum yfirmaður M16, leyni­þjónustu Bretlands, Sir Alex Younger velt því upp að mögulegur arftaki forsetans yrði eins og hann lýsti því: „þjóðernis­sinnuð karlremba frá öfga­hægrinu í Kreml.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Eftir sjóslysið lýsir Patrícia Mikulová þakklæti fyrir björgun sambýlismanns síns en segir hug sinn jafnframt hjá þeim sem misstu ástvin.
Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Taryn Laprade og presturinn urðu vör við atvikið þegar þau beygðu inn á rangan veg á heimleið eftir blakleik.

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs