Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Þurfti ekki að vera vegan því hún hafði aðgang að Íslensku lambakjöti

Trausti Hjálmarsson, bóndi í Austur­hlíð í Tungunum og stjórnar­maður í Bænda­samtökum Íslands er gestur Spjall­vina Guðna Ágústs­sonar að þessu sinni.

Líkt og Guðmundur Jón Viðarsson, sem var gestur Guðna á dögunum, telur Trausti að nauðsynlegt sé fyrir Íslenskan sauðfjár­búskap að lamba­kjötið sé markaðs­sett sem sú gæðavara sem það er og verð­lagningin þurfi að vera eftir því.

„Við höfum verið tilbúnir, Sauðfjár­bændur, að leggja heilmikið á okkur til þess að hjálpa til við það að það lambakjöt sem fer úr landi, hvort sem það eru þúsund tonn eða fimmtánhundruð eða hvað það er, að það sé raun­verulega verið að selja það og markaðs­setja sem Íslenskt gæðakjöt en ekki bara sem uppfyllingar efni í einhver kjötborð úti í heimi þar sem enginn veit hvað hann er að kaupa.“

Trausta er minnis­stætt að fyrir tveimur árum hitti hann fyrir Þýska konu sem er vegan en hún hafði verið að ferðast um Ísland í um viku þegar hún komst að áhuga­verðri niður­stöðu.

„Hún átt­aði sig á því ð þegar hún var búin að vera þessa viku að hún þyrfti ekk­ert að vera vegan því hún hefði aðgang að Íslensku lamba­kjöti.“

Trausti telur að staðan hjá sauðfjár­bændum hafi verið þung mjög lengi og að mistök hafi verið gerð í verð­lagningu og markaðs­setningu á dilka­kjöti þegar kjúklingur og svínakjöt voru að hefja innreið sína á Íslenskan markað á 9. áratug síðustu aldar.

Sú vegferð var farin að keppa við þessar afurðir í verð­lagningu en það hafi haft það í för með sér að Íslenskum sauðfjár­bændum, sem framleiða hvað mest kjöt á hverja kind í Evrópu, hafi ekki verið unnt að selja lamba­kjötið á verði sem hæfir framleiðslu­ferli og gæðum vörunnar.

„ Ef það verður ekki við­snún­ingur í verðum í haust þá er bar­áttan að tap­ast. “

,,Ef það verður ekki viðsnúningur í verðum í haust þá er baráttan að tapast.“

Það er mat Trausta að sauðfjár­bændur hafi gert allt sem þeir hafi verið beðnir að gera varðandi fjölgun kílóa af kjöti á hverja kind og halda framleiðslu­kostnaði niðri en nú sé einfald­lega komið að hinum að gera sitt; afurða­stöðunum og verslununum.

Trausti er uggandi yfir hækkandi verði á aðföngum en telur þó að árið 2022 sé að sleppa fyrir horn þar sem búið sé að afla þess sem þarf fyrir árið en fyrst verði áhrifa verð­hækkananna verulega vart á næsta ári þar sem ekkert lát er á þessum hækkunum, m.a. vegna stríðsins í Úkraínu.

„Við þurfum að gera okkur grein fyrir því, Íslendingar, að við erum rík þjóð í góðu landi og við eigum að geta framleitt meiri mat bæði fyrir okkur og fyrir þá sem munu þurfa mat eftir allar þessar hörmungar sem eru að dynja yfir heiminum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.
Innlent

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt